Vikan


Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 47

Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 47
Smásagan Það var góðvild, það var heiðarleiki, en kannski var það ekki ást. Góðvild — sem er svo miklu veikari tilfinning en ást — hlaut að eyðast með aldrinum. Kannski, já, sennilega hafði farið þannig með hinar stúlkurnar hans. Hann hafði aldrei minnst á þær en hann hafði ekkert á móti því að tala um þær þegar Eileen vakti máls á þeim. „Hvað varð um þær?” spurði hún eins kæruleysislega og henni var unnt. „Hentirðu þeim út?” „Nei, auðvitað ekki. Avril fékk vinnu í Ameríku. Og Cathy vildi eignast börn svo að hún gifti sig.” Eileen vildi gjarnan trúa honum enda var þetta sennilegt. Það leit hins vegar út fyrir að Colin hefði búið með hvorri stúlku í eitt ár eða „rúmlega ár”. Það virtist ekki langur tími. Og Eileen hafði búið með honum í tíu mánuði. Kvöld nokkurt, nokkrum vikum seinna, byrjaði hún að horfa á sjónvarpsleikrit eftir höfund sem hún var hrifin af. Þá var hún nær hætt að fara á fyrir- lestra og fundi; hún naut einskis án Colins. Hún hafði sagt honum frá leikritinu og hann sagði að það virtist áhugavert. Um leið og það byrjaði fór hún inn til hans og lét hann vita. „Ég kem eftir andartak, ég á von að símtali,” sagði hann. Hann lét ekki sjá sig í hálftíma. Þá horfði hann á leikritið um stund og fór svo inn til sín. Nú, sagði hún við sjálfa sig, það er ekki auðvelt að ná þræðinum þegar maður kemur inn í miðja mynd en hún hafði hlakkað til að ræða sjónvarps- myndina við hann. Hann kom ekki til hennar þegar myndin var búin. Hann hafði aldrei unnið svona lengi, honum þótti gott að hvíla sig í sófanum, haldandi utan um hana með öðrum handleggnum og með glas í hinni hendinni. Hún fór aftur inn á vinnustofuna. „Langar þig ekki I drykk, Colin? Klukkan er orðin ellefu.” Hann leit á hana og hún gat ekki varist þeirri hugsun að um stund vissi hann ekki hver hún var. „Veistu að ég þarf stundum að fá að vera einn?” sagði hann blíðlega. Hún hikaði, greip um húninn. „Jæja,” sagði hún. „Ég ætla í rúmið.” Hún lá og beið hans um stund en sofnaði svo. Þetta var í fyrsta skipti sem þau höfðu ekki háttað saman. Henni fannst hún hafa sofið afar þungt, þegar hún vaknaði, likt og hefði hún tekið svefnlyf, en einnig að sig hefði dreymt mjög illa þó að hún gæti engan veginn munað drauminn. Á baðinu — hún fór alltaf fyrst á fætur — mundi hún eftir því að þau höfðu ekki elskast um kvöldið. Hún hugsaði um allt kvöldið og velti því fyrir sér hvaða mistök hún hefði gert. Kannski var það út af leikritinu — en hann hafði sagst vilja sjá það. Þau rifust aldrei eða þrættu. Kannski væri það betra ef þau gerðu það, eðlilegra. En hún óttaðist hættuna af rifrildi. Rosemary að heiman hringdi og sagðist vera að koma til London — „til að losna við sveitaloftið,” sagði hún glaðlega. Hún hafði búið hjá Eileen í litlu íbúðinni hennar og sofið á dívan í stofunni. Gat hún fengið að búa hjá Eileen og Colin? Eileen mundi að hún hafði stært sig af „stóru íbúðinni hans Colins”. Hún svaraði: „Ég skal láta þig vita.” Colin sagði að það væri í besta lagi. Hann gat flutt skrifborðið og skjala- skápana inn I stofu og svefnsófann inn í vinnuherbergið. Hann hafði aldrei hitt Rosemary fyrr en hann var viss um að sér litist vel á hana fyrst hún var besta vinkona Eileens. Fyrsta