Vikan


Vikan - 01.02.1979, Blaðsíða 49

Vikan - 01.02.1979, Blaðsíða 49
GLA UMGOSINN varaði ég yður ekki við því að ég sef mjög laust?” „Það veit hamingjan að þér þurfið ekki að óttast mig.” „Það er ég viss um,” sagði sir Richard og brosti. Þegar Jimmy Yarde læddist klukkutíma síðar inn í lágt herbergið fyrir ofan stofuna, þá lá sir Richard að þvi er virtist steinsofandi. Jimmy færði sig nær rúminu, horfði á hann og hlust- aði á jafnan andardráttinn. „Heilið ekki sjóðandi tólg yfir mig, bið yður,” sagði sir Richard án þess að opna augun. Jimmy Yarde hoppaði upp og bölvaði. „Einmitt,” sagði sir Richard. Jimmy Yarde leit á hann eitruðu augnaráði, háttaði sig hljóðlega og lagðist i hitt rúmið. Hann vaknaði snemma og heyrði hanana gala á bæjunum. Sólin var komin upp, en það lá ennþá móða yfir og loftið var mjög hreint. Það brakaði í rúminu þegar hann settist upp, en það vakti ekki sir Richard. Jimmy Yarde fór varlega fram úr og klæddi sig. Á dúklögðu borðinu við gluggann lágu gullið einglymi og tóbaksdósir sir Richards. Hann leit löngunarfullur til hans. Hann var sérfræðingur í nef- tóbaksdósum og hann klæjaði i fingurna að næla sér í eina og láta hana renna í vasa sinn. Hann leit óöruggur til rúmsins. Sir Richard andvarpaði í svefninum. Frakkinn hans lá á.stól, sem var i seilingarfjarlægð við Jimmy. Hann horfði á sir Richard á meðan hann þreifaði í vösunum. Það eina sem hann fann þar var vasaklútur. Sir Richard sýndi engin merki þess að hann væri að vakna. Jimmy tók upp tóbaksdósina og athugaði hana. Enn var engin hreyfing i rúminu. Fullur dirfsku lét Jimmy hana renna í vasa sinn. Einglyrnið fylgdi fljótlega á eftir. Jimmy læddist laumulega til dyranna. Þegar hann kom þangað, heyrði hann geispa sem kom honum til þess að stansa og snúa sér við. Sir Richard teygði úr sér og geispaði aftur. „Þér eruð snemma á fótum kæri' vinur,” sagði hann. „Það er satt,” sagði Jimmy, ákafur að komast út áður en þjófnaðurinn kæmist upp. „Ég er ekki fyrir að liggja í rúminu á fögrum sumarmorgni. Ég ætla að fara að fá mér ferskt loft áður en ég fæ mér morgunverð. Ætli við hittumst ekki niðri, herra minn?” „Jú, ætli það ekki,” samsinnti sir Richard. „En ef af þvi yrði ekki, þá skal ég losa yður við einglymið mitt og tóbaksdósirnar núna.” Æstur lét Jimmy föggur sínar falla. „Fari það kolað, aldrei hef ég hitt svona ósvífinn náunga allt mitt líf,” sagði hann. „Þér sáuð mig aldrei taka neitt?” „Ég varaði yður við því að ég svæfi mjög laust,” sagði sir Richard. „Látinn bíta á agnið,” sagði Jimmy með viðbjóði og afhenti þýfið. „Gerið svo vel. Það er engin þörf á að sækja yfirvaldið, er það?” „Alls ekki,” svaraði sir Richard. „Fjandakornið, þér eruð maður að mínu skapi, herra minn. Engin illindi?” „Ekki hin minnstu.” „Ég vildi að ég vissi hvað þér eruð að fara,” sagði Jimmy og hristi höfuðið yfir vandamálinu um leið og hann fór út. Niðri fann hann Pen Creed, sem einnig hafði vaknað snemma. Hún bauð honum glaðlega góðan dag, hún hafði farið út og sagðist telja að þetta yrði hlýr dagur. Þegar hann spurði hvort hún og frændi hennar myndu fara með næsta áætlunarvagni til Bristol, svaraði hún gætilega að frændi hennar hefði ekki ennþá sagt henni hvert þau ætluðu að fara. „Þið ætlið til Bristol, er það ekki?” spurði Jimmy. „Jú,” svaraði Pen og gleymdi sann- leikanum. Þau stóðu I drykkjustofunni sem á þessum tima dags var tóm, og í þann mund sem Pen ætlaði að fara að segja að hún vildi fá morgunverð sinn, kom kona veitingamannsins og spurði þau hvort þau hefðu heyrt fréttirnar. „Hvaða fréttir?” spurði Pen óróleg. „Nú, það eru allir undrandi í Wrox- ham. Við erum rólegt fólk og ekki vön borgarsiðum. En núna kemur strákur- inn minn hann Jim og segir að einn af lögreglumönnunum hafi komið hingað með póstinum. Hvað hann vill hér veit ég alls ekki. Þeir segja að hann hafi stoppað í Calne, og eins í Wroxham. Og þar sé hann að hnýsast inn í hin virðu- legustu hús og spyrja alls konar spurn- inga. Ég segi nú bara það að við höfum ekkert að fela. Hann má koma hingað ef hann vill, en hann kemst ekki að neinu hér.” „Kemur hann hingað?” spurði Pen hásri röddu. „Hann fer á alla gististaði í nágrenn- inu, eftir þvi sem mér er sagt,” sagði veit- ingakonan. „Jim heldur að það sé allt vegna áætlunarvagnsins, sem þér og frændi yðar komuð með, herra, því hann virðist spyrja ólíklegustu spurn- inga um farþegana. Sam býst við að hann komi hingað innan hálftíma. Nú, segi ég. Látum hann koma, því ég er heiðarleg kona og það hefur aldrei verið illt orð á þessu húsi eftir þvi sem ég veit. Morgunverður yðar verður tilbúinn eftir tíu mínútur, herra.” Hún fór inn i stofuna, Pen varð eftir, S. tbl. Vlkan 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.