Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 3
Margt smátt
írskir brandarar
Það var í hernum. Herlæknirinn var að
kanna hvaða varúðarráðstafanir væru
gerðar í sambandi við vatnið, sem var
ekki allt of hreint.
„Við sjóðum það fyrst,” sagði
liðsforinginn, „síðan síum við það.”
Læknirinn kinkaði kolli ánægður.
„Og svona til frekara öryggis,” bætti
liðsforinginn við, „þá drekkum við bara
bjór.”
Írskur skartgripasali hringdi i dauðans
angist i lögregluna. „Ég hef verið
rændur,” sagði hann. „Það var fill sem
rændi mig.”
„Hvernig fíll?” spurði lögreglu-
varðstjórinn. „Indverskur fíll með stutt
eyru eða afrískur með stór eyru?”
„Hvernig i ósköpunum ætti ég að vita
það?” sagði skartgripasalinn. „Hann var
með nælonsokk yfir hausnum.”
tri fór til sálfræðings. „Læknir,” sagði
hann, „má ég spyrja þig tveggja
spuminga?”
„Auðvitað,” sagði sálfræðingurinn.
„Getur maður orðið ástfanginn af
fíl?”
„Nei, svo sannarlega ekki,” sagði
sálfræðingurinn. „Hin spurningin?”
„Þekkirðu einhvern sem þarf á mjög
stórum trúlofunarhring að halda?”
Tveir írar voru saman með skartgripa-
verslun. Dag nokkurn fóru þeir saman í
hádegismat. „Guð minn góður,” sagði
annar, „við skildum peningaskápinn
eftir ólæstan!”
-,,0g hvað með það?” sagði hinn.
„Erum viðekki báðir hér?"
Ung irsk stúlka var I strætó í London og
enskur séntilmaður bauð henni sæti.
„Nei, takk,” sagði hún, „ég er að flýta
mér.”
Íri nokkur hafði haldið framhjá konunni
sinni í mörg ár. Loks komst konan hans
að því og sagði honum frá vitneskju
sinni. „Og hvað með það?” sagði hann
hlæjandi. „Veistu að ég þarf að hitta
litla engilinn minn í kvöld. Og veistu
hver ætlar að hjálpa mér að taka til
fötin? Þú! Og veistu hver ætlar aðbursta
skóna mína? Þú! Og veistu hver ætlar að
binda bindishnútinn fyrir mig?” „Já,"
sagði hún, „kistulagningarmaðurinn!"
Englendingur var að hrósa fugla-
hræðunum sínum. „Þær eru svo góðar
að ekki einn einasti fugl hefur komið
nálægt býlinu okkar þetta árið.”
„Það er aldeilis,” sagði írinn, „en
okkar eru svo góðar að fuglarnir komu
aftur með allt kornið sem þeir stálu i
fyrra.”
Glaumgosi kom inn á veitingahús og barst
mikið á. Hann sagði við þjónustustúlk-
una: „Láttu mig nú fá steik, salat og
nokkur falleg orð.” Stúlkan kom að
vörmu spori með það sem pantað var.
„En hvað með nokkur falleg -orð?”
sagði maðurinn.
„Þú ættir að sleppa steikinni,”
hvíslaði stúlkan.
Hvernig þekkir þú írskan blýant?
Hann er með strokleðri báðum megin.
Þegar lestin rann af stað sáust tveir Írar
hlaupa á harðaspretti eftir brautar-
pallinum. Tveir þeirra stukku upp I
lestina en sá þriðji varð eftir á pailinum
og ætlaði alveg að ærast af hlátri.
„Að hverju ertu að hlæja?” spurði
annar brautarvarðanna.
„Þessum tveim þarna,” sagði maður-
inn. „Þeir komu hingað til að fylgja mér
I lestina.”
Lögreglumaður sá Íra nokkurn sitja hátt
uppi I eikartré og spurði hvað hann væri
aðgera þarna uppi.
