Vikan - 27.09.1979, Side 38
Synishorn afþvi sem óhœtt er að láta inn i örbylgjuofn. Piast og brét brennur
til dæmis ekki islikum ofni og þvi óhætt að nota það sem ilát undir alls konar
mat
Þetta eru hiutir sem alls ekki mega fara inn i örbyigjuofn. Aiiir hlutir með ein-
hvers konar máimtegundum i samsetningu eöa skreytingu, þar með talið
eldhúsrúllur með áipappir, geta skemmt viðkvæma hluta örbylgjuofnanna.
Þíðing í örbylgjuofni er sér-
stakt kerfi fyrir þíðingu matar.
Þíðingin er mjög fljótleg og við
slíka þíðingu verður meira eftir
af safa í kjötinu en ef notuð vasri
gamla aðferðin við að láta kjötið
standa í nokkrar klukkustundir.
Brauð, kökur og þess háttar
þiðnar mjög hratt með þessari
Hann var að teygja sig eftir skiða-
bœklingnum ó ferðaskrífstofunni
þegar hann datt og braut 6 sór
fótinn.
aðferð. Kjötmeti krefst meiri
tíma og nauðsynlegt að kjötið sé
þítt í gegn áður en eldun þess
hefst. Allt frost verður að vera
horfið úr innsta hluta kjötsins. 8
kílóa kalkún þarf til dæmis um
það bil 80 mínútna þíðingu með
þessari aðferð.
Kjöt þyngra en 2-3 kíló ætti
að bíða aðeins eftir þíðingu og
jafnast, svo góður árangur náist
við eldunina.
Málmhlutir Inn í þessa ofna
má ekki fara neitt málmkyns,
svo sem diskar með málmrönd,
alúminíumpappír, hnífar og
gafflar og þess háttar. Allt slíkt
getur valdið stórkostlegum
skemmdum á ofninum. Ofninn
hitar ekki diska, bréf og þess
háttar, þannig að bréfsnepill
kemur í stað diska í sumum
tilvikum.
Varast skal líka að ofn þessi
byrjar að hita allt innan frá og
síðan út á við. Þess vegna þarf
að kaupa sérstakt ílát ef elda á
kjöt og hafa það hrátt að innan,
svo sem roast beef og þess
háttar. Þetta veldur því, að ekki
má til dæmis setja inn í ofninn
egg með skurn því þá myndast
efnasambönd, sem valda
sprengingu í egginu.
Fita Enga fitu þarf til að
steikja í ofnunum, þannig að
aukakílóin ættu að verða heldur
lengur á leiðinni. Til þess að búa
til poppkorn í slíkum ofnum
þarf til dæmis enga fitu, aðeins
að setja maísinn í sérstakt ilát og
poppkornið er tilbúið á
nokkrum sekúndum.
Verð Ofninn, sem hér var
notaður, kostar 45.000 krónur.
Tilbúinn matur í ofnana fæst
hjá Sóma í Kópavogi. Aðallega
er þar um að ræða hamborgara,
samlokur, brauð og þess háttar
en þar er einnig framleitt eftir
pöntunum. Hamborgarinn
kostar 550 krónur, en samlokan
425 krónur.
Við Vikufólk buðum okkar
ágætu nágrönnum, starfs-
mönnum Stjórnunarfélagsins,
með okkur í veisluna, sem þeir
héldu okkur Vilhjálmur
Georgsson og Bjarni Sveinsson.
Öllum viðstöddum bar saman
um gæði matarins og undruðust
þann skamma tíma, sem eldun í
slíkum ofnum tekur. Þó verður
að geta þess að kaupum á slíkum
ofnum fylgir að jafnaði ekki
matreiðslumaður. Hins vegar
fylgir matreiðslubók, mjög
38 Vikan 39. tbl.