Vikan


Vikan - 01.02.1979, Blaðsíða 5

Vikan - 01.02.1979, Blaðsíða 5
„Ég hélt mér myndi kannski leiðast þegar ég hætti í bankan- um, en raunin hefur orðið allt önnur. Mér leiddist reyndar meira í bankanum. Það er mikið betra að geta ráðið sér alveg sjálfur. Geti maðurinn ekki sætt sig við að hætta að vinna er það vegna þess að hann hefur hætt of seint, t.d. um sjötugt, og þá er of seint að byrja á einhverju nýju. Skipta frekar á meðan maður er sæmilega hress og klár. Ég fór á eftirlaun, þegar ég var 66 ára eftir 41 ár í bankanum. Þá fæ ég greidd áfram 85% af kaupi, sem þýðir að ég get lifað góðu lífi án þess að hafa neitt fyrir því. Ég hef til dæmis mikinn áhuga á því að mála og teikna og hef snúið mér alveg að því. Nú á ég reyndar bágt með að skilja hvernig mér gafst tími til að vinna í bankanum í öll þessi ár.” „Var það ef til vill gamall draumur — að verða listamaður?” „Þegar ég var ungur stúdent var þrennt sem ég hafði í huga — að verða læknir, að verða herforingi, eða að verða listamaður og fara til Parísar og lifa eins og „bóhem.” En skynsemin réð og því varð ég lögfræðingur. Það var fljótlegra og öruggt með atvinnu. Ég byrjaði strax í bankanum eftir stúdentspróf sem varamaður og átti þá vísa atvinnu og vann þar með námi. Það var ekki lífvæn- legt að vera listamaður um 1930, þeir lifðu flestir við sult og Vffils- fall. seyru. Enda var ágætt í bankanum og ef litið var að gera teiknaði ég bara það sem mér kom i hug við skrifborðið. Reyndar hef ég alltaf teiknað siðan ég var smástrákur, var ekki nema tíu ára gamall þegar Tage Muller lánaði mér lita- kassann sinn og ég málaði fyrsta olíumálverkið.” „Þóttir þú ekki kvenlegur karlmaður á þessum tíma, alltaf teiknandi?” „Nei, nei. I gamla daga var ekki talið að kvenfólk gæti málað. Enda hefur varla verið til kona á íslandi sem hefur verið virkilegur meistari í málaralist. Það er fyrst nú á tímum, sem kvenfólk verður sæmilega fært sem listamenn. Kröfurnar eru líka ekki jafnstrangar og áður fyrr. Það er allt látið gott heita, þótt það vanti nef á andlit, glugga á húsið o.s.frv. En ég vil að myndirnar mínar séu fallegar — fyrst og fremst fallegar. Ef mynd er ekki falleg, þá er alveg jafngott að rífa hana. Ég reyni einungis að skapa eitthvað fallegt með myndunum mínum, gera heimilið að skrúðgarði, gleðja vini mína. Málar rjúpurnar frekar en aö skjóta þær Núna hef ég sérstakan áhuga á því að mála rjúpur og aðra fugla. Það er geysilega gaman að fylgjast með fuglunum. Hér áður fyrr var ég mikill veiði- maður. Sennilega hef ég ekki Rjúpa I hrauni. Hrafnabjörg. *. tbl. Vikan 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.