kvöldið fóru þau með Rosemary á grískt veitingahús. Næsta kvöld fékk Colin vinnufélaga sinn til að koma með þeim I leikhúsið. Þriðja kvöldið, laugardagskvöld, voru Colin og Eileen boðin í partí og þau tóku Rosemary með sér. Þau höfðu alltaf setið og masað saman langt fram yfir miðnætti. Síðasta kvöldið, eftir veisluna, var klukkan hálfþrjú. Rosemary kom viss um að hún yrði hrifin af Colin, enda var hún það. „Mikið er hann sætur!” sagði hún þegar Eileen hjálpaði henni að taka upp úr töskunum. Og Colin kunni vel við Rosemary. Það virtist engu máli skipta, eins og Eileen hafði haldið, þó að Rosemary væri hálfsveitaleg. Hún kunni margar skrýtlur um „fólkið” í Devon og skritna siðið þess. Eileen hafði ekki séð Colin hlæja jafnmikið og oft lengi. Allt sem Eileen vissi og kunni — skoðanir sem hún hafði fengið í háskól- anum og seinna, stjórnmálaskoðanir hennar, bækurnar sem hún hafði lesið — var vegið og léttvægt fundið. Henni fannst hún vera höfð út undan (hún hafði heyrt flestar sögur Rosemarys) og sneri sér að félaga Colins, John, sem henni fannst frekar leiðinlegur. John fór rúmlega tólf en hvorki Colin né Rosemary gerðu sig líkleg til að fara að hátta og Eileen fannst hún einhvern veginn vera fyrir. Loks sagði Rosemary: „Það er orðið framorðið fyrir sveita- stelpu,” og Eileen sá að Colin leiddist að sjá af henni. Morguninn eftir töluðu Rosemary og Colin enn saman eins og samtalið hefði aldrei rofnað. Það var furðulegt hvað þeim samdi vel. Þeim kom betur saman en Colin og Eileen nokkru sinni. Það var enginn vafi á því, hugsaði Eileen þegar hún fór inn til að ryksuga i stofunni, að Colin fannst Rosemary aðlaðandi. Rosemary hafði þreknað um mittið og hörundið var ekki jafnfagurt og það hafði verið, sennilega var henni alveg sama. Hún var ekki lengur „sæt stelpa”. En hún var girnileg, því varð ekki neitað — girnilegri og meira sexí en hún hafði verið fyrir hjónabandið. Karlmaður gat ímyndað sér hana hömlulausa og frjálsa I rekkjubrögðum: með öðrum orðum, skemmtilega. Eileen skarhmaðist sín. Var hún afbrýðisöm við Rosemary — bestu vinkonu sína? Það var hlægilegt — og skammarlegt. Rosemary skemmti sér greinilega vel í London, skemmti sér sérstaklega við að daðra við Colin. Það var einhver orða- laus skilningur milli þeirra sem engum þurfti að segja en hefði hljóðað eitthvað á þessa leið: „Já, það hefði verið gaman ef allt hefði ekki verið svona.” Það var líka augljóst að Rosemary hafði ekki orðið hugsað til Donalds frá því að hún settist upp í lestina. Það var gjörólíkt því hvernig Eileen leið þegar hún var ekki nálægt Colin. Undarlegt. Hjónabandið, sem Eileen hafði iitið á sem fangelsi, var það ekki. Rosemary var frjáls þegar hún þarfn- aðist þess, því að frelsi eða frelsisskortur er hugarástand. Hún var frjáls því að hún var örugg. Hún átti eitthvað með Donald sem var of sterkt og mikið til að auðvelt væri að varpa því á glæ — of dýrmætt til að sleppa því. Colin og Eileen áttu ekkert slíkt. Eileen var ekki frjáls v'egna þess að hún var ekki örugg. Þau fylgdu Rosemary bæði á brautar- stöðina á sunnudaginn. Hún var sæl til síðustu stundar og kyssti bæði Eileen og Colin. „Þetta hefur verið unaðslegt,” sagði hún. „Þú veist heimilisfangið og ert alltaf velkomin,” sagði Colin. Lestin ók á brott. Rosemary veifaði til þeirra. Brátt kæmi október og