Vikan - 07.08.1980, Qupperneq 15
m McCOB^
mm seiíl<"
hí' c-r5'
vh"
^0gF^1ÍSN<n& thtt
»t thc ” S*ay
<j E«tcr ” si&xh.c saM ;
■ ít aiturt r t „ , ,
M-íih'olm otJdod t ? hsid
u^t sott-Ieft »n tny ehalr to.
raií h the &*£$a?«d*'W«st
n<li»»N match:
*I gJaneotl out the wíj*'
íö^ *stw the I«ín eojö?
:t They d«nv ^
t "* tho" Æ
íh the "Psy As You Enter” bu*
A PENSIONER Jiad a shocte vht-n he collwu-d hl
'ralng post—because lying on the tuat was not one
■'nal uemanrt water bi!Ls. •• I thought s micone wá
" '*áiéá April Fools jolte," saiö Mr Riebarc
'"d Road, Walberswiek, Suffolk. Thc
saia Uiere httsi boen a eíerica
HLEGIÐ Á
KOSTNAÐ
ANNARRA
Gullkorn úr erlendum blöðum
og tilkynningum hér og þar
Stumped ! A policeman !oo
/vjcolm's hoese
1 Ghana stendur til að breyta yfir í
hægri umferð. Breytingin mun fara fram
i áföngum.
Úr dagbladi í Clhana.
1 sumar flytur Graham-fjölskyldan i
einbýlishús, sem þau hafa hannað og
byggt alveg upp á eigin spýtur úr bókum
sem þau fengu lánaðar frá almennings-
bókasafni.
• Sunday Express
Nefndin hefur ákveðið að sprauta bólu-
efni í 20 kálfa i október, og þrem
mánuðum seinna verða fimm eða sex
kálfar í viðþót bólusettir. Siðar mun
nokkrum úr hvorum hóp slátrað, til
krufningar, og ef meðferðin þykir
vænleg til árangurs verða sömu aðferðir
reyndará mönnum.
Úráströlsku blaöi.
Bílasali í Connecticut hefur komist að
raun um að ekki borgar sig að nota
„slang” i auglýsingum. Hann auglýsti
Pontiac árgerð 1962 til sölu fyrir 1.395
banana (dollara). Þegar húsmóðir
nokkur bauð honum 25 banana í fyrir-
framgreiðslu neitað hann að taka við
þeim. Húsmóðirin kærði og har við
villandi orðalagi í auglýsingu, og hún
vann fnálið. Hún greiddi afganginn í
banönum og ók burtu á bilnum.
Sunday Times
Virðulegur, miðaldra opinber starfs-
maður óskar eftir sportbíl, helst
erlendum, til leigu helgina 22.-23. júní,
til að hækka álit sonar í augum skóla-
félaganna, sem flestir eiga feður á
Jagúar.
Auglýsingí The Times
VINNUAÆTLUN:
Mætingartími
Morgunkaffi
Hádegismatur
Síðdegiskaffi
Lokunartími
9.00
9.30—11.30
12.00—14.00
14.30—16.30
17.00
Tilkynningá veggí
aðalbókasafninu í Boston.
Brúðurin og brúðguminn fóru siðan til
Italíu. Það siðarnefnda var með
hýasintubláan hatt úr krinólínflétting-
um og í bláu flauelisslái yfir hýasintu-
bláum kjól úr kinversku efni.
Úr blaði i Essex.
ÞETTA ER HLIÐ HlMNARlKIS, OG
ALLIR SKULU GANGA INN UM
ÞAÐ. Dyrnar eru læstar vegna gegnum-
trekks.
Spjald á dyrum kirkju
í Chumberland
Morgunmessa:
Sálmur 43 Góður guð hvað heyri ég og
sé?
Predikun, séra Bernard Taylor sálmur
45, Hlustið, hræðileg rödd hljómar.
Séð á kirkjutöfiu.
HÆTTA Á SJÚKDÓMUM 1 PÁFA-
GAUKUM.
Dýraverndunarfélögin munu sjá eig-
endum páfagauka fyrir sársaukalausum
dauðdaga.
Úr dagblaði i Essex
Því miður yfirgaf forsætisráðherra
samkunduna áður en hún hófst. Annars
hefði hann fengið að heyra margar
miður fallegar athugasemdir um fjar-
veru sína.
Úr blaði í Liverpool
Kæri Póstur!
Ég hringdi um daginn í vin minn
Arthur Green, og mér til mikillar
undrunar fékk ég samband strax.
Er þetta Arthur?
Já, þetta er Arthur.
Klukkan hvað ætluðum við að borða
saman í dag?
Borða saman í dag, ég skil ekki?
Er þetta ekki Arthur Green?
Jú, þetta er Arthur Green.
Jæja, við ætluðum að borða saman
hádegisverð í dag.
Að borða saman hádegisverð? Þetta
hlýtur að vera einhver misskilningur?
Er þetta ekki Arthur Green i Toch?
Nei, ég er Arthur Green símvirki, og
égpr.aðgera viðJínuna yðar. -
Með kveðju
Rupert Bliss,
úr bréfi til Times.
Frá og með mánudegi verður öllum
kartöjium skammtaðar viðskiptavinir.
Séð á tilkynningatöflu
i verksmiðju einni.
72% svöruðu spuringunni „Ertu
almennt með eða á móti hr. Johnson i
forsetaembættið?” játandi. 28%
neitandi.
Úr blaði i Surrey.
Fullkomin búslóð til sölu: tvö hjónarúm,
eitt barnarúm, borðstofuhúsgögn í þrem
hlutum, útvarp, sjónvarp, teppi, Ijón
o.fl.
Auglýsingí
Portsmouth Evening News.
William Kleintop, Lehigh Avenue og
frú, fæddist í síðustu viku sonur. Til
hamingju, Pétur!
Palmerton (Pennsylvania) Press.
32 Vikan 1$