Vikan - 07.08.1980, Qupperneq 62
Pósturinn
Held alltaf að
allir horfi
á mig
Kæri Póstur!
Eg vona að þú sért i góöu
skapi og að Helga sé södd, ef
svo er þá vonast ég til að þú
birtir bréfið. Svo er það vanda-
málið: Þannig er málið með
vexti að ég er með svo mikia
minnimáttarkennd. A lltaf þegar
ég fer í bíó þá þori ég ekki
J'ram I hléinu, ég held alltaf að
allir séu að horfa á mig.
Vinkonur mínar halda að ég sé
eitthvað klikkuð. (Þú þarft ekki
að halda að ég sé svo hallœris-
leg og það sé þess vegna), ég
stend tímunum samanfyrir
framan spegil áður en ég fer út.
Jœja, ég vona að þú birtir
bréftð.
Bœ. bæ. Ein að norðan
Þú hittir ágætlega á, Pósturinn
er í sólskinsskapi og Helga
nýbúin með stóran bréfabunka,
er reyndar svo troðfull að hún
hefur ekki einu sinni lyst á bréfa-
klemmum.
Það er varla um annað að
ræða fyrir þig, en reyna að snúa
gersamlega við blaðinu. Minni-
máttarkennd er einkennilegt
fyrirbæri, sem hefur þann
slæma galla að stækka, ef henni
er veitt of mikil alúð og athygli.
Til þess að losna undan þessu
fargi verður þú þvi að hætta
gersamlega að leiða hugann að
minnimáttarkenndinni, neita að
hún geti verið þér til trafala.
Líttu alls ekki í spegil áður en
þú ferð út úr dyrunum heima
hjá þér og kærðu þig kollótta
um, hvort þú ert hallærisleg eða
ekki. Þegar þú svo ert hætt að
hugsa ótakmarkað um útlit þitt
og fleira þvílíkt hverfur þessi
tilfinning af sjálfu sér. Það er
algengt á þínum aldri að halda
að allir séu að brjóta’heilann uni
útlit annarra, en það er mikill
misskilningur. Þú getur treyst
því að flestum finnst mestu
skipta sitt eigið útlit og leiða
sáralítið hugann að öðrum,
þannig að líklega gefa fæstir sér
tima til að einblína á þig, hvort
sem þú ert óvenjuhallærisleg
eða afburðafögur.
Þannig er
málið að . . .
Kæri Póstur!
Hvernig eigum við að losna
við vörtur? Við erum áskrif
endur að Vikunni og viljum
þakka allt gamalt og gott I
henni. Við erum þrjár og erum
I vandrœðum. Þetta er I fyrsla
skipti sem við skrifum þér og
vonum að þú svarir. Þannig er
málið að við erum með vörtur.
Hvað eigum við að gera I
þessu?
Þrjár að austan.
P.S. Vonum að Helga sé södd.
Vörtur ættuð þið að losna við
með því að kaupa í næstu lyfja-
búð efni, sem drepa slíkan
ófögnuð. Þar er til dæmis
eitthvað, sem kallast isvatnsedik
og mun bráðdrepandi fyrir
vörturnar. Skyldi það ráð síðan
ekki nægja í öllum tilvikum
verðið þið að leita læknis og
biðja hann að brenna þær af.
Gamalt húsráð hermir að
vörtur skuli sleikja um stund,
þegar viðkomandi hefur varla
opnað augun á morgnana. Ein-
hver efni, sem sitja i niunnvatn-
inu eftir nóttina eiga að hafa
svipaða verkun og ísvatnsedikið.
Hvort það dugir veit Pósturinn
ekki, en þetta notaði fólk hér
áður fyrr og taldi árangurinn
býsna góðan.
Að deyja úr
pennavinaskorti
Hæ, hæ frábœri Póstur!
Við erum hérna tvær píur
sem erum að deyja úr penna-
vinaskorti en þú getur hjálpað
okkur og geftð okkur vonina
um lífið á ný ef þú vilt með því
að segja okkur nafn á ein-
hverju blaði á Ítalíu sem við
getum sent bréf til og beðið um
pennavini en ekki nefna neinn
pennavinaklúbb, við erum
búnar að fá okkur fullsaddar af
þeim. Með fyrirfram þökk fvrir
birtinguna. A uður og Helga.
