Vikan - 09.07.1981, Síða 22
sleppu. Fyrir 20 árum var hér fiskur inn
um allan fjörð. þá reru menn á línu og
fiskuðu ágætlega.
En skrapið í Flóanum tók algjörlega
fyrir veiðina og seinast komu bara upp
marhnútar — örsmáir helvítis naglar.
En úr því við minntumst á járnblendið
langar mig til að segja frá smáskoti sem
ég samdi þegar 3 mánaða stopp varð hjá
þeim i vetur:
Hjá Landsvirkjun raforku ljótur er
vandinn
því lónið hjá Sigöldu pissar í sandinn
og stóriðjudraumana stærsta ég þekki
— stóriðjur byggja en reka þær ekki
— hó, hó gullið í sekki.
Við skreppum út í fjós með Sæmundi
ásamt Berglindi Dögg og Katrínu Björk.
Þar hittum við fyrir kýr og kálfa með
óvenjulegum nöfnum: Rósa, Viðbót,
Jólagjöf, Kráka, Nös, Rjúpa, Skella, Biti
og Búkolla.
Haninn á Galtalæk heitir Garvason.
Reyndar hefur Sæmundur samið Ijóð
um þann heimspólitíska viðburð:
ÞóGarvason fari til Danmerkurdvaiar
dómurinn síðar til okkar galar,
ef eitthvað hann hefur eftir sig skilið
sem er þó í hvarfi við Stjórnarráðsþilið.
— hó, hó, hrogniðog svilið.
Undir lokin á þessari heimsókn okkar
Vikumanna til Sæmundar Helgasonar
að Galtalæk segir hann okkur frá því er
þangað barst óvart innleggsnóta frá
Sláturfélagi Suðurlands, en hana átti
annar bóndi í sveitinni að fá.
Aðalgeir Björnsson, fjögurra ára
drengur, sem hafði verið að dunda við
að opna póstinn fyrir afa sinn, Sæmund,
opnaði líka bréfið með innleggsnótunni
frá Sláturfélaginu. Þá sagði afi:
Fjögra ára afadrengur
allt vill gera fá.
Léttum fótum fréttabréfin
færir mér aðsjá.
Opnar Tíma, Frey og fleira
fyrir migen þá
litlar hendur lítiðgeta
lesið utan á.
Það er sagt að völvur vefi
víða lífsins þráð
og þær hafi í litla lófa
línur sagt og skráð.
Við höfum ekki lært að lesa
leyndarmálin öll.
En opnum lífsins bók og blöðum,
berumst tittáfjöll.
Auðu blöðin eru stundum
okkur sögu gerð,
skyldi þetta, skyldi hitt
um skamma æviferð.
Kannski á minn afadrengur
eftir seinna meir,
að opna sinar SS-nótur
er innlegg senda þeir.
MwÆ
Vist minn hngur vænk.ist nu
von ti hættum kjorum,
«# pnskum fekk éy kált nt ku
og kindnmergd / fjorum
Þ.snmg kveður hondmn og
hagyrdingurmn Sæmundur Helga
son sem hyr «id Galtalæk i
Skilmannahreppi Tilefnið voru
paskalomh sem hann gekk fram a i
forunni undir Akrafjalli og kálfs
hurður um sama leyti.
12 Vikan 28. tbl.