Vikan - 07.08.1980, Qupperneq 22
Skógrækt
Þessar skógarplöntur verfla tilbúnar til sölu á nsesta óri.
Milljónir
sjátfstæðra
einstaklinga?
Skógræktarstöðin á
Tumastöðum heimsótt
Menn getur greint á um hvort eða hversu mikla sál
plöntur hafi. En varla blandast nokkrum hugur um
að hver einasta trjáplanta er öðrum ólík. Það mætti
e.t.v. segja að hér væri um að ræða milljónir sjálf-
stæðra einstaklinga.
Er ferðin um þjóðveg-
inn ekki meira virði ef
menn eru einhverju
nær um hvað býr að
baki þessara bæjar-
nafna sem bíllinn þeys-
ist f ramhjá?
Þegar ekið er um sveitir iandsins gera
margir sér það til gamans að lesa á skilt-
in til beggja handa og reyna að gera sér
grein fyrir hvað leynist að baki fjöl
breytilegra bæjarnafnanna. Að baki
flestra þessara nafna er þaðsama, a.m.k.
ef litið er á yfirborðið. Sveitabýli með
fjárbúskap eða kúabúskap, oftar þó með
blönduðum búskap, eru að baki vel-
flestra bæjarnafna hér á landi. Sum
nöfnin eru kunnugleg og þá hægir bæj-
arbúinn kannski á, dokar við andartak
og hugsar með sér: Hvað var nú aftur
sérstakt við þennan stað? Er þetta ein
hver sögustaður, er kannski grasköggla-
verksmiðja hér, tilraunabú ellegar skóg-
rækt? Sjaldan ná þessar hugleiðingar
lengra og sumir halda áfram án þess að
komast að hinu sanna.
Ef ekið er um Fljótshliðina gefur ofl
að lita kunnugleg nöfn á skiltunum. Eitt
þessara nafna að norðanverðu við þjóð-
veginn er Tumastaðir. Engum ætti þó að
blandast hugur um hvers konar starf-
semi fer þar frani. Fljótlega kemur
ókunnugur auga á óvenju mikla trjá-
rækt þar, húsin sjást reyndar varla fyrir
trjám, og mikið rétt, þarna er skógrækt-
arstöð. Uppi i hlíðunum eru grenitré i
reglubundnum röðum og greinilegt að
þeim hefur ekki verið plantað þar af
neinu handahófi. Skógrækt ríkisins
rekur þarna umfangsmikið starf, 4 hekt-
arar lands eru í fullri notkun sem stend-
ur, og stöðin sér skógræktarfélögunum
allt frá Hornafirði, suður og vestur um
land, fyrir skógarplöntum og öðru þvi
sem þær þurfa. Útþenslumöguleikar eru
sem betur fer miklir því 500 hektarar
nærliggjandi lands hafa nýlega verið
keyptir af Kollabæjarlandi, en Kollabæj-
arland ligguraðTumastöðum.
Árlega eru nú seldar 220—250 þús-
und skógarplöntur frá skógræktarstöð-
inni á Tumastöðum. Skógarplöntur eru
u.þ.b. 4 ára trjáplöntur ætlaðar til skóg-
ræktar í stórum stíl. á vegum skógrækt
arfélaganna. Siðan sjá félögin, hvert á
sinu svæði, um að planta þessum plönt
um i þá reiti sem þau hafa til umráða.
Oft er þar reyndar um stærri svæði að
ræða, innan skógræktargirðinganna, en
eins og kunnugt er verður að girða allan
ungan trjágróður vel af til að verja hann
ágangi sauðkindarinnar. Ekki verður
heldur litið hjá því að ágangur er oft
bagalegur af völdum mannkindarinnar,
sem ætti að vita betur en sauðkindin og
geta hlift ungum trjágróðri.
Skógræktarfélögin um land allt hafa
sannað svo ekki verður um villst að með
þekkingu og góðri vinnu má ná upp
góðum skógræktarsvæðum hér á landi.
Félögin sem Tumastaðastöðin þjónar
hafa t.d. sýnt árangur starfs síns í verki á
stöðum eins og Þjórsárdak Haukadal,
Skarfanesi í Landsveit og miklu víðar.
22 Vikan 32. tbl.