Vikan - 07.08.1980, Qupperneq 31
Popp
Leður-
klæddur
töffari
Suzi Quatro er fædd i borginni Detroit
i íiandaríkjunum 3. júni 1950. Faðir
liennar. Art Quatro. var hljómsveitar-
stjóri i jasshljómsveit og hann vakti
áhuga barna sinna, fjögurra dætra og
eins sonar. á tónlistinni. Þau stofnuðu
saman hljómsveit þar sem Suzi lék á
trommur, píanó og gítar. Áhugi á skóla-
námi reyndist ekki mikill og eftir að hafa
kvatt skólann 14 ára gömul stofnaði
Suzi aðra hljómsveit með systrum
sínum, Patti, Nancy og Arlene.
Hljómsveitin hlaut nafnið The Pleasurc
Seekers.
The Pleasure Seekers spilaði á dans-
stöðum og klúbbum í Detroit til að byrja
með, en einnig víðar um Bandaríkin.
Þær systur breyttu um nafn á hljóm-
sveitinni og sem Cradle fóru þær til
Vietnam á styrjaldarárunum þar og léku
fyrir bandaríska hermenn. Er hér var
komið sögu kom breski athafna-
maðurinn og upptökustjórnandinn
Mickie Most fram á sjónarsviðið. Hann
hafði verið i Detroit til þess að stjórna
upptöku á plötu með Jeff EJeck þegar
hann sá og heyrði Cradle spila á klúbbi
og lét í ljósi áhuga á að taka að sér
umboðsmennsku fyrir aðalsöngvara
hljómsveitarinnar, Suzi Quatro.
Þar eð samkomulag þeirra systra var
hvort sem er ekki upp á marga fiska sló
Suzi til og fluttist til Englands. Fyrsta
tveggja laga platan, Rolling Stone, hlaut
dræmar viðtökur en eftir að hún tók að
leika og syngja lög eftir þá félaga Nicky
Chinn og Mike Chapmann komu
topplögin hvert á fætur öðru, Can The
Can, 48 Crash, Daytona Demon, Devil
Gate og The Wild One. Allt voru þetta
frekar einföld lög og gagnrýnendur voru
ekki hrifnir en eins og sagt er, það
seldist.
Most lagði áherslu á það við Quatro
að hún léki hina ribbaldalegu ungu
konu, sem gert hefur Quatro að
átrúnaðargoði margra unglinga, og hún
kemur yfirleitt fram i leðurklæðnaði
miklum og þykir „töfT'. Hér á fsíandi
hefur Suzi Quatro ekki átt miklu fylgi að
fagna en vinsældir hennar eru mun
meiri t.d. á Norðurlöndunum. □'