Vikan


Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 8

Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 8
Texti: Jón Ásgeir Ljósm.: Ragnar Th. Fyrir nokkrum árum hélt ungur prestur ásamt fjölskyldu sinni til Afríku. Þau settust að í Addis Abeba, höfuðborg Eþiópíu. Séra Bernharður Guðmundsson hafði þar merkileg- an starfa og kynntist með því móti mörgum hliðum mannlegs samfélags i Afríku. Vikan bað séra Bernharð að segja lesendum frá Afríkudvöl sinni. E var æskulýösfulltrúi Þjóðkirkj- unnar hér og fékk beiðni frá Lútherska heimssambandinu um að sækja um starf sem þá var laust og hét „Audience Relations Officer” (fulltrúi sem sér um samskipti við áheyrendur) við útvarps- stöð þess i Addis Abeba. Starfið fólst i því að sjá um tengslin við hlustendur. Lútherska heimssambandið rak þessa útvarpsstöð og frá henni var útvarpað á 18 tungumálum um alla Afríku. Hún var stofnuð árið 1963 og hefur dagskrár- stofur í mörgum löndum, til dæmis Indlandi, Líbanon, Kairó í Egyptalandi, Kamerún, Nígeríu, Madagaskar, Tansaníu og víðar. Dagskrárstofumar framleiða dagskrár á sínu eigin máli og sendu segulbönd með dagskránum til Addis Abeba, þar sem var sendistöð svona í líkingu við Vatnsendastöðina hér. Þessir afl- miklu sendar í Addis sendu þessar til- búnu dagskrár út á ákveðnum tímum. Þarna voru tveir 100 kílóvatta stutt- bylgjusendar sem sendu út tvær dagskrár samtimis. Kannski var send dagskrá á tungumálinu farsi til arabalandanna en fulfutde til Kamerún. Útvarpsstöðin var frábrugðin öðrum stöðvum að því leyti að um 70 prósent dagskránna voru fræðsluþætíir og þróunarþættir en 30 prósent voru það sem kalla má trúarlega þætti. Samt sögðum við að öll dagskráin væri kristin, vegna þess að það sem hlynnir að manninum sem heild er kristinn útvarps- þáttur. Útvarpsþáttur þar sem fólki var kennt aðsjóða vatnið var í þeim skilningi krist- inn dagskrárþáttur. Sama gilti um fréttaþættina. Reyndar var þetta eina útvarpsstöðin í Afríku þar sem fréttir voru óritskoðaðar. Af þeim sökum var geysimikið hlust- að á fréttir frá stöðinni. Til dæmis þegar Súdan fékk sjálfstæði árið 1972 bað Lagú hershöfðingi um að okkar stöð flytti fréttina fyrst, vegna þess að hann sagði að þetta væri stöðin sem allir her- mennimir hlustuðu á og tækju mark á. Stjórnvöld ýmissa Afríkuríkja álíta að fjölmiðlar séu til þess að styðja stjórn- kerfið. Þess vegna hleypa þau ekki að nema því sem þau telja sér hagstætt. En þarna var útvarpsstöð sem sendi fréttir á 9 tungumálum. Við fengum fréttir frá Reuter og Associated Press og TASS fréttastofunni og auk þess vorum við komin meðfréttamiðlun frá Indlandi. Þarna störfuðu menn af 30 þjóðernum og þeir gátu alltaf lagt mat á fréttir sem komu af heimaslóðum. Það kom kannski frétt um Nígeríu i gegnum Reuter-fréttastofuna. Hún var þá þorin undir Nígeríumanninn §em vann hjá út- varpsstöðinni til þess að vita hvort túlkun á málum í Nígeriu væri rétt. Stjórnvöld annarra ríkja höfðu engin áhrif á fréttasendingarnar og þeir dagskrárþættir sem voru framleiddir í þeirra eigin landi snerust ekki um frétta- efni heldur um þróunarmál og trúmál. Það reyndi því ekki á afskipti stjórn- valda annarra ríkja af dagskrá „Radio Voice of the Gospel”. Enda fengum við ævinlega vegabréfsáritanir sem við báðum um — nema til Suður-Afríku. Einu fréttirnar sem voru ritskoðaðar hjá okkur voru þær sem sendar voru á amharikumáli til Eþíópíu sjálfrar. Eftir að marxíska stjórnin þar tók við völdum leyfði hún ekki óritskoðaðar fréttir i heimalandinu. En það var í lagi að senda hvað sem var tii annarra landa. Starfslið fréttastofunnar hjá „Radio Voice of the Gospel” var mjög vel menntað. Til dæmis voru alltaf tveir menn i tveggja ára leyfi frá BBC I Englandi að starfi við útvarpsstöðina. Þeir voru um leið fréttaritarar BBC I Eþíópíu. Þetta var i raun uppeldisstöð fyrir fréttamenn. Þarna fengu þeir mikla innsýn í málefni Afríku og urðu sérfræðingar um þau þegar þeir sneru heim aftur. Samvinna var höfð við fleiri erlendar útvarpsstöðvar, eins og til dæmis norska útvarpið, um að senda menn til Addis Abeba. Bæði vegna þess hve starfsliðið var fjölfrótt um málefni Afríku og vel þjálfað og vegna þess hve sendarnir voru öflugir jsótti fréttaþjónusta stöðvarinnar mjög mikilvæg um alla Afríku. Tengslin við hlustendur Mitt starf var að annast tengslin við hlustendur, meðal annars að sinna þeim 10.000 bréfum sem bárust til stöðvarinnar i mánuði hverjum. Þetta voru bréf frá fólki sem hafði athuga- semdir fram að færa við dagskrárþætti. Menn höfðu margar spumingar varðandi trúarlegu dagskrárþættina. Þeir voru sendir til héraða þar sem kristin trú hafði ekki verið boðuð áður og menn skrifuðu til að spyrja til dæmis: „Hvað áttu við með fyrirgefningu?” Séra Bernharður Guðmundsson í Afríku: V 8 Vikan ZZ. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.