Vikan - 28.05.1981, Page 38
Minningaflóð, sem geymt hafði
verið og gleyrnt árum saman, skall
nú skyndilega yflr hann. Hvað gat
það eiginlega verið sem hafði breytt
henni svona mikið? Það var eins og
hún hefði horfið frá honum eins og
mynd í draumi.
sinnar — pilt sem spyrði hvernig hún
væri en ekki hver hún væri.
Veturinn leið fyrr en varði. Og morg-
un einn, þegar Vanja vaknaði og leit út,
sá hún að blessað vorið var allt í einu
komið án þess að hún hefði gert sér
nokkra grein fyrir því fyrr.
Vor — að vera ungur — að
verða snortinn hugljúfri þrá sem ekkert
afl, ekkert starf, gat hamið! Allar þær
hugsanir og draumar sem henni hafði
tekist að byrgja inni í önnum vetrarins
sóttu nú að henni á ný með auknum
þunga.
Ungu stúlkurnar fleygðu vetrar-
klæðum sinum til hliðar, skörtuðu nú
kjólum í ljósum og grænum litum
vorsins og flögruðu eins og fiðrildi um
götur og grundir. Ungir elskendur reik-
uðu um þegar tók að rökkva. Loftið
angaði af ilmi vorsins. Lifið var heillandi
fagurt.
En Vanja var ein. Próflesturinn gekk
treglega um tíma því að hugur hennar
höggdeyfar
eru
gæða-
vörur
á mjög
hagstæðu
verði
vorahlutir
Ármúla 24 — Sími 36510
Sm Vlkan XX. tkl.
var allur bundinn við vorið. Bara að
sumarið færi nú að koma! Bara að Ijós-
græni liturinn færi nú að dökkna eins og
á sumrin! Bara að loftið yrði nú þungt
og þvingandi heitt — of heitt fyrir þessi
áberandi ástarhót unga fólksins með-
fram öllum vegum!
Engu að síður tókst henni að hefja
ágætan endasprett við lesturinn áður en
prófin byrjuðu og auk þess lét hún inn-
rita sig á kvöldnámskeið í frönsku. Hún
gat ekki farið til Madagaskar með þá
takmörkuðu frönskukunnáttu sem hún
hafði fengið I menntaskólanum, hún
varð að geta talað frönsku reiprennandi.
Hún hóf námið af áhuga og dugnaði
enda fannst henni franskan bæði fögur
og skemmtileg.
Vanja ákvað að taka þátt í hátíða-
höldum nemenda sem gengu undir stúd-
entspróf enda var það tími sem aldrei
kæmi aftur.
Allan þjóðhátíðardaginn, 17. maí,
voru samfelldar og mjög ánægjulegar
skemmtanir. Þær hefðu áreiðanlega
getað haldið áfram I sama dúr um
kvöldið á Borginni og Vanja kom
þangað geislandi glöð, með mikilli eftir-
væntingu, ásamt vinkonu sinni, Höllu.
Fjöldi nemenda var þegar kominn á
staðinn og nú heyrðu þær allt í einu
langt blístur og háværa rödd sem sagði:
„Nei, sjáið þið bara, strákar, þetta
lofar góðu. tsspöngin virðist hafa
bráðnað í hátíðahaldahlýjunni.”
Hópur pilta, sem þarna var nærri og
heyrði þetta, tók undir spaugið með
hlátri og sköllum. Vanja skildi strax að
þessu var beint til hennar, fór hjá sér og
roðnaði og brosið hvarf af vörum
hennar. Halla hnippti I hana og sagði
svo að enginn heyrði:
„Taktu þetta ekki svona alvarlega,
Vanja. Hann ætlaði áreiðanlega ekki að
særa þig. Þeir eru allir svo bálskotnir í
þér.”
Vanja svaraði ekki. Hún hafði
snöggvast séð bregða fyrir meðal pilt-
anna ljósum lubba sem hún kannaðist
við. Hann hafði raunar ekki horft til
hennar eins og þeir hinir, hafði nánast
baeði veríð undrandi og forvitinn. En
HAGSTÆÐUSTU
KAUPIN
ÍDAG ^
1981MODEUD
„Alvöru" orgelraddir 16", 8" og 4" yfir
allt hljómborðið.
Aðrar raddir: Harpsicord, píanó, gítar, Hawai-gítar, vibrafónn,
ukulele o.fl. innbyggt: Tremolo, bergmál og hljómborðsskipting. 8-
takta trommuheili og fullkomnasta skemmtarakerfi m. gangandi
bassa, eins fingurs spilakerfi o.s.frv. fyrirþá semþað vilja.
_£uU-stærð~hljómbörðsr5~áttundir, öflugur magnarf innbyggður
með 12" hátalara. Innstunga fyrir tjeyj-hartól og útgangur i stereó
tæki eða aukamagnara. ^_______________________________________________________________________________________
SILI A AKUREYRI:
BÚÐIN
GRÁNUFÉLAGSGÖTU 4. SÍMI 21415.
JÓÐFÆRAVERZLUN
/