Þarna zí Pósturinn svo sannar-
lega á gati. En þó, þekkið þið
ekki einhvern sem hefur farið í
sólarlandaferð til Ítalíu eða er að
undirbúa að fara í eina slika? Ef
ekki gætu ferðaskrifstofurnar
hlaupið undir bagga með ykkur
og tekið bréfið ykkar með I
næstu ferð. Og svo má einnig
reyna ítalska aðalkonsúlatið,
sem er til húsa að Skúlatúni 4,
síminn er 11055.
Reynið allt sem þið getið til
þess að bera ykkur eftir ítölskum
pennavinum því að deyja úr
pennavinaskorti hlýtur að vera
ógnvekjandi dauðdagi, svona
einmitt þegar framtíðin blasir
við ykkur. Hvað var að þessum
ágætu pennavinaklúbbum?
Alltaf
einmana og vinirnir farnir
Elsku póstur!
Ég vona að þú getir hjálpað mér, því mér leiðist svo.
Mér finnst ég vera svo einmana. Ég á engan góðan vin
og mérfinnst það svo leiðinlegt. Þegar mér leiðist þá verð ég
svo skapvondur og súr og þá segja þau hér heima að það sé
von að enginn vilji vera með mér þegar ég er svona leiðin-
legur. En ég er bara svona þegar ég er einmana.
Eg hef átt vini en þeir eru allir hættir að vera með mér.
Þeir sem ég er stundum með eiga allir aðra bestu-vini, og ég
fæ bara að vera með þegar það eru margir. Eða þegar
bestu-vinirnir eru ekki heima þá koma þeir kannski til mín í
hallæri. Ég hef reynt að vera með einni klíku en mér ftnnst
ég ekki passa þar inn í. Og hinir vilja ekkert með mig hafa.
Ég er í tónlistarskóla og í íþróttum og hef oft mikið að
gera á daginn. Mér finnst líka gaman að tala um músík. En
mérfmnst þau ekki skilja neitt svoleiðis. Mérfinnst líka
gaman að fara í bíó, og samt láta krakkarnir mig aldrei vita
þegar þau fara í bíó!
Hvað á ég að gera? Eg verð alltaf skapverri eftir því sem
tíminn líður! Og allt út af þessu.
Mér finnst Vikan ágætt blað nema þegar eru löng viðtöl,
sem taka allt plássið.
fí/poo
Einn einmana
Það er frekar neikvætt að sitja úti í horni í slæmu skapi og
furða sig á hvers vegna í ósköpunum allir aðrir gera sér ekki
ferð til að heimsækja þennan þunglynda durt og reyna að
draga hann út á lífið. Ef allir hugsuðu eins og þú yrði fremur
lítið um mannleg samskipti. „Þau láta mig aldrei vita þegar
þau fara í bió”! Gæti ekki verið að þeim fyndist komið að þér
að halda sambandinu við, nú eigir þú að koma af sjálfsdáðum
og endurgjalda þeirra heimsóknir. Ef þú ert svo auk skólans í
bæði tónlistarskóla og stundar íþróttir gætu verið ófáar
ferðirnar sem vinirnir hafa grip.ið í tómt heima hjá þér.
Aðalatriðið er að leyfa sér alls ekki þann mikla munað að
fara í heilmikla fýlu og reyna ekkert að gera af sjálfsdáðum til
að breyta því ástandi. Erfitt getur reynst að snúa blaðinu við og
ekki hægt að ætlast til þess að aðrir sjái um að koma hlut-
unum í rétt horf. Hresstu þig við, af bréfinu að dæma gætirðu
verið á miðjum áttræðisaldri og einblíndu nú á næstunni á
björtu hliðarnar á tilverunni. Þú ert raunverulega ekkert
leiðinlegri en aðrir og ættir ekki að vera lengi að finna ein-
hvern besta-vin. Á þínum aldri (að áttræðisaldrinum
slepptum) eiga menn oft í erfiðleikum með að falla að
umhverfinu og finna sér fastan stað í tilverunni. Þetta kemur
hins vegar svo sannarlega með aldrinum og Póstinum er ekki
grunlaust um að þú gerir að auki of rniklar kröfur til að falla
alveg í sama form og allir hinir.
bz Vikan 32. tbl.