Vikan - 07.08.1980, Page 34
Fimm mínútur með Willy Breinholst
■ Silfurörn Rósafoss barón í
Runkelborg var slæmur á taug-
um. Ástæðan var fyrrum húsfrú
hans en hún var nýlátin. 1 heilan
mannsaldur hafði hún verið
honum hin versta, plagað og
ergt á alla lund og snúið honum
I kringum sig eins og hundgreyi.
Svo gerðist það dag einn að hún
rann til á grænsápustykki í efstu
tröppunni I norðurturninum og
. .. tja, það var ekki um annað
að ræða eftir þá salibunu en
keyra hræið i kirkjugarðinn og
koma því haganlega fyrir í graf-
reit fjölskyldunnar. En þar með
er sagan ekki nema hálfsögð.
Barónessan gekk nefnilega aftur
í höllinni í Runkelborg með
þeim afleiðingum að Rósafoss
barón kom ekki dúr á auga,
sama hvað hann reyndi.
Hann hafði gift sig aftur,
ungri jómfrú sem á allan hátt
tók hinni gömlu fram, ekki var
VOFAN Á FLAGG
STÖNGINNI
hún bara yngri og fallegri, hún
var líka betur upp alin og svefn-
leysi barónsins var ekki henni að
kenna nema í einstaka tilfelli. Ot
í þá sálma verður ekki farið hér.
En það var sem sagt Camilla, en
svo hét hin óheppna barónessa,
sem var völd að þrautum bar-
ónsins. Þegar klukkan í vestur-
turninum sló tólf, og gaf þar
með til kynna að nótt væri end-
anlega gengin í garð, rauk
baróninn upp með andfælum,
reif í ungu konuna sína og sagði:
— Þarna er hún aftur.. .æ æ
æ æ æ... þarna er hún ... sjáðu
... ég get þetta ekki, ég held
þetta ekki út . . . æ æ æ!
Sjáðu! Þarna klifrar hún upp
flaggstöngina og sest upp á hún-
inn, hvítklædd og veifar græn-
sápustykki. Er það kannski mér
að kenna að hún rann til á sápu?
Unga frúin fór fram úr, gekk
að glugganum og leit út.
— Hvaða vitleysa er þetta í
þér, Rósi minn, það situr enginn
á flaggstönginni. Þú ert farinn
að sjá sýnir, elsku vinur. Slak-
aðu nú á og reyndu að hvíla þig.
En baróninn gat ekki slakað
á. Hann hafði séð gamla skassið
efst á flaggstönginni og sá hana
enn. Oggrænsápan ...
— Hún ofsækir mig, kjökraði
gamli baróninn, ég fæ aldrei frið
fyrir henni, aldrei að eilífu. Ég,
aumur maður.
Næstu nótt var hún enn á
sínum stað. Um leið og klukkan
sló tólf sást til hennar í garðin-
um þar sem hún gekk að flagg-
stönginni klifraði upp og tyllti
sér á gylltan húninn. Hvíta
hempan blakti í golunni og
tunglskinið endurvarpaðist í
grænsápunni.
— Ég átti ekkert í þessari
grænsápu, vældi baróninn, kerl-
ingin er að gera mig vitlausan.
— Þetta eru bara taugarnar,
sagði unga frúin huggandi. —
Þú ferð til taugalæknis strax á
morgun og þá verður þetta allt
betra innan tíðar, því lofa ég þér.
Svo tók hún gamla baróninn í
fangið og strauk á honum skall-
ann.
Árla næsta morgun fór barón-
inn til taugalæknis. Læknirinn
skoðaði hann gaumgæfilega,
mældi blóðþrýstinginn, tók
hjartalinurit, skoðaði hálsinn,
eyrum, nefið og tærnar og
Stjörnuspá
llniliirinn 2l.m;irs 20.afiril
Hafðu taumhald á
skapsmununum. ekki
mun af veita. Einhver
sem hefur yfir þér að
segja mun fara meira en
litið i taugarnar á þér.
og ef jiú (xtgir ekki á
réttum tímum. getur illa
farið.
\;iuli(> 21.t.pril 2l.ili;ii
Þú átt erfitt með að
gera upp hug þinn í ein
hverju tilfinningamáli.
Það skaðar alla. ef þú
dregur það mikið
lengur. En taktu ekki of
afdrifaríkar ákvarðanir.
I Iressileg helgi.
T\ rlmnirnir 22. ni;ii 21. júni
Nú ættir þú að fara að
geta leyft þér einhvern
munað. Ekki það að
auraráðin séu svo glxsi
leg. en fara þó skán
andi. Tillitsleysi gæti
koniið hart niður á
öðrum, gættu þin.
Kr. hhinn 22.Jimí 2.Vjúli
Það verður heldur gest-
kvæmt hjá þér um helg
ina. Reyndu að láta
ekki þreyta þig um of.
það gæti haft langvar-
anclfeiillar afleiðingar.
Einkalifið blómstrar og
tmga fólkið hittir
gamlar ástir á óvæntum
stöðum.
I.jóniú 24.júli 24. ;iiíú*l
Ferðalög gætu reynst
vel nú um helgina. en
reyndu að halda þig
utan alfaraleiða. Þeir
sem hyggja á lengri
ferðir ættu að hafa
heppnina með sér. en
svolítil forsjálni sakar
ekki.
Mcj jiin 2-%-;»i*úsi 2.VH-pl.
Ef þér finnst þú misrétti
beittlur). þá er það að
öllum likindum rétt.
Það er hins vegar lítið
við þvi að gera. Þú
getur hefnt þin siðar en
vertu ekki of harður.
7 -T1 íT l
\iniiii 2j.a.Vi.ki.
Sá sem þú ætlaðir að
hitta um daginn. kcmur
liklega i leitirnar i |x-ss
ari viku. Spurningin er
bara hvort þú átt
nokkuð að sinna svona
ótryggum manneskjum?
Valið er þitt.
Sporúdrckinn 24.okl. 2.Vno\.
Allar meiri háttar fram
kvæmdir mega biða um
sinn. þú átt mörgu
ólokið. sem þér finnst
kannski litils virði. en
þarf þó að Ijúka. Þú
kynnist nýju fólki. sem
er skemmtilegt í um-
gengni.
Ho^niaúiirinn 24.nú\. 2l.clcs
Þú ættir að hugsa meira
um útlit þitt. Getur
vcrið að þú hafir of
reynt þig að tindan
förnu? Allar hollar iðj-
ur. sund og útilif gera
gagn. Svo er svolítil
rómantik i sveitunum.
Stcingciiin 22. úcs. 20. jan.
Nágrannar þinir gætu
þurft að biðja þig mikils
greiða. Reyndu að valda
þeim ekki vonbrigðum.
en það er hætt við að
þú getir lítið gert. Hins
vegar verður þér gerður
greiði.
\alnshcrinn 2l.jan. lú.fcbr.
Ást ást-ást. vatnsberar
geta sannarlega fagnað
þessari viku. Auðvitað
þarf að sinna fleiru en
samskiptum við hitt
kynið. en hætt við að
litið vcrði úr verki.
Mundu þó eftir simtali.
Kiskarnir2(>.íchr. 20.mars
Þótt fiskarnir hafi ætlað
sér að gera heilmikið
þessa vikuna. er hætt
við að lítið standist. Það
ætti varla að gera til,
því annað vinnst i stað-
inn. Eldri fiskar ættu að
halda sig heima.
34 Vikan 32. tbl.