Vikan


Vikan - 09.07.1981, Side 37

Vikan - 09.07.1981, Side 37
Ítalía vegar eru þær að einhverju leyti for- senda þeirrar ótrúlega miklu byggðar sem er á þessum slóðum, því varla geta margir lifað á gæðum landsins óunnum. Vínrækt nær þó furðu langt upp í hlíðar og gróskan teygir sig langt upp i hlíðar fjallanna. Nei, þeir geyma ekki lik undir altarinu i kirkjunni í Cortinu. Þetta er líkneski i gierskáp. Bölvuð hlýindin Leiðin frá Lignano til Cortina er full af ævintýrum, jafnvel þótt maður sé á ferð á þeim tíma árs sem síst þykir til Alpaferða fallinn, i vorrigningunum. Þá liggur borgin í hálfgerðu dái, kláfarnir eru ekki farnir að fara með ferðamenn upp eftir öllum hliðum og vetraríþrótta- fólkiðerfarið. Siðastliðinn vetur kom það reyndar varla svo nokkru næmi því upp kom sérkennilegt vandamál og litt sann- færandi sem slíkt fyrir Íslendinga: hlýindi! Hlýjan var þeim síður en svo kærkomin sem Cortinu byggja því henni fylgdi snjóleysi svo þriggja mánaða vetrarvertíð skíðafólks varð að mánuði. Ekki er víst að allir setji ítaliu og ítali í samband við vetrariþróttir, snjó og skautaiðkun. Sannleikurinn er þó sá að vetrariþróttir eru mjög vinsælt sport á ítaliu og margir sækja í fjöllin i snjóinn, sem manni gleymist oft að kemur lika á ítaliu. Straumur í báðar áttir Á sumrin liggur straumurinn síðan í báðar áttir. Fjallabúarnir leggja leið sina niður til strandarinnar og sleikja sólina og flatmaga í gullnum sandinum, rétt eins og vetrarhrjáðir íslendingar. Það vill einmitt svo til að Alpabúar, bæði italskir og norðar að komnir, eru fjölmennir á þeim sólarströndum sem tslendingar sækja i Lignano. Alpar á stríðstímum í fyrri heimsstyrjöldinni voru mannskæðir bardagar háðir í itölsku Ölpunum og eftir hana fengu Ítalir svæði sem áður höfðu tilheyrt stórveldi Austurríkismanna. Enn er víða töluð þýska í þessum hluta Ítalíu svo það getur allt eins verið að þýskumælandi ferða- menn i Lignano séu ítalskir borgarar, eins og austurrískir eða þýskir. Það ber nefnilega mikið á þýsku i þessum austasta hluta Ítalíu allt til strandar. í siðari heimsstyrjöldinni voru ibúar þessara svæða lánsamari, þvi þá sluppu þeir að mestu við ófriðinn, eins og við Islendingar. Eitt margra fallegra húsa i borginni Cortina d'Ampezzo — leigubílar og hótelherbergi. Altari — «Ht af mörgum fallegum — í dómkirfcjunni I Cortina. 28. tbl. Vikan 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.