Eileen og Colin hefðu búið saman í eitt ár. Hún vissi ekki hvort hann myndi eins árs sambúðardaginn. Það var ekki eins og brúðkaupsdagur en minnti þó á eins árs giftingarafmæli. Hann mundi það, kom með dýr blóm og bauð henni út að borða — á gríska veitingahúsið sem þau höfðu farið á með Rosemary fyrir nokkrum vikum. Þau lentu í hellirigningu á heim- leiðinni. Fyrir ári hafði dagurinn verið gullinn og bjartur. Nú var hann votur, grár og ömurlegur. Hún varð að fara að heiman um helgi i nóvember til að vera við fyrirlestra. Það var engin skylda að fara en yfir- maður deildarinnar bjóst víst við því að hún færi. Henni leið illa allan tímann — þó að áður fyrr hefði hún boðist til að fara allt slíkt og alltaf skemmt sér vel. Hún vissi að hún vann ekki jafnvel og áður, yfirmaðurinn hlaut að hafa tekið eftir þvi, kannski krakkarnir líka. Colin fór meira út en hann hafði nokkru sinn gert þegar hún kom heim aftur. Hann sagðist hafa ákaflega mikið að gera. Hann kom ekki heim fyrr en um sjöleytið og var allar helgar að heiman í húsaskoðun. Það var leiðinlegt að vera ein í íbúðinni því að sólin skein sjaldan á þessum árstíma. Hún var ekki hrifnari af íbúðinni en fyrr og fannst enn síður að hún ætti þar heima. Þau elskuðust reglulega, en núna — þó að hún hefði ekki viljað sleppa rekkjubrögðunum — var eitthvað sálar- laust við það, hvað allt var reglubundið. Það var eins og þau gerðu þetta vegna heilsunnar, eins og hvert annað trimm. Hún velti því fyrir sér hvort Donald og Rosemary hefðu elskast reglulega á hverju kvöldi í sex ár, nema þegar hún lá á sæng. Kannski ekki — þegar fólk var gift var það ekkert hrætt við að nú liti út fyrir að ástin væri að þverra. Hún varð enn sannfærðari en áður um að hún væri vonlaus rekkjufélagi. Svo fékk hún flensuna. Það var ekkert skrítið — allir voru með flensuna — en hún varð fárveik. Hún hélt sig í rúminu og reyndi að lesa það sem hún hafði vanrækt að lesa, en það rann úr augun- um á henni. Colin var bæði góður og þolinmóður, hann keypti í matinn og eldaði þó að hann væri önnum kafinn. „Þú þarft ekki að vera inni þó að ég sé veik,” sagði hún. Hann hikaði. „Kannski ég skreppi í bíó.” Hann fór þrisvar I bíó vikuna sem hún var veik. Eða ef ekki í bíó þá eitthvað annað. Hann sagði ekki hvar hann hefði verið og hún spurði einskis. Henni leið svo illa og það rann svo úr augunum á henni að hún vissi ekki hvort hún var að gráta eða ekki. Nokkrum dögum seinna, þegar hún var byrjuð aftur í skólanum, varð henni litið í spegilinn. Hún hafði sem minnst horft á sjálfa sig í spegli undanfarið — kannski frá því að Rosemary fór. Hún hafði breyst. Það var ekki út af flens- unni, það var annað og meira. Hún var hætt að vera sæt stelpa, en hafði ekki orðið aðlaðandi kona. Hún var uppþornuð kennslukona — það var lóðið! Aumingja Colin hafði lent í klónum á litlausri leennslukonu! Svo komu jólin. Eileen hafði alltaf farið heim til foreldra sinna um jólin og verið þar nokkra daga. Nú fór hún ekki. Hún skrifaði og sagðist vera með flensu, sem var sennilegt því að hún hafði ekki látið þau vita þegar hún lá í flensunni. Áður fyrr hafði hún elskað jólin, kalkúninn og jólaglöggið heima, og boðin í London seinna. Síðustu jól höfðu verið unaðsleg en hún hlakkaði ekki til jólanna nú. 22. tbl. Vikan 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.