Vikan - 07.08.1980, Side 20
Vikan og Neytendasamtökin
Hvað verður um
pottaplönturnar
í sumarfrfinu?
Stofublómin eiga að gcta dafnað eðli-
lega þótt þú farir i burtu I þrjár vikur.
AuðveWast or að biðja einhvern góðan
nagranna að lita inn og vökva þau en
það er hægt að tryggja að plönturnar fái
næga vökvun á annan hátt. Hægt er að
kaupa alls kyns sjálfvirk vökvunartæki I
búðum en heimagerð vökvunartæki eru
auðvitað ódýrari.
Stofublómin þurfa vatn og birtu til
þess að þroskast eðlilega. Sumarið er
þýðingarmesta vaxtartímabil plöntunn-
ar en þótt stofublómin fái ekki fullan
skammt af sólarbirtunni I þrjár vikur á
enginn skaði að vera skeður.
Fyrsta boðorðið er að færa blómin úr
sólríkunt gluggum sem snúa I suður og,
ef hægt er, að koma þeim fyrir I glugg-
um sem snúa móti norðri. Ef það er ekki
hægt er best að koma blómunum fyrir á
lágu borði undir gluggunum þannig að
þau njóti birtunnar en séu ekki beint i
sólinni. Þá er gott aðdraga gluggatjöldin
fyrir þvi ef sólin skin lengi beint inn I
herbergið verður mun heitara og plönt-
urnar þurfa því meiri vökvun. Gott er
einnig að gefa plöntunum áburð rétt
áður en fariðer í friið.
Blóni sem hafa blómstrað. eða eru að
blómstra, er best að klippa af enda hefur
þú enga gleði af blómunum þegar þú ert
i burtu. Og: Biðið með að kaupa ný
stofublóm þar til komiðer til baka.
Pottaplöntur, sem þola eiga þurrka,
komast þvi af ef þessar ráðstafanir hafa
verið gerðar. Þar er átt við kaktusa og
nokkrar aðrar plöntur1 með þykkum
blöðum. Plöntur með þynnri blöðum
þorna hins vegar mun fyrr. En ef þú
hcfur fært þær úr beinu sólarljósinu er
alveg nóg að einhver nágrannanna
vökvi þær einu sinni I viku.
Það hefur einnig reynst vel að setja
allar pottaplönturnar á borð og breiða
yfir þær plast. Þá helst rakinn undir
plastinu en munið að breiða þannig yfir
plönturnar að loft geti leikið um þær.
í vatnsbala
En nú vill oft svo til að nágranninn er
líka á ferðalagi á sama tíma og þá er ekki
um annað að ræða en að útbúa einhvers
konar vökvunarkerfi. Einfaldasta að-
ferðin er að koma öllum plöntunum
fyrir i bala og hella síðan vatni I hann.
Vatnsborðið á að ná ca einn sentimetra
upp á pottana. Viðbótar vatnslager er
hægt að búa sér til með því að fylla
flösku af vatni, halda fyrir stútinn og
f-yrsta booorðio, aður en fario er i fri, er aO færa ótl pottablomin úr gluggum
svo að þau séu ekki i sólarljósinu. Meira að segja kaktus á að færast inn i
skuggann.
ZO Vtkan 32. tbl.