Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 4
umargc
UTANLANDSFERÐ
FYRIR TVO:
Að verðmæti til er utanlands-
ferð fyrir tvo stærsti
vinningurinn í Sumargetraun
1981. Það er ferðaskrifstofan
Útsýn sem skipuleggur þennan
vinning. Útsýn hefur ríflega
aldarfjórðungs reynslu að
baki og ferðir hennar og
skipulagning eru eitthvað það
besta sem þekkist á því sviði.
Sigurvegarinn getur valið
um þrjá staði: Marbella,
Mallorka eða Lignano. Á alla
staðina er um að ræða ferð
fyrir tvo, að verðmæti samtals
12 þúsund krónur. Allt eru
þetta viðkunnir ferðamanna-
staðir sem hafa upp á margt
að bjóða en þó hver með sínu
sniði.
Marbella er nýjasti staður-
inn í skipulögðum hópferðum
héðan. Marbella er hluti af
strandlengjunni sem einu
nafni kallast Costa del Sol og
að margra dómi einn glæsileg-
asti baðstaður Evrópu.
Mallorka er gamalgrónasti
áfangastaður íslendinga á
sólarstöðum — staður sem
menn heimsækja aftur og
aftur og verða aldrei leiðir á.
Þar finna allir eitthvað við sitt
hæfi, hverjar svo sem
kröfurnar eru.
Lignano er ekki sístur
þessara þriggja staða. Lignano
Sabbiadoro — þar sem gestir
Útsýnar dvelja — er skagi sem
liggur frá vestri til austurs út í
Adríahafið. Flestir eru á einu
máli um að þar sé fegursta
baðströnd Ítalíu. Allt fram á
þessa öld varð ekki komist á
þennan skaga öðruvísi en af
sjó — landmegin var fenja-
land sem á öðrum áratug
aldarinnar var ræst fram og
breytt í frjósamt akurlendi þar
sem Alparnir einir rjúfa
víðáttuna til austurs og
norðurs.
Allt frá því fyrst var hafist
handa um að breyta Lignano í
ferðamannaparadís var allt
lagt upp úr því að breyta
landinu sem minnst, láta
náttúruna halda sér eftir
föngum og skapa þannig
andrúmsloft að fegurð lands
og gróðurs væri ríkjandi eftir
sem áður. Þetta hefur tekist
ótrúlega vel. Þrátt fyrir fólks-
mergðina sem þarna dvelur
hafa gestir ekki á tilfinning-
unni að þeir séu hluti af
mannhafi heldur einmitt að
þeir séu frjálsir úti í náttúr-
unni — að sólin skíni fyrir þá,
þar sem þeir anda að sér
hreinu loftinu og láta sig
dreyma sína dagdrauma í
friði.
Sandströndin er átta
kilómetrar að lengd, 80 til
150 kílómetra breið, með
góðri aðstöðu og fyllsta hrein-
læti.
Gestir Útsýnar dvelja á
besta stað á ströndinni, í
hóteli og íbúðahóteli sem
standa hlið við hlið og aðeins
steinsnar frá ströndinni sjálfri.
Á Lignano er krökkt af úrvals
veitingastöðum og hvers konar
skemmtistöðum, og allt
einkennist af frjálsræði, lífs-
gleði og glæsimennsku. Hér
ríkir glaðværð og góðvild,
enginn þarf að-vera með
hjartað í buxunum þótt sólin
gangi til viðar og hlýtt
Suðurevrópumyrkrið takið við
með gróðurilmi sínum og fjöl-
breyttum mannfjölda, heldur
getur óhikað haldið á
skemmtistaðina og notið úti-
verunnar á leið aftur heim á
hótelið þegar nóg er vakað.
Og allt umhverfis er hvert
tækifærið öðru betra til
skoðunarferða — Feneyjar,
Flórens, Bledvatn,
Gardavatn, Dolomítarnir, svo
nokkuð sé nefnt. Og enn er
margt ótalið sem bíða verður
betri tíma.
4 Vikan 22. tbl.