Vikan


Vikan - 28.05.1981, Side 42

Vikan - 28.05.1981, Side 42
Mánudagur þrettándi Ég get alveg sagt ykkur hvers konar dagur gærdagurinn var. Ég vissi fyrirfram vel hvernig dagurinn yrði en til að vera viss fletti ég upp í stjörnuspár- bókinni á deginum, mánudegi þrettánda . . ..! Þar stóð: Þetta verður dagur þegar allt gengur á afturfótunum og eitt óhappið tekur við af öðru. Þannig stóð það og þannig varð það. Það byrjaði með þvi að ég fór í bæinn til að láta útgefandann minn fá handritið að skáldsögunni sem ég hafði unnið að seinustu sjö árin. Hann vildi það ekki. Hann sagði að ekki fengjust peningar í svoleiðis lagað lengur. Þegar ég kom niður frá honum og út í bíl, með handritið mitt forsmáða, hafði ég fengið stöðumælasekt. Ég stakk lyklinum argur í skráargatið á bílhurðinni, og ætlaði að drífa mig heim, en þá var hurðin hrokkin í baklás. Ég varð að skilja bílinn eftir og taka leigubíl. Skapið var orðið hrikalegt. — Jæja, sagði Maríanna, — hvernig gekk þá? Fékkstu þessi tíu þúsund sem þú ætlaðir í fyrirframgreiðslu? Ég urraði eitthvað óskiljan- legt og skellti frakkanum í fata- skápinn. Siðan lokaði ég mig inni á skrifstofu. Ég vildi vera einn með harma mína, slæma skapið. Því miður hafði ég ekki lokað dyrunum almennilega. Ég heyrði hvert einasta orð sem sagt var frammi á gangi. Það var Maríanna sem talaði fyrst: — Þetta var það versta sem komið gat fyrir, sagði hún áhyggjufull. — Ég þori ekki að fara inn til hans strax. — Úha, sagði Dóra, — fyrst hann er í þannig skapi skal ég lika láta sem ekkert sé. — Við vorum öll búin að samþykkja að fara inn til hans um leið og hann kæmi heim, sagði Benni, — og svo eruð þið bara með undanslátl. Ég fer beint inn! Benni birtist i dyrunum. — Er ég að trufla? — Já, snáfaðu! Hann kom nær. — Það er út af einkunnunum mínum, sagði hann og skellti einkunnabókinni niður á borðið fyrir framan mig. — Þú þarft bara að skrifa nafnið þitt hér. Ég veit að þær eru heldur lágar í þetta sinnið en það lagast aftur, næst. Ég hef verið á erfiðum fótboltaæfingum en þær eru búnar því boltinn er í gíslingu hjá Friðriki kaupmanni, eftir að ég braut stóru rúðuna hjá honum í glæsilegu vinstrifótarskoti . . . og fyrst við erum að tala um kaupmanninn, pabbi, þá er reikningurinn fyrir nýju rúðunni hans hérna. Þetta er eitthvað sérstaklega þykkt gler og þess vegna er það svona dýrt og .. . Ég skrifaði undir einkunn- irnar. Ég skrifaði ávísun á Friðrik kaupmann. Ég lét Benna skiljast með handa- hreyfingu að hann ætti að hypja sig. Drífa sig. ÚT! Stjörnuspá llnilurinn 2l.m;irs 20.afjríl Það gerist fremur fátt merkilegt þessa viku og það veldur þér von- brigðum. Líttu betur í kringum þig, þú verður að leita ævintýr- in uppi. Það er ómögu- legt að ætlast til að þau komi ávallt hoppandi upp í fangið á þér. Nú er kominn tími til að binda enda á eilíft flandur úr einu í annað. Ljúktu hverju verkefni fyrir sig án þess að byrja jafnframt á tíu öðrum. Óvæntur atburður getur sett strik í reikninginn varðandi einhverjar áætlanir. \;iulið 21.-ripríI 2l.m;ií Mál nokkurt sem hefur lengi valdið þér áhyggj- um og ama leysist á óvæntan og ágætan hátt. Þú átt býsna auð- velt með að umgangast annað fólk um þessar mundir. Notaðu tæki- færið og vingastu við gamla kunninga. Sporódrckinn 24.okl. 2.4.no\. Fjármálin vefjast mikið fyrir þér þessa dagana. Rétt er að gera nákvæma úttekt á stöðu mála áður en þú steypir þér út í miklar fram- kvæmdir sem hafa fjárhagslegar skuld- bindingar i för með sér. T\íhur;irnir 22.mai 21. júní Tíminn líður hjá í amstri og áhyggjum út af einskis verðum hlut- um. Óróleiki þinn og nöldursemi angrar fólkið sem þú umgengst mest. Það hafa ekki allir jafnmikinn áhuga á þér og þínum málum. Knijniaöurinn 24.nó\. 2l.dcs Ætlaðu einkalífinu góðan tíma. Sumum þér nákomnum finnst þeir hafa verið vanræktir undanfarið og nú er rétt að bæía úr því. Helgin er heppileg til þess að brydda upp á spennandi nýjungum I sambandi við skemmtun eða ferðalag. kr.'hhinn 22. júni 2.4. júli Það kemur þér á óvart hve margir eru boðnir og búnir til þess að rétta þér hjálparhönd. Vertu ófeiminn við að þiggja hjálpina því hún er boðin fram af velvilja til þín. Slcingcilin 22.dcs. 20. jan. Hættu að amast yfir göllum þinum og leggðu i stað þess rækt við kostina sem eru margir og góðir þrátt fyrir allt. Beittu persónutöfrunum við lausn á erfiðu vandamáli en láttu það ekki á þig fá þó ekki gangi allt að óskum. I.jonió 24.júlí 24. áiíú'l Þér hættir til þess að halda skoðunum þínum á lofti. Ekki eru allir jafnsælir með það og hætta er á að þú glatir góðum kunningja vegna þessarar sjálfumgleði. \alnshcrinn 2l.jan. I'í.fchr. Einhverjar blikur eru á lofti varðandif einka- málin. Sambandið við þína nánustu gengur eitthvað brösótt og þér finnst þér kennt um. Athugaðu gaumgæfilega hvort ekki getur verið einhverja sök hjá þér að finna. Ný og spennandi viðfangsefni fanga hug- ann. Gerðu það sem þig langar til þessa vikuna og láttu það ekki á þig fá þó ýmislegt smálegt sitji á hakanum. Ekki er víst að þér gefist annað eins tækifæri í bráð. Kiskarnir 20.fchr. 20.mars Það virðist sem margt sé að gerast i kringum þig og að þú fáir ekki ráðið við eitt eða neitt. Þér finnst þú óskaplega. vanmáttugur. Hertu upp hugann og gerðu það sem í þínu valdi stendur og gerðu þér ekki of mikla rellu út af öðrum. 42 Vikan 22. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.