Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 15
Fjölskyldumál
— e/2 oyjarQCi' Cj'Uyc^.
Stcj £/JzA<U*yi ctcf
AjUfHO. sO'O'6rz<ffa
hcJytcoyyc ~*/QjUrt
/
bfrt&njncjLtv
ist við?
raunhæf leið til að ráða bót á ósætti. Sú
leið neyðir hann í andstöðu og vörn fyrir
eigin persónu og kallar á reiði og sárindi
yfir að vera ekki „nógu góður”.
Forsenda fyrir þróun í sambandi hjón-
anna er því viðurkenning þeirra á hvort
öðru sem einstaklingum með mismun-
andi eiginleika og þarfir. Þetta þýðir í
reynd að bæði verða að gera sér grein
fyrir að þau geta ekki og þurfa ekki að
uppfylla allar þarfir hvort annars. Ef til
dæmis áhugamál eru á ólíkum sviðum er
mikilvægt að finna leiðir til að geta sinnt
þeim til dæmis með vinum eða vinnu-
félögum.
Að sjálfsögðu þarf og verður að finna
lausnirnar í sameiningu. Málamiðlanir,
að gefa eftir og taka tillit, eru allt liðir i
þeirri þróun. Ef annar draslar meira á
heimilinu er mikilvægt að hinn byggi
upp meira þol gagnvart drasli í kringum
sig og öfugt. Ef einhverjir vinir annars
eru leiðinlegir að mati hins þarf að finna
lausn á málinu sem gæti falið i sér að
annar makinn hitti vinina án þess að
hinn þyrfti að vera með nema þegar
eitthvað sérstakt væri á döfinni og svo
framvegis.
Erfiðleikatímabil koma í allri
sambúð
Allar fjölskyldur eiga daga þegar allt
leikur í lyndi, börnin eru eins og hugur
manns og allir i góðu skapi og þó svo að
einhver sé neikvæður í umhverfinu er
auðvelt að láta það ekki hafa of mikil
áhrif á sig. Á sama hátt eru dagar þar
sem allt er ómögulegt frá morgni til
kvölds. Þá getur þolið verið lítið
gagnvart minnstu gagnrýni frá öðrum.
En það eru ekki einungis dagaskipti á
andrúmsloftinu í fjölskyldunni. Oft er
um lengri tímabil að ræða, þar sem
kreppuástand ríkir í samskiptum
fjölskyldumeðlima. Yfirleitt eru þessi
tímabil tengd afgerandi breytingum sem
verða í fjölskyldunni. í könnuninni, sem
getið var um áður, kom fram að fæðing
barns hefði í för með sér miklar
breytingar á samskiptum og hafði ekki
aðeins áhrif á innbyrðis tengsl foreldr-
anna heldur einnig á samband þeirra
við foreldra sína og vini. í flestum
tilvikum lagar fólk sig þó að breyttum
aðstæðum og lærir nýjar aðferðir við að
takast á við erfiðleikana sem upp koma.
Hefur rifrildi skaðleg áhrif á
börnin?
Börn verða yfirleitt óttaslegin þegar
foreldrar þeirra rífast og finnst jafnvel
að þau hafi eitthvað til saka unnið. Ekki
fer þó betur með börnin ef spenna liggur
í loftinu en þögn grúfir yfir heimilinu.
En það er mikilvægt að halda
börnunum fyrir utan sjálfar deilurnar og
gera þau ekki ábyrg fyrir þeirri tog-
streitu sem þau eiga ekki hlut í. Börn
eiga mjög erfitt þegar ætlast er til af
þeim að þau taki afstöðu með öðru
hvoru foreldranna. Bamið neyðist til að
gera upp við sig hver hafi rétt fyrir sér,
hver eigi bágt, hvort mamma verði reið
ef það heldur með pabba og svo
framvegis. Með því að standa með öðru
foreldranna verður barnið að hafna
hinu.
Hins vegar þarf að upplýsa börnin um
hvað er á döfinni. Þar sem börn eru
sérlega næm fyrir erfiðleikum foreldra
og finna á sér þegar eitthvað er að þarf
að láta þau vita að nú séu mamma og
pabbi ósátt en að þau ætli að reyna að
leysa það á góðan hátt sín á milli. Það
veitir barninu öryggi að fá að vita að
foreldrar geta leyst mál sín sjálfir.
1 hjónabandi sem dýpkar og þróast
eru togstreita, ólíkar skoðanir og rifrildi
eðlilegir þættir. Það sem skiptir sköpum
er að finna lausnir sem báðir geta sætt
sig við og sem eru endurskoðaðar þegar
þörf er á. Væntumþykjan getur aðeins
vaxiðaf gagnkvæmri virðingu. iW
NÝJUNG:
Slóttuvél með
nylonþræði,
VÉLORF
Frœ, allskyns frœ, áburður, pottar, sláttuvélar,
hjölbömr, úöadœlur, vökvunartœki, slöngur, slöngu-
vagnar, slönguhengi, plastdúkur og ótal fleiri vömr til
garðyrkju s.s. lúsalyf, sveppalyf, arfalyf.
Eiturúðunardælur til
úðunar með ýmsum
vökvum.
SÖLUFÉLAG
GARÐYRKJU-
Reykjanesbraut 6
101 Reykjavík Sími 24366
22. tbl. Vlkan IS