Vikan - 07.08.1980, Side 14
VIKAN á ferö um landið
Hérna gægist einn af kettlingunum hennar Doppu fram milli blómanna.
Lambey. Jú. það er Jón í Lambey sem á
heiðurinn af þeim teikningum. Hann
hefur m.a. teiknað mikið t'yrir Mjólkur
bú Flóamanna. Allt of sjaldan gerir
maður sér grein fyrir að allar þessar
vörur. sem eru á borðum meira eða
minna árið um kring. eru árangur erfiðis
og vfirlegu margra manna. allt frá þvi að
varan er hráefni og þar til henni er ekið í
búðir fullunninni og i kunnuglegum
pakkningum. Sjálfsagt höfum við haft
myndir Jóns á jógúrthikurunum oftar
fyrir augunum en Kjarval og Klee. og
áreiðanlega oft á gagnrýnari augnahlik
um lifs okkar. Eða nær gagnrýnin hugs
un ntanns ekki oft einmitt hámarki við
morgunverðarborðið?
Húsfreyjan í hreppsnefnd
Ragnhildur Sveinbjarnardóttir hefur
gefið sér tima til að sinna fleiri málum
cn húskap, heimilishaldi og barnaupp
eldi. Og það þótt henni hafi lánast fyrr-
nefnd störf vel. hvert um sig reyndar
ærið starf. Hún á sæti í hreppsnefnd og
hefur auk þess verið á lista til alþingis
kosninga fyrir sinn flokk. Hún er einnig
í stjórn Sambands sunnlenskra kvcnna.
Samstarfsmönnum hcnnar i sveitar
stjórnarvafstrinu þykir gott að vinna
með henni og marga hef ég Iteyrt sent
ólmir vilja koma henni á þing. hvar i
flokki sem þeir standa.
Hún hefur unnið heilmikið i alls
konar félagsmálum og finnst kannski
litið verk að sjá um heimilið nú, cftir að
hafa verið með svo stórt heimili áður
Reyndar er fjölskyldan i Lamhey ckki
eina 8 barna fjölskyldan i grenndinni. Á
Breiðabólstað er nú prestur. séra Sváfnir
Sveinbjarnarson, bróðir Ragnhildar, og
hann á einnig 8 börn.
Hann að norðan,
hún á heimaslóðum
Ragnhildur er horin og> barnfædd á
þessum slóðum. dóttír Sveinbjarnar
Högnasonar prófasts. af ætt sem margir
þekkja, kenndri við Presta-Högna. Jón
Kristinsson er hins vegar kominn alla
leið frá Húsavik, Þingeyingur eins og
þeirgerast bestir.
En kvonfangið leiddi hann suður og
hann virðist vera ánægður með að búa i
Fljótshliðinni. Það er heldur ekki annað
P að sjá en að Rangæingar kunni vel að
14 Vikan 3Z.
meta Jón i Lambey því á fleslum heimil-
um er nú að finna mynd eftir harin og
auk þess er alltaf verið að panta hjá
honum myndir.
Málverk á sýningum fyrir
sunnan og norðan
Þegar Menntaskólinn á Akureyri
fagnaði 100 ára afmælinu sýndu 20—30
gamlir nentendur hans skólanum sinum
þann sóma að lána verk sín á sýningu af
því tilefni. Jón var einn úr þeirra hópi og
cftir hann voru á sýningunni fyrir norð
an nokkrar eftirlætismynda hans. Er
VIKUNA bar aö garði var enn ráðist á
veggina í Lambey og tekiö það sem eftir
var. út i sólina til myndatöku. Sólin var
hins vegar full örlát á geisla sína og
flestar myndirnar urðu yfirlýstar. en allt
um það er þó hægt að gefa lesendum
smáhugmynd um list Jóns.
Það er auðvitað kapítuli út af fyrir sig
hvernig Jón hefur fundiðsér tima frá bú
skap. kennslu. auglýsingateiknun og
öðru til að sinna myndlistinni. Engu að
siður hefur hann haldið tvær einkasýn
ingar, á Hvolsvelli og á Hellu. og greini
legt er að þeir sem séð hafa myndir hans
eru hrifnir af myndlist hans.
