Vikan - 27.09.1979, Side 21
lúxushótela. Þar skaltu búa, ef þú hefur
efni á að borga 30.000 krónur á nóttina
fyrir tveggja manna herbergi.
Hótelið er fullt af listaverkum,
einkum grískra meistara frá 18. og 19.
öld. Búnaður herbergjanna er í stíl
Lúðvíks 15. og 16. Herbergin, sem snúa
út að torginu, hafa svalir með útsýni til
Akrópólis og konungshallarinnar.
Uppi á þaki hótelsins er eitt glæsileg-
asta og frægasta veitingahús heims,
Tudor Hall, sem áður hefur verið lýst í
greinaflokki þessum. Þaðan er frábært
útsýni til Akrópólis. En því miður er út-
sýnið mun betra en maturinn.
Þjónustan á King George er betri en á
hinum hótelunum i sama verðflokki.
Harðflibbaklæddir púrtnerarnir eru
vinsamlegir og fljótvirkir, en einkum þó
og sér i lagi lágværir, því að hér er aðeins
talað i hvíslingum.
Forðastu hins vegar eins og heitan
eldinn frægasta hótelið í Aþenu, Grande
Bretagne, sem er við hlið King George
við Sintagma torgið. Það er jafngamalt
og jafndýrt, en lifir nú á þvi að hafa einu
sinni verið eitt af fimm fínustu hótelum í
heimi. Hortugir og heimskir starfsmenn
lifa enn á þessum gömlu, góðu dögum.
Omurlegur staður.
Dýrasta hótelið í Aþenu er Hilton. 1
þeirri marmarahöll kostar nóttin
40.000 krónur. Ofugt við önnur
Hiltonhótel er þetta mjög stílhreint
hótel, teiknað undir sterkum, grískum
áhrifum. En það er of langt frá
Sintagma. Og það er of stórt eins og
Grande Bretagne, 480 herbergja. Á járn-
brautarstöð er leiðinlegt að búa. King
George hefur ekki nema 142 herbergi.
Ódýrasta lúxushótelið
Ef þú hefur ekki efni á að borga nema
20.000 krónur á nóttina fyrir tveggja
manna herbergi, en vilt samt lúxushótel,
er upplagt að gista á ROYAL
OLYMPIC (ekki Olympic Palace) við
Diakou 28, simi 9226-411.
Herbergin, sem snúa út að götunni,
hafa gott útsýni yfir Seifsmusterið
handan götunnar og upp á Líkavittos-
klett handan Þjóðargarðsins. Og
búnaður herbergjanna er mjög glæsi-
legur. Ekki er setustofa hótelsins heldur
amaleg.
Stjórnin og þjónustan á Royal
Olympic er mjög góð og hefur farið
batnandi. Hótel af þessum klassa færð
þú tæplega að gista fyrir sama verð
annars staðar i Evrópu.
Akrópólisútsýni
Ef við færum okkur niður i A-flokk,
þar sem tveggja herbergið kostar
12.000 krónur á nóttina, koma tvö hótel
til greina, hvort á sinum forsendum.
Annað er ATTICA PALACE, aðeins
50 skrefum frá Sintagma. Heimilisfangið
er Karageorgi tis Servias 6 og siminn er
3223-006.
Anddyrið er ekki merkilegt og fremur
þröngt, en þó snyrtilegt og smekklegt.
Uppi er glæsibragurinn meiri. Herbergin
eru stór og vel búin og allt er hótelið
mjög nútímaleg'. Það er líka hæfilega
stórt, aðeins 78 herbergja.
Þú skalt reyna að fá herbergi á
áttundu eða niundu hæð eða valin
herbergi á sjöundu hæð, svo að þú hafir
óhindrað útsýni af svölunum til
Akrópólis. Ef það tekst ekki, skaltu
heldur panta herbergi á hinu hótelinu í
þessum flokki.
