Vikan


Vikan - 17.06.1982, Side 14

Vikan - 17.06.1982, Side 14
aö heyrðust stunur frá vatn- inu. Djúpir óhugnanlegir tónar sem maður bæði fann og heyrði. Tónar sem smugu inn í hverja taug og hvern vöðva líkamans. ís og aftur ís. Þúsundir metra af ís sem hreyfðist í allar áttir. Þarna færö þú, barn náttúrunnar, von- andi nægan skammt. Dunomore- vatniö í Vermont. Þetta ætti að vera að þínu skapi. Er það ekki? Múra og girðingar hefur náttúran ekki skapaö. Á meðan ég arkaöi yfir vatnið í rökkrinu fannst mér ég vera kom- inn á einhverja aðra plánetu. Stuttu eftir að ég fann kofann fór vindurinn að gnauöa ennþá meira. Ég fann smávegis af sprekum og fór strax aö kynda eldavélina. Því miður voru stóru kubbarnir blautir og ég bölvaöi öllu í sand og ösku. Kalda vetrinum, kuldanum, bitra vindinum, já og líka stynjandi vatninu. Það var farið að hlýna það mik- iö aö ég sá ekki lengur móöuna frá vitum mér þegar barið var á hurö- ina. Til öryggis stakk ég hlaðinni skammbyssunni í jakkavasann. Ég opnaði dyrnar lítið eitt og sagði: „Hvað get ég gert fyrir yður?” Á pallinum stóðu tveir menn þétt saman. Reyndar var hálf- spaugilegt að sjá hvernig þeir stóðu. Þetta voru örugglega engir náttúruskoðarar sem leituðu að einverunni. Nú tók ég eftir því að annar þeirra var handjárnaður. „Ég er lögreglumaður,” sagöi hinn. „Þessi maður er fangi minn.” „Hvern fjandann eruð þið að gera úti í þessu veðri ? ” spuröi ég. „Jeppinn minn er um það bil fimmtán hundruð metra héðan Hálkan er svo mikil að hann rann út af veginum. Hleypið okkur fljótt innfyrir svo viö getum notið hlýjunnar, því við erum gegnum kaldir.” Ég fann strax að eitthvað var bogið viö fásögnina. Þó opnaði ég dyrnar og hleypti þeim innfyrir. 14 Vikan 24. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.