Vikan


Vikan - 09.07.1981, Blaðsíða 17

Vikan - 09.07.1981, Blaðsíða 17
Framhaldssaga það hlaut að vera eitthvað annað sem hafði komið honum til að skipta um skoðun. Og nú var hún komin hingað . . . Utan við gluggann hennar blikaði á litil ljós frá þorpi nokkru á Madagaskar. Hún var að því komin að ná takmarki sínu. En hvað mundi það þýða — enda lok eða upphaf? Endalok á draumi lífs hennar eða svar við mikilvægustu spurn- ingunni sem bjó í brjósti hennar? Algjör uppgjöf eða opin, frjáls leið til lífsins? „. . .Það er aðeins þetta eina sem ég bið um,” sagði hún í hálfum hljóðum. „Leyfðu mér að komast að því hver ég er! Þorbjörn hef ég misst frá mér... og örlögin geta ekki verið svo grimm að ætla að ræna mig öllu?" Eftir tæpa viku mundi hún verða komin til Nossí Be. Þegar hún hugsaði til þess varð hugur hennar gripinn hljóðri von og mikilli eftirvæntingu. Morguninn eftir vaknaði Vanja við það að ferskur blær barst til hennar inn um gluggann og strauk vanga hennar. Það var kominn stinningskaldi sem Katarína þurfti að stritast gegn. Annars var himinninn heiður og blár og nijög heitt i veðri. Steinar var þegar kominn á fætur og sat í borðsalnum þegar Vanja kom þang- að til að framreiða morgunmatinn. Hann brosti og var léttur á brún og brá. Vanja brosti á móti og lét gamanyrði fjúka. Það var létt yfir öllum þennan morgun eins og jafnan þegar lagt hefur verið úr höfn og nýr dagur á hafi fram undan. Steinar varð strax I sínu besta skapi þegar hann hafði náð sér að nýju og reyndi að vera sem mest i návist hennar allan daginn. Milli miðdegis- verðar og siðdegiskaffis var lítið að gera. Vanja var þá með Steinari í sólbaði uppi á efsta þilfari. Steinar var órólegur og gerði sér grein fyrir að hann talaði mikið — var raunar alltaf símalandi. Það var svo erfitt að vera einn svona nærri henni og vera jafnástfanginn og hann. Hún var svo frábær, svo fágætlega fögur og vel vaxin að hann átti erfitt með að anda. Þess vegna varð hann að tala og tala, vera símalandi til þess að reyna að halda þessum hugsunum I fjarlægð og reyna að verða rólegur að nýju. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem hann þurfti að ganga undir próf í sjálfsstjórn, og nú varð hann aðstandast það. Vanja var vingjarnleg og frjálsleg og gerði sér ekki grein fyrir hugsunum hans og tilfinningum. Einlæg og saklaus framkoma hennar olli þvi að hann skammaðist sín fyrir girnd sína. Og þó að það væri hans innsta ósk og þrá að vera aleinn með henni létti honum veru lega þegar annar stýrimaður klöngraðist upp stigann til þeirra og settist að hjá þeim. Það var fimm sólarhringa sigling frá Dauphin til Majunga, en sá var síðasti viðkomustaðurinn áður en komið var til Nossí Be. Það var gott i sjóinn og þetta voru ánægjulegir dagar. Þótt Vanja væri spennt og óþolinmóð og fyndist tíminn aldrei ætla að líða reyndi hún að láta sem minnst á því bera. Það var sem hana grunaði að niðurstaðan — þótt það væri einmitt hún sern hún hafði þráð frá því að hún komst til vits og ára — gæti orðið verri en von. En ennþá hafði hún leyfi til að láta hugann reika um draumalönd sin. Hvað svo sem gerðist i Nossí Be og hvað sem hún fengi að vita varð hún að taka svarinu eins og viti borin manneskja. Að kvöldi hins fimmta dags komu þau til Majunga. Þótt ýmsuni þætti furðu legt vildi Vanja ekki fara í land um kvöldið. Að sjálfsögðu þráði hún að finna'jörð Madagaskars undir fótum sér en hún hafði fyrir löngu ákveðið að fara ekki i land með neinunt úr áhöfn skips ins og ein gat hún ekki farið i myrkrinu um kvöldið. Hún kom sér ekki að því, gat hreint og beint ekki gengið um með þeim hinum og tekið undir með þeim að þetta væri bara geðþekkt, framandi land. Daginn eftir, fyrir hádegi, leit Steinar inn í borðsalinn og sagði að hann þyrfti að fara í þvottahús sem væri í útjaðri bæjarins. Þar sem enginn sími væri þarna yrði hann að fara þangað sjálfur og biðja einhvern úr starfsliðinu að sækja allan óhreina þvottinn sem yrði að vera hreinn og strokinn daginn eftir. Hann spurði hvort Vanja vildi koma með, hún gæti fengið fri ef hún aðeins óskaði þess. Vanja var unt stund á báðum áttum en ákvað siðan að þiggja boðið þrátt fyrir ákvörðun sína að fara ein i land. Þetta var að sjálfsögðu kostaboð þvi að annars hefði hún ekki fengið fri fyrr en klukkan fimm og hér settist sólin snemma. Þær voru dýrmætar, stundirn ar sem þau dvöldu á Madagaskar. Þegar Vanja hafði ákveðið að fara i land með Steinari og gerði sér Ijóst að hún mundi strax fá að komast i nána snertingu við Madagaskar lauk hún morgunverkum sínum og tók sig til i skyndi. Majunga virtist vera fallegur bær með miklum trjágróðri. Þau gengu upp frá bryggjunni, undir fögrum og skuggasæl- um pálmatrjám, og beygðu siðan inn á strandveginn breiða. Bananatrén voru þakin stórum, gulum klösum og neðst á hverjum klasa hékk stórt og fallegt blóm. Þau leigðu sér tvíhjóla vagn sem heimamaður dró. Vagninn var furðu vandaður, með nýju, hvítu léreftsþaki, bjöllu og sætum handa tveimur. Fólkinu fjölgaði á götunum jafnt og þétt því lengra sem þau komu inn i borgina. Þetta var fólk á öllum aldri, karlar, konur og ungmenni, og flestir í sérstæðum, litríkum fatnaði. Ýmsir voru meðgullog glingurínefiogeyrum. I ISLENSK FRAMLEIÐSLA apar si styttri afgreióslutími “ lægra verð Einn skápur, tveir skápar eða tíu skápar. Þú getur alltaf bætt við eftir eigin hentisemi. Staðlaðar einingar lækka verð og stytta afgreiðslutíma □□□□mmcn 1 ns smunandi breiddir- fjöldi viðartegunda legar innréttingar - hagkvæm nýting Útborgun 1/3 - eftirstöðvar á 6 mánuðum Sterkar innanáfelldar lamir Vinsamlegast sendiö mér nánari upplýsingar um Syrpuskapa. Nafn ----------------------------------------- Heimili . Sendum um allt land 28. tbl. Vlkan 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.