Vikan


Vikan - 07.08.1980, Page 38

Vikan - 07.08.1980, Page 38
Skop Framhaldssaga MEYJAR- FÓRNIN I rúmi átta opnar Clive Ritzell. ni undi barónettinn, augun skelf- ingu lostinn. Ópið ..He.xas!" berst úr skentmdum hálsi hans. og sál hans er rif- in æpandi úr deyjandi likamanum. Stór markgreifinn sjálfur ber hana sigri lirós andi á brott. Vindurinn vekur nýja barónettinn i læstu herbergi við deild sex. Hann skríður í ofboði undir sængina og þegar lætin hætta heldur hann sér dauðahaldi i lögregluvörðinn. sem er stöðugt hjá rúmi hans. Hann er eins og barn með martröð. grætur og veit hvorki i þennan heim eða annan. Júliurnar tvær vakna líka skyndilega. Þegar dáleiðsluáhrif Clive eru hætt. ranka þær við sér i algerlega framandi unthverfi. Þær setjast upp. hvor í sínu rúmi. og stara tryllingslega hvor á aðra. Þegar þær fara að öskra. rekur hvekkt og dauðskelfd hjúkrunarkona sprautu i báða likantana. Andartaki síðar sofna þær óvært. Mike Benson verður var við allan hamaganginn. en hann er undir áhrifum sterkra deyfilyfja og gerir sér enga grein fyrir merkingu hræðslunnar. hlaupandi fótanna og ákafra raddanna. Hann fellur aftur í svefn og það er kominn morgunn, þegar hann vaknar og sér lan Wall við rúmstokk sinn. 38 Vikan 32. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.