Vikan - 28.05.1981, Page 16
Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahúsin
Furöu notalegur staður
Matreiöslan á Esjubergi er orðin
frambærileg, ef marka má heimsókn
mína þangað í vor. Allur matur var að
þessu sinni frambærilegur. Er það mikil
breyting frá því, sem áður var, þegar ég
nálgaðist Esjuberg með hálfum huga.
Esjuberg er furðanlega notalegur
staður, þrátt fyrir stærðina og sjálfsaf-
greiðsluna. Umhverfið hefur batnað við
aukna skilveggi og einkum þó við hinar
miklu blómakörfur, sem standa á veggj-
unum og hanga í loftum.
Ekki má gleyma barnahorninu, sem
er hið rúmbesta og best útbúna, sem ég
hef tekið eftir. Fyrir fjölskyldur með
ungviði er allt annað líf að fara út að
borða, siðan barnahorn komu til
sögunnar í Esjubergi, Laugaási og
Stillholti.
Verðið orðið hagstæðara
Besta breytingin á Esjubergi er þó sú,
að verðlagið er ekki lengur hið sama og á
litlu milliverðstöðunum, sem veita fulla
þjónustu, heldur nokkru lægra. Sú
breyting var bráðnauðsynleg, en hefur
enn ekki gengið nógu langt.
Á nýjum matseðli Esjubergs var
meðalverð forrétta 31 króna, súpa 10
krónur, fiskrétta 48 krónur, kjötrétta 90
krónur, sæturétta 13 krónur. Þriggja
rétta máltíð með víni og kaffi kostaði að
meðaltali 140 krónur. Réttur dagsins
með súpu kostaði að meðaltali 59
krónur.
Fyrir örlitlu hærra verð vildi ég þó
heldur sitja í rólegheitum við dúkað
borð en vera í stöðugum viðskipta-
ferðum til að panta hjá kokkum og
sækja mat á einum stað, tala við vínþjón
á öðrum og borga við klingjandi kassa á
hinum þriðja.
Eina þjónustan, sem veitt er í Esju-
bergi, er, að létt vín eru borin á borð.
Enginn vínlisti er á staðnum, en með
nokkurri fyrirhöfn tókst mér að komast
að því, að tvö frambærileg hvítvín voru
á boðstólum, Gewiirztraminer og
Wormser Liebfrauenstift. Rauðvínin
láðist mér að skoða í gönguönnum
mínum um salinn.
Salatborð
ílagi
Kjúklingasúpa dagsins var fremur góð
hveitisúpa með nokkrum kjúklinga-
bitum og blönduðu dósagrænmeti.
Esjuberg er
komiö í lag
Humarhalar americaine voru meyrir, en
bragðkæfðir í kryddsósu. Með þeim
fylgdu hæfilega lítið soðin hrísgrjón.
1 salatvagninum var að þessu sinni
hvítkál, ísberg, gúrkur, sítrónur,
appelsínur, dósaananas, tvær amerískar
sósur, léttsýrðar gúrkur, grænmetissulta
og soðið rauðkál. Allt var þetta fram-
bærilegt, en lítið var hugsað um að
bæta í tómar skálar.
Franskar kartöflur, sem fylgdu
ýmsum réttum, voru ekki góðar, allt of
linar og þesslegar, að búnar væru til úr
dufti.
Djúpsteiktar gellur voru ekki til að
þessu sinni. 1 staðinn var pantaður djúp-
steiktur fiskur í hvítvínssósu. Bæði
fiskurinn og hjúpurinn voru ágætir, en
hjúpurinn þó of þykkur. Sósan var mild
og góð og tiltölulega hveitilítil.
Svínakótilettur Calcutta voru þurrar
og bragðlitlar, með fremur miklu fitu-
lagi, bornar fram með mildri og góðri
karrísósu út á hrísgrjón.
Kjúklingaborgari!
Kjúklingaborgari að hætti Esju reynd-
ist vera hakkað kjúklingakjöt með
skemmtilega mikið sýrðum gúrkum og
hlutlausri salatsósu. Kjötið sjálft var
bragðlaust og ætti því að höfða til
hamborgaraliðsins.
Lambakótilettur voru mjög feitar,
mikið grillaðar og mikið kryddaðar,
fremur bragðdaufar, en sæmilega meyr-
ar. Með þeim fylgdi sveppasósa úr
hveiti.
Ofnsteikt lambalæri var hins vegar
hæfilega feitt og tiltölulega lítið steikt
um of. Með því var borin skemmtileg
laukblanda og þunn og bragðgóð sósa,
líkust soði.
Nautaplanksteik að hætti Esju
reyndist vera pönnusteikt nautafilet,
framreitt á trébakka með kryddsmjöri,
grilluðum tómat og spergli. Tómaturinn
var afhýddur, hæfilega lítið grillaður og
bragðgóður. Spergillinn var úr dós
Kryddsmjörið hafði mjög svo eindregið
sítrónubragð. Beðið var um kjötið hrá-
16 Vlkan XX. tbl.