Vikan - 28.05.1981, Síða 5
Getraunin er fólgin i því að þekkja hvaða islenskt, alþekkt orðtak myndin
túlkar. Við birtum alls sex myndir sem túlka islensk orðtök. Þeir sem þótt
taka i keppninni eiga að finna hvaða orðtak þetta er og skrifa það á
getraunaseðilinn á blaðsíðu 62, ásamt nafni, heimilisfangi og sima. GEYMA
SKAL SEÐLANA ÞAR TIL GETRAUNINNI LÝKUR OG SENDA ÞÁ ALLA 'l
EINU UMSLAGI.
itraun 1981
ÞfthDJI
HLim
Rmm ferðarakvélar
Nú er ástæðulaust að ganga
með skeggbroddana út í loftið.
þótt verið sé fjarri heitu, renn-
andi vatni eða innstungu með
220 volta straum. í Sumar-
getraun Vikunnar eru fimm
vinningar ferðarakvélar. Þær
eru af gerðinni Sanyo SV 51 C
og eru fyrir bílarafmagn, 12
volta. Sígarettukveikjarinn er
tekinn úr, innstungunni á rak-
vélinni stungið í og allt tilbúið
fyrir þægilegan og nákvæman
rakstur. í hinum endanum á
Sólarlandaferð
fyrir tvo
Reiðhjól
Bakpokar
Kassettutæki
Ferðaviðtæki
Ferðarakvélar
eki
þessum kjörgrip er ljós,
hentugt til að lýsa á vegakort
eða annað sem birtu þarf við.
Þetta tæki fæst hjá Gunnari
Ásgeirssyni hf. og kostar
rúmar 300 krónur stykkið.
Til að leiða þátttakendur á rétta leið höfum við falið rétta svarið einhvers
staðar i textanum sem fylgir þessari getraun. Það getur verið i þessum texta
og það getur lika verið i textanum þar sem sagt er frá vinningunum. Nú er
bara að leita, það þarf enginn að vera með hjartað í buxunum þótt hann finni
þetta ekki strax — það kemur.
Sem sagt: Hvaða orðtak túlkar myndin hér að neðan? Skrifið svarið ó
getraunaseðilinn á blaðsiðu 62 ásamt nafni, heimilisfangi og síma, og sendið
svo 'alla seðlana í einu umslagi þegar getrauninni lýkur.
GÓÐA SKEMMTUNI
Hvaða orðtak er þetta?
U. tbl. Vikan S