„Ég veit það eiginlega ekki,” sagði
maðurinn. „Ég held helst að ég hljóti að
hafa sest á fræ.”
Hvaðgerir þú ef Íri fleygir pinna i þig?
Hleyp eins og vitlaus maður því hann
er kannski með handsprengju í
kjaftinum.
Hvað gerir þú ef Iri fleygir handsprengju
íþig?
Tekur pinnann út og fleygir henni til
baka.
Viska af öllu tagi
„Það er ekki nóg með að ég noti aill það
vit sem ég hef til að bera heldur líka allt
sem égget fengið að láni."
„Það besta sem éggetgert fyrir þig er aö
endurbœta mig."
..Það er alltaf til auðveld lausn á öllu...
þægileg, einföld.. ogröngi"
„Þú þarft ekki að vinna meira — heldur
betur!"
„ Við ættum ekki að keppa að því að
verða betri en aðrir í lífmu heldur betri
en við sjálf erum nú."
„Ef guð þurfti að fara i felur myndi
hann leita fylgsnis í manni, því þar
myndi enginn leita að honum."
„Ekkert er eins þreytandi og það sem
maður á eftir að gera."
' \ þessarí Viku
GREINAR OG VIÐTÖL:
4 Nú er þaö 3. hlutinn í Sumargetraun Vikunnar.
8 Að hjálpa öðrum til sjálfshjálpar. Sr. Bernharður
Guðmundsson í viðtaíi við Vikuna.
14 Af hverju rífumst við? Álfheiður Steinþórsdóttir útskýrir.
16 Esjuberg er komið í lag. Jónas Kristjánsson skrifar
um veitingahús.
18 Hér segir af húsinu Nýlendu sem stóð við samnefnda
götu.
24 Frönsk menning á íslandi.
26 Evrópa séð af mótorhjóli. Tvær hressar stúlkur lögðu lönd undir hjói á dögunum.
32 Sólin á sínum stað og litríkt mannlíf: Vikan kynnir Spán.
SÖGUR:
36 Stúlkan frá Madagaskar. 4. hluti framhaldssögunnar.
42 Mánudagur þrettándi: Willy Breinholst.
46 Sambúð. Smásagan.
ÝMISLEGT:
2 Margt smátt.
22 Uppfinningar. Ýmislegt ómissandi, svo sem þægindastólar fyrir kindur og vindreiðhjól.
44 Kvenleg kyntákn. Ýmislegt smálegt um frægustu kyn- táknin fyrr og síðar.
50 Eldhús Vikunnar og Klúbbs matreiðslumeistara: Svínapottréttur.
VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Sigurður Hreiðar Hreiðarsson. Blaðamenn: Anna Ólafsdóttir
Björnsson, Borghildur Anna Jónsdóttir, Jón Ásgeir Sigurðsson, Þórey Einarsdóttir. Útlitsteiknari:
Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Ragnar Th. Sigurðsson. RITSTJÓRN I SÍÐUMÚLA 23, simi
27022. AUGLÝSINGAR: Birna Kristjónsdóttir, sími 85320.
AFGREIÐSLA OG DREIFING í Þverholti 11, simi 27022. Pósthólf 533. Verð í lausasölu 18,00 nýkr.
Áskriftarverð 60,00 nýkr. ó mónuði, 180,00 nýkr. fyrír 13 tölublöð órsfjórðungslega eða 360,00 nýkr.
fyrir 26 blöð hólfsórslega. Áskríftarverð greiðist fyrirfram, gjalddagar nóvember, febrúar, mai og
ógúst Áskríft i Reykjavík og Kópavogi greiðist mónaðaríega.
Um mólefni neytenda er fjallað i samróði við Neytendasamtökin.
Forsíða
Þessa mynd af mótorhjólakempun-
um Valgerði og Sigurborgu tók
Ragnar Th. Sigurðsson. Frásögn af
ferð þeirra um Evrópu á uppáhalds-
farartækinu fyrirfinnst svo á siðum
26-31.
XX. tbl. Vikan 3