Vikan - 07.08.1980, Blaðsíða 45
hefðu komið óeirðunum af stað og því
ættu þeir engan rétt á bótum. Fyrirtæki
i eigu aria. sem sækja um bætur geta
fengið þær. Tryggingafyrirtæki í eigu
gyðinga fá engar slíkar endurgreiðslur.
Marta játaði að hún skildi ekki mjög
vel lagalega röksentdafærslu mína en
samsinnti að þetta væri réttlát lausn.
Hún sagði að gyðingarnir hefðu kallað
þetta yfir sig.
Viðhorf min til gyðinga. sem voru svo
barnaleg fyrir þremur árum hafa
gerbreyst. Ég sé nú greinilega hvernig
þeir hafa laumað sér inn í þýskt þjóðlif.
seilst til áhrifa og aftrað þýsku þjóðinni
frá markmiði sinu. Ég veit hvað For-
inginn á við með „gyðingalausri”
Evrópu sem hlýtur að vera öllum til
hlessunar. einnig gyðingum. Við hlítum
ekki alltaf strangasta lagabókstaf en það
veldur mér ekki áhyggjum meðan ég er
undir verndarvæng Heydrichs.
Auðvitað hafði hann á réttu að standa á
fyrsta fundi okkar. Ég hef varpað fyrir
róða hinum úreltu hugmyndum minum
um réttlæti. t sumum tilvikum eiga þær
engan veginn við.
Þegar Pétur og Lára höfðu baðast
komu þau inn i nýju baðsloppunum
sinum. Ég kyssti þau.
„Þið ilmið eins og blóm að vori.
börnin mín,” sagði ég.
Pétur varð fúll. „Ég er ekkert blóm.
Hún er það kannski." Hann er tæplega
niu ára. stór og þrekinn og hefur fengið
skapgerð móður sinnar og fingerðan
andlitssvip.
Lára er oft djúpt hugsi og döpur. Hún
ntinnir á mig þegar ég var drengur. Hún
hallaði sér fram á hné eins og börn gera
oft þegar þau vilja láta taka eftir sér.
Hún horfði sakleysislega i augu mér og
sagði: „Hvers vegna er öllum.illa við
gyðinga. pabbi?”
Pétur varð fyrri til en ég:., Vegna þess
að þeir drápu Jesú. Lærðirðu það ekki í
sunnudagaskólanum?"
„Það eru aðrar ástæður," sagði
Marta. „Þið skiljið það þegar þið verðið
eldri.” Hún sendi þau i rúmið.
Ég velti fyrir mér snjöllu svari Péturs
við spurningu Láru. Það var sannleikur
fólginn i þvi. Vist drápu þeir Krist.
Flokkurinn. hreyfing okkar. leggur lítið
upp úr þessu atriði og sömuleiðis
Foringinn i ritum sínum. en við njótum
góðs af aldalangri skoðun. Sagnfræði-
kunnátta min er næsta takmörkuð og ég
er enginn heimspekingur en mér virðist
samhengi í níðingsverki gyðinga gagn-
vart Guði og þeim örlögum, sem við
ætlum þeim. Og ekki vorum það við sem
fundum upp gyðingahatrið.
Dyrabjallan hringdi og hreif mig upp
úr hugsunum minum. Mörtu virtist
bregða en ég sagði henni að vera hjá
börnunum, ég færi sjálfur til dyra.
Þetta var Weiss læknir. Hann virtist
eldri og álútari. „Dorf höfuðsmaður.”
sagði hann. „Mér þykir leitt. að koma
— hinn tryggi heimilisvinur
Hagstætt verð — Greiðsluskilmálar
Biðjið um myndalista.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI 10 A
Simi 16995.
svo seint en ég óttaðist að þú neitaðir að
tala við mig hefði ég hringt fyrst."
Ég gramdist honum. Hann átti að vita
betur. „Ég var búinn að segja þér að
koma ekki til min."
„Ég get ekki snúið mér til annarra.
Karl sonur minn sem er nokkru yngri en
þú — þú manst kannski eftir honum úr
gamla hverfinu — hefur verið hand
tekinn. Okkur hefur ekkert verið til-
kynnt um það. Ástæða var ekki
tilgreind. Hann hefur aldrei á ævi sinni
hugsað um stjórnmál. Hann er lista
maður. Hann..."
Rödd hansdvinaði.
Ég gat ekki liðsinnt honum og sagði
honum það.
„Hvaða glæp höfum við framið?
Hvað höfum við gert á hlut ykkar?
Tengdafaðir minn var stríðshetja í þýska
hernum. Óeirðaseggir hafa lagt heimili
hans og verslun i rúst. Synir minir hafa
alltaf þóst jafnþýskir og þið."
„Þessar aðgerðir beinast ekki að þér
pérsónulega eða fjölskyldu þinni.” sagði
ég.
„Það gerir okkur ekki auðveldara
fyrir.”
„Þetta eru langtímaáætlanir sem
koma ykkur til góða jafnt sem þýsku
þjóðinni."
„En ævistörf manna eru eyðilögð og
fólk liflátið. Hvers vegna?”
Hann var tekinn að skaprauna ntér.
Hann hafði ekkert leyfi til að koma
hingað. „Ég get ckki rætt þetta mál við
þig"
„Vertu svo vænn. höfuðsmaður. Þú
ert áhrifamaður. liðsforingi i SS.
Hjálpaðu syni minum.”
Meðan hann var að nudda i mér kom
Marta á vettvang. „Er eitthvað að.
Eiríkur?"
„Nei, góða mín.”
Weiss hneigði sig fyrir Mörtu.
„Kannski skilur þú þetta, frú. Reyndu
að setja þig i mín spor. Segjum að sonur
þinn hefði verið handtekinn eins og
sonur minn. Einu sinni treystuð þið mér
bæði til að gæta heilsu ykkar. . . Ég bið
aðeins...”
Rödd Mörtu var ákveðin. Hún virti
hann ekki svars. „Börnin, Eirikur.”
Weiss læknir vildi ekki fara. Ég gekk
frá honum að Mörtu.
Hún hvislaði að mér: „Fáðu hann til
að fara. Hann stefnir ferli þinum í voða.
Segðu honum að þú getir ekki hjálpað
honum. Þú tókst ekki son hans til
fanga.”
„Ég hef sagt honum það.”
„Segðu honum það aftur. Vertu
kurteis en taktu fram að þú getir ekkert
gert."
Ég gekk aftur til dyranna. „Ég er
hræddur um að ég geti ekki hjálpað þér.
læknir. Þessi mál heyra ekki undir mig.
„En ef þú talar við yfirboðara þina.
segir okkur að minnsta kosti hvar sonur
minn er. . . hver ákæran er gegn honum.
„Égget þaðekki. þvi miður.”
Hann laut höfði. „Ég skil það. Góða
nótt. höfuðsmaður.”
Dyrnar lokuðust.
Trúiröu þvi
aö þetta sé
ódýrasti appel-
sínusafinn á
markaönum?
Ef ekki,
reiknaöu þá
sjálfur.
Floridana appelsínuþykkniö jafngildir heilum
litra af hreinum appelsinusafa frá Florida.
Mjólkursamsalan í Reykjavík
31. tbl. Vikan 4$