Vikan


Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 30

Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 30
ég hafði kynnst á leið þeirra um Island á mótorhjólum. Þaðan fórum við til Austurríkis og inn í Sviss, milli Alpafjall- anna með stuttum áningum. Þar vantaði ekki jarðgöngin og voru þegar nokkur að baki þegar við komum að lengstu göngunum, sjö kílómetrar! Við ítölsku landamærin skipti Bogga öllum dollurunum i svissneska franka og við lögðum af stað til Milanó án þess að hafa eina líru meðferðis. Því athæfi áttum við eftir að sjá rækilega eftir því ekki leið á löngu þar til við þurftum að fylla hjólið af bensíni og okkur af kökum. Rennt var inn á næstu bensin- stöð og þar var skilti sem á stóð „servicio soci” og Bogga þýddi það á sinni ágætu ítölsku „sjálfsþjónusta”. Við fylltum tankinn og gerðum okkur líklegar til að borga en afgreiðslumennirnir voru ófá- anlegir til að taka við seðlunum. Töluðu hvorki ensku né þýsku og gátu ómögu- lega skilið að við vildum borga bensín sem við höfðum þegar tekið og sett á tankinn. Eftir mikið þóf kom þama að náungi sem talaði ensku. Hann fræddi okkur á því að „servicio soci” þýddi viðgerðar- þjónusta og ráðlagði okkur að aka beint í burtu. „Bensiniðer dýrt á ítaliu,” sagði hann glottandi og talaði eitthvað við afgreiðslumennina. Svo sneri hann sér að okkur og sagði best að hendast bara af stað því bensínkörlunum hefði hann sagt að okkur vantaði landakort! Það var ekki um neitt að velja fyrir okkur og því ókum við af stað sem leið lá þjóðveginn til Rimini. En ég varð nú fljótlega ergileg yfir þessum andsk . . . Itölum og þeirra akstursmáta svo við fluttum okkur yfir á hraðbrautina. í Rimini hittum við stelpurnar, sem við höfðum mælt okkur mót við, og leigðum með þeim hjólhýsi. Þar hvildum við okkur nokkra daga á ströndinni fyrir síðari hluta ferðarinnar. Næst lá leiðin yfir Appeninafjöllin og þar fórum við þjóðveginn en ekki hrað- brautina — að vilja Boggu! Þar lentum við bæði i rigningu og þoku og hinir bugðóttu ítölsku fjallvegir voru alveg að gera útaf við miðtaugakerfið i mér. Þegar við loksins komumst niður úr fjöllunum fengum við okkur stóra og góða ítalska máltið og torguðum öllu. Síðan lá leiðin til Frakklands, inn í Mónakó og til Nizza. Mótorhjólamótið mikla En hápunktur ferðarinnar var að komast á mikið mótorhjólamót sem haldið er í Suður-Frakklandi og heitir Bol D’or. Þar vorum við i þrjá daga og tjölduðum, ókum um og skoðuðum hin margvíslegustu mótorhjól. Þarna var saman kominn jafnmikill mannfjöldi og allir Islendingar til samans, þannig að þegar kom að hinni reglulegu Bol D’or keppni var allt orðið troðfullt og hitinn næstum óbærilegur. Keppnin stóð alveg í heilan sólarhring og um kvöldið fylgdumst við með henni í miklu mold- roki og myrkri. Meðfram girðingunni, sem var í kringum brautina, svaf fólk i hrönnum, annaðhvort í svefnpoka eða bara í gallanum einum saman. Þegar að úrslitunum kom daginn eftir var ekki nokkuð leið að finna smásmugu fyrir nettar og grannar ungar konur sem okkur þar sem sæist til brautarinnar. Því fylgdumst við með úrslitunum á einum af sjónvarpsskermunum, sem komið hafði verið fyrir vítt og breitt um svæðið, Suzuki í 1. og 2. sæti og Kawasaki i 3. sæti. Og öll liðin frá Frakklandi. Síðan ókum við í geysilegri mótor- hjólaumferð til Valence og gistum þar á heldur veraldlegu farfuglaheimili. Þaðan var haldið til Grenoble og svo til Genfar. Frá Genf til Charmonix þar sem við ætluðum með lyftunni upp á Aiguille du Midi (3842 m). Og þvilíkt! Þarna uppi var svellkalt nema á einstaka skjólbletti sólarmegin. Og fjallafegurðin, Alpakeðjan tvinn- aðist þarna eins og ekkert væri! Nú lá leiðin i gegnum Alpafjöllin að landamærum Sviss, en áður keyptum við okkur nesti sem við snæddum á leið til Bazel. Þarna var reyndar. eina skiptið sem við gáfum okkur góðan tíma i slikt og á bilastæði til hliðar við veginn drukkum við heila rauðvínsflösku. Frá Bazel lá leiðin til Frankfurt A.M. og þaðan í átt til Hannover. Þangað fórum við reyndar með miklum hraði því ekki var laust við að Sigurborg væri komin með heimþrá. 1 Hannover hittum við systur hennar og kunningja sem er í námi þar og ákváðum við að fara saman til Berlínar, bæði austur og vestur. Frá Hannover lá svo leiðin til Danmerkur aftur og þegar fólk gengur með ferða- dellu er allt hægt. Við tróðum okkur alls staðar og meira að segja þegar ferðinni átti að vera lokið síðustu dagana í Danmörku tókst okkur að troðast í ferð hjá lýðskóla. Þar græddist dagsferð til Svíþjóðar. Heim kom ég svo 1. nóvember eftir tíu vikna ferðalag og er aldeilis ekki laus við mótorhjólaáhugann ennþá. Þetta var alveg geysilega skemmtilegt ferðalag og eiginlega ekki síst gaman bara að vera á ferðinni. Mikill munur er að geta farið hvert sem mann langar til og vera ekki bundinn á einhverjum fyrir- fram ákveðnum stað. Hópferð á sólar strönd væri ekki minn draumur. Hvað gerist næst veit ég ekki, það er alls ekkert á stefnuskránni á næstu árum að fara að stofna heimili og setjast að einhvers staðar. Núna er ég að selja hjólið og ætla til Danmerkur og Þýskalands í sumar, ég þarf að ná þýskunni örlítið betur. Svo er það skólinn og framtíðin . . . það kemur svo margt til greina. m 30 Vlkan XX. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.