Vikan


Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 44

Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 44
Þórey tók saman I myndinni „10”, sem sýnd var hér fyrr á árinu, leikur Dudley Moore miðaldra lagasmið sem er að leila að konu sem hann getur gefið einkunnina 10 fyrir kynþokka. Bo Derek fær hjá honum einkunnina 11. Hún hefur verið kölluð þokkagyðja níunda áratugarins. Veggmynd af henni þar sem hún situr hálfblaut 1 fjöruborðinu, hefur selst meir en nokkur önnur veggmynd í Banda- ríkjunum. Hún er tvímælalaust vinsæl- asta kyntáknið um þessar mundir og er sloltaf nafnbótinni. Þrátt fyrir mikla umræðu um jafnrétti kynjanna og allnokkrar breytingar í þá átt spretta þau ennþá upp og lifa góðu lífi á útliti sínu, þessi ægifögru kyntákn. í síðari heimsstyrjöldinni voru aðal-”pin- up" stelpurnar Rita Hayworth, Jane Mansfield, Betty Grable og ótal fleiri. Eftir þær komu til dæmis að nefna Marilyn Monroe, Brigitte Bardot, Raquel Welch og loks Bo Derek. Sú tilhneiging að setja fagra konu á stall og tilbiðja er ævagömul. En með til- komu myndskreyttra tímarita, kvik- mynda og sjónvarps hefur dýrkun kvenlegrar fegurðar fengið nýtt yfir- bragð. í striðinu hengdu menn myndir af frægum, fögrum og þokkafullum leik- konum upp á veggi og innan á skáp- hurðir. Auk þess að hafa ánægju af að virða fyrir sér myndirnar minntu þær þá á það sem ekki var að fá og gáfu þeim vonir um betri tíð. Veggmyndir af þessu tagi hafa löngum notið meiri vinsælda meðal karl- manna en kvenna og eru til á því margar skýringar. Timarit sem eingöngu þirta myndir af nöktum og hálfnöktum karl- mönnum eru nýlegt fyrirbæri og konur eiga þeim ekki að venjast. En því er einnig haldið fram að hér sé á ferðinni enn ein staðfestingin á ólíku upplagi kynjanna. Er i því sambandi nefnt allt frá því að konur hafi ekki jafnmikinn áhuga á „þessháttar” og karlmenn og upp í það að þær séu á hærra plani andlega og hafi litla þóknun á blöðum sem leggja aðaláherslu á bera kroppa. Einnig hefur þeirri skýringu verið haldið á lofti bæði af körlum og konum að kvenlíkaminn sé einfaldlega fegurri en karllíkaminn og því áhugaverðara myndefni i náttúru- legri mynd sinni. Líklegasta skýringin felst þó i þvi annars vegar að flestir málarar, Ijós- myndarar, að ógleymdum þeim sem markaðsmálum stjórna, hafa verið karlmenn og því litið sínum augum á málin. Hér skipta ekki síður máli hefðbundin viðhorf til hlutverka kynjanna. Löngum hefur verið lagt mest upp úr útliti kvennanna, en athöfnum karlmannanna. Þau útlitseinkenni sem (til skamms tíma að minnsta kosti) hefur verið mest lagt upp úr hjá karlmönnum eru breiðar herðar, stæltir vöðvar, sem mest líkamshæð og svo framvegis. Kvenleg kyntákn Fagrar konur eiga aftur á móti að vera fingerðar, mittismjóar, grannvaxnar og þar fram eftir götunum. Þetta endur- speglar viðhorf samfélagsins til kynja- hlutverkanna. Nekt karlmanna hefur verið mikið feimnismál allt fram á síðustu ár. Það hefur alls ekki þótt til siðs að konur veltu fyrir sér þeim þáttum karllíkamans sem undir fötunum duldust. En viðhorfin hafa verið að breytast nú í seinni tíð. Augu framleið- enda hafa opnast fyrir þeim möguleikum sem þarna liggja lítt virkjaðir. Það tekur langan tíma að breyta siðferðisviðhorf- um sem þessum. Skiptar skoðanir eru síðan á þvi hvort það verði jafnrétti kynjanna til nokkurs framdráttar þó stripaðir eða hálfstrípaðir karllíkamar verði einnig gerðir að verslunarvöru. Einnig eru menn langt frá því að vera á einu máli um réttmæti nektarmynda eða mynda sem gefa holdlegt ágæti ótví- rætt í skyn. Andstaðan kemur aðallega úr tveimur ólíkum áttum. Annars vegar eru það hinir siðsömu. í þeirra augum er hvers kyns opinberun á beru holdi af- skaplega ósiðleg. Kroppur hvers og eins er hans einkamál og skal að sem mestu leyti vera hulinn annarra sjónum. Þessa skömm á nektinni má rekja til Biblí- BB — Brigitte Bardot eða Birgitta Bardott eins og hún er alltaf kölluð hér á landi. Hún þótti einstaklega fögur og sexi og tók við af Marilyn Monroe upp úr 1955. Veggmynd af Bo Derek rennblautri i flæðarmálinu er ein mest selda veggmynd í Bandarikjunum fyrr og síðar. Það er greinilega góður markaður fyrir svona skutlur. unnar. Eftir að þau Adam og Eva höfðu étið af skilningstré góðs og ills urðu þau þess áskynja að þau voru nakin og fundu í snarhasti fíkjuviðarblöð til að hylja sig með. Það er athyglisvert að þau sjálf töku að skammast sín fyrir nektina eftir að þau vissu skyn góðs og ills. Þannig hefur nektin ætið verið tengd syndinni i krist- inni siðfræði. Þarna felst sú þversögn að þar sem maðurinn (karl og kona) er samkvæmt sköpunarsögu Biblíunnar æðstur vera á jörðinni og skapaður í Guðs mynd hefur hann væntanlega lítið til að skammast sín fyrir. Hinn hópurinn sem látið hefur í ljós vandlætingu yfir hvers kyns kroppa- sýningum eru jafnréttissinnar. Þar er ekki á sama hátt um skömm á nektinni að ræða. Það sem þeir finna málinu til foráttu er fyrst og fremst sú litilsvirðing á konunni sem þeim þykir þarna koma fram. Líkami konunnar gerður að aðal- atriði og þeirri hugsun þar með lætt inn að mikilvægasta hlutverk konunnar sé 44 Vikan 22.tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.