Flestar mynda Jóns eru landslags-
myndir eða mannamyndir. Hann er
teiknari góður og hefur djarflega lita
meðferð. Ekki þarf að leita fyrirmynd-
anna langt þvi allt um kring eru áleitin
mótif og ekki undarlegt að litir einkenni
myndir Jóns. Stundum hefur Jón lika
ntálað á framandi slóðum og ég get ckki
stillt mig um að geta eins atviks. þótt
Jón vilji sem minnst úr þvi gera.
Flórídabúar kunna líka að
meta Jón
Hjónin i Lambey brugðu sér til
Flórida i vetur. eins og margir aðrir
landar, og þar gat Jón ekki stillt sig um
að fara að mála. Hóteleigandinn á staðn
um varð svo hrifinn af mynd Jóns að
hann falaði hana strax af honum og svo
var auðvitað ekkert um að tala að borga
fyrir gistinguna. þau voru gestir eigand
ans. Þegar þau fóru fylgdu þeim óskir
um að koma sem allra fyrst aftur.
Það var samt íslenskt. litskrúðugt
sumar sent kvaddi VIKU-menn er þeir
gengu út í garð með hjónunum i
Lambey til að taka myndir og kveðja.
Kettlingarnir hennar Doppu léku sér úti
á hlaði. Læðan sú var að reyna að lauma
þeim inn i stofu. hundurinn lét loks til
leiðast að vera með húsbændum sinum á
myndinni og sólin lýsti upp umhverfið i
hreinu og sterku litunum hans Jónx aób.
TÍU BARNA FAÐIR SKOTINN TIL
BANA.
Tekinn í misgripum fyrir kaninu.
ryrirsögn i dagbiaöi i Nen ) 'ork
Nemendur sem ganga í hjónaband á
námstímabilinu geta ekki búið áfram á
heimavistinni. Þeir nemendur sem eru
þegar giftir verða annaðhvort að búa hjá
mökum sínum eða gera aðrar ráðstafan-
ir hjá umsjónarmanni.
IJr reglugerd háskóla
i Ohio, USA
Línudansararnir Roger og Betty
Decugis, hafa fengið synjun á beiðni
sinni um að fimm mánaða dóttir þeirra
verði skirð á fast strengdri línu í 130 m
hæð yfir Cheddarskarði í Somerset. Það
var biskupinn i Clifton. Joseph Rudder-
ham, sem hafnaði þessu. Dóttir þeirra
verður því skírð í kirkju, og að því búnu
fara hjónin mcð hana eftir línunni á
mótorhjóli.
Daily Express
Gefin hafa verið saman i kyrrþey
jarlinn af Selborne og fr. Valerie de
Thomka de tomkahaza et folkusalva,
dóttir J. A. de Thomka de tomkahaza et
folkusalva heitins, og Irenu de Thomka
de tomkahaza et folkusalva barónessu.
Daily Telegraph.
Syrgjandi kona komst að því sér til
mikillar skelfingar, að eftirlætishattur
hennar hafði verið grafinn með
líkkistunni viðjarðarför i Suður-Afriku.
Hún hafði ætlað í hanastélsboðá eftir en
meðhjálparinn setti hattinn með blóma-
skreytingunni á kistuna. sem hvarf
síðan í gröfina.
Weekend
Vilja foreldrar drengsins, sem skipti á
epli og þríhjólinu sínu við annan dreng
utan við Sale Lido á föstudag,
vinsamlegast skila hjólinu aftur, strax.
A uglýsing i Manchester
Evening News
Fr. McCausland var einsöngvarinn sem
söng á þrenningarhátíðinni, sem frá var
greint á laugardag og söng lagið: Herra,
mæltu til mín, ekki fr. McDonald.
Úr kanadisku blaði.
Rannsóknir þriggja líffræðinga hafa leitt
I ljós, að tvær af hverjum þrem
fæðingum í Bandaríkjunum eru
afleiðingar þungunar.
Borgarinn. Ohio. USA