Stjórn og þjónusta á Attica Palace er
I góðu lagi. Munurinn á slíku hóteli og
lúxushóteli er einkum sá, að hér þarftu
dálítið að ganga eftir hlutunum. Þú
biður púrtnerinn að hringja í ákveðið
númer og panta borð. Hann réttir þér
simann. Þú segir: „Æ, ég kann ekki að
hringja.” Þá hringir hann fyrir þig. Og
sendir þú föt í hreinsun, skaltu ekki
búast við að fá þau aftur, nema ganga
eftir því.
Kostur við Attica Palace er. að i kjall-
aranum undir hótelinu er stærsta minja-
gripabúð Grikklands. Ennfremur er á
jarðhæðinni merkilega ódýr
kjóla„boutique”.
Hitt hótelið í þessum flokki er
ELECTRA PALACE við Nicodimou
18, sími 3241-401, 118 herbergi að
stærð. Það er enn nýtískulegra og vel
staðsett í skemmtanahverfinu Plaka.
Þar skortir Akrópólisútsýniö úr her-
bergjunum, en þú hefur það uppi á þaki.
Þar uppi er lika sundlaug, svo að þú
getur haft það eins og úti við ströndina
og notið Akrópólisútsýnis að auki.
Eftirminnilegt útsýni
I B-flokki, þar sem tveggja manna
herbergin kosta 9.000 krónur nóttina.
tel ég aðeins ATHENS GATE koma til
greina. Það er við Syngrou 10 og síminn
er 9238-302. Hótelið er nágranni Royal
Olympic og hefur annars vegar útsýni til
Akrópólis og hins vegar til Seifsmusteris
og Hadríanusarboga.
Eg hef hér að framan lýst frábæru
útsýni mínu beint úr rúminu á herbergi
514 upp á Parþenon og virkisveggi
Akrópólis. Þetta útsýni stendur mér enn
ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Það
eitt er sannarlega 9.000 króna virði á
dag.
Loftkælingin var nokkuð hávær. Og
þjónustan var heldur síðri en á Attica
Palace, enda hótelið i B-flokki. Meðal
annars var púrtnerinn ófáanlegur til að
panta borð á veitingahúsi fyrir mig. En
starfsfólkið var einkar vingjarnlegt. Og
stærð hótelsins er ekki þrúgandi. Það
hefuraðeins 106 herbergi.
1 C-flokki, þar sem verðið er 5.500
krónur, kemur helst til greina HERMES
við Apollonos 19, sími 3235-514. Þar
líður þér ekki eins og á járnbrautarstöð,
þvi herbergin eru aðeins 45. Þau eru vel
stór og hafa öll þægindi hinna fínni
hótela, svo sem bað og salerni, loft-
kælingu og beinan síma, svo og svalir.
Dularfull flokkun
Annars er flokkun hótela i Aþenu
Hadríansboginn ar framst á
myndinni, an handan götunnar, efst
til hœgri ar hótelið Athens Gate. Þvi
miður eyðilagðist filman min með
myndinni af útsýninu úr hótelrúminu
upp á Akrópólis.
mjög dularfull og sjálfri sér ósamkvæm.
Ég vildi búa eina nótt á CAVO D’ORO i
Turkolimano vegna nágrennis við veit
ingahúsin við höfnina. Það hótel er i B-
flokki. Umboðsmaðurinn vildi ekki láta
mér þetta eftir, heldur setti okkur hjónin
á HOMIRIDION í Pashalimano, einnig
hótel í B-flokki. Sagðist hann miklu
fremur mæla með þvi.
Ég sá eftir því eins og oftar áður.
þegar ég hef látið tilleiðast og tckið ntark
á öðrum en sjálfum mér. Homiridion
var eitt ömurlegasta hótel, sem ég hef
gist, allt brotið og bramlað og illa viðgert
á herberginu. Ég var sannarlega feginn,
að nóttin var aðeins ein.
Allt var þó tandurhreint á herberginu
eins og á hverju einasta grisku hóteli,
sem ég hefkynnst.
Jónas Kristjánsson
1 nœstu Viku: Á grísku sykurfylleríi
39. tbl. Vikan 21