Vikan - 09.07.1981, Page 5
Áhorfendur skemmtu sér konunglega og hér á myndunum má
þekkja ýmsa, bæði þekkt sýningarfólk, lifsreynd andlit úr
íslenskrí blaðamannastétt og aðra gesti VNoinnar á úrslita-
kvöldinu í Hollywood.
Vilcan vclur
Það var ekkert lítið að gerast á
úrslitakvöldinu í Hollywood þar
sem Vikan kynnti tíu efnilegustu
módelin úr keppninni Vikan velur
módel.
Keppni þessi er sérstök að
tvennu leyti: nú er í fyrsta skipti
jafnrétti kynjanna í hávegum haft
í keppni sem þessari og því gamla
góða kvenímyndin nokkuð tekin
að láta á sjá og þetta er líka í
fyrsta sinn sem gengið er fram fyrir
skjöldu til að opna starfstækifæri
svo sem hér var gert. Þessi tíu úr
úrvalshópnum fá að launum
námskeið hjá Módelsamtökunum
og sérstaka myndatöku hjá ímynd,
og þau tvö þeirra, sem standa sig
best, fara síðan til New York í
haust. í þeirri ágætu stórborg
dvelja þau í viku og verður kapp-
kostað að kynna þeim sem allra
best björtu hliðarnar á stór-
borginni. í næstu Vikum
kynnum við svo hvern keppanda
fyrir sig, bæði með forsíðumynd
og viðtali. Þetta eru allt saman ný
andlit og Vikan vonar að draumar
þeirra um frekari tækifæri á
þessari braut rætist.