Vikan


Vikan - 17.06.1982, Qupperneq 39

Vikan - 17.06.1982, Qupperneq 39
Framhaldssaga William horföi á mig án þess aö skilja hvað ég meinti. „Hvemig á ég aö vita þaö? Það hlýtur þó aö hafa verið eftir klukk- an hálfþrjú.” Hann steinþagnaöi eins og hann hefði sagt of mikið og röddin var hás af æsingi. „Hvernig veistu það?” „Ég fann fremur en sá augnatil- lit Susan. „Hvers vegna spyrðu?” sagði hún og var greinilega brugð- iö. William vissi viö hvað ég átti. „Þú þarft að gera eitthvað til þess að ná stjórn á ímyndunarafli þínu,” sagði hann með jafnaðar- geði. „Þaðeralltof fjörugt.” „Þú hefur ekki svarað spurn- ingu minni,” sagði ég. Hann kveikti sér í sígarettu og í gegnum reykinn leit hann hugs- andi á myndina af Ross. „Ég veit það vegna þess að ég talaði við hana klukkan hálfþrjú í gær. Hún beið eftir mér við vegamótin.” „Og?”spurði égæst. „Og hvaö?” sagði hann óþolin- móður. „Við töluöum saman í svo sem fimm mínútur. Svo ók hún sína leið og ég gekk heim meðfram ánni. Þú veist hvað gerðist eftir það.” „Llm hvað voruð þið að tala?” hélt ég áfram og lét mig ekki. „Það er mitt mál,” sagði hann snöggt og reis á fætur. Hann leit afsakandi á mig. „Mér þykir þetta leiðinlegt, Kristy, en þetta er að byrja að fara í taugarnar á mér.” „Þú ert ekki einn um það.” Susan stundi og reis líka á fætur. „Ég held að við séum öll að verða eitthvað skrýtin.” Susan var komin í reiðbuxur og skyrtu- blússu og var með fléttað hárið. Hún leit út eins og hún væri tólf ára gömul. „Er ekkert að frétta af Brent?” spurði ég og hún neitaði því. „Ég veit ekki hvað af þessu er verst: Ross, mamma eða Brent. En allt til samans er það meira en hægt er að þola. Röddin hækkaði og i reiði sinni þrýsti hún höndun- um niöur í buxnavasana. „Nú ætla ég niður til hestanna. Hvers vegna ferðu ekki út með Rristy, Willi- am? Hún þarf greinilega á því að halda að komast héðan í burtu smástund.” „Ég þarf reyndar aö fara inn til Stratford í ýmsum erindagerö- um,” sagði hann hikandi. ■H' G HAF'ÐI ENGA löngun til þess að fara með honum en það var þó betra heldur en aö verða ein eftir. William kveikti á bOútvarpinu og ljúfir tónar strokkvintettsins urðu til þess að við fórum að tala um tónlist. Síðan fórum við að ræða um bækur og ferðalög og loks list- ir. Við töluðum um allt annað en þetta óskiljanlega og óþægilega sem var á seyði í kringum okkur og þoldi ekki að um þaö væri rætt. Ég vissi að fyrr eða síöar yröi ég aö taka afstöðu en ég skaut upp- gjörinu stöðugt á frest. Bara að Ross fyndist, bara að hann væri hjá mér, þá myndi ég aftur sjá hlutina í réttu ljósi. Þaö var hann sem ég elskaði og það var hringur- inn hans sem ég bar á fingrinum... „Ef Brent lætur ekki heyra frá sér fyrir morgundaginn fer ég aft- ur til Frakklands,” sagði ég allt í einu. „Og þaðein.” „Ég get að sjálfsögðu ekki hindrað þig í að fara,” svaraði William og ég horföi undrandi á hann. Fyrir tveimur dögum hafði hann ekki viljað að ég færi þangað ein en nú leit helst út fyrir aö hon- um stæði nákvæmlega á sama. Ég skildi ekkert í honum. Ég skildi ekki orðið neitt í því sem var að gerast í kringum mig. Nú þráði ég allt í einu Ross svo óendanlega heitt. Ég lokaði augunum og reyndi að kalla fram mynd hans í huganum, hlæjandi augun, brosið, en þaö eina sem ég sá var þjáningarsvipurinn eins og hann var á myndunum á Waynewater. „Hver hefur málað þessar asna- legu myndir af Ross?” sagði ég svo og vildi reyna að losna undan áhrifavaldi þeirra með því að fá að vita þetta. „Það geröi Ross sjálfur,” sagði William rétt eins og það lægi í aug- um uppi. Ég starði á hann furðu lostin. „Vissir þú ekki heldur að hann málaði,” sagði hann og enn var augljóst að hann hafði mikla með- aumkun meö mér. Ég reyndi að verjast meðaumkun hans. „Ég vissi ekki að hann málaði einungis sjálfsmyndir,” svaraði ég þess vegna um hæl. William brosti svolítið. „Er ekki í lagi að gera það? Ég hélt að allir listamenn notuðu sjálfa sig sem fyrirmynd, svona af og til að minnsta kosti.” Hann haföi aö vissu leyti rétt Garðsláttuvélar Garðtætarar Kostir: lágvær (hljóðdeyfð) öryggissláttuteinar stór hjól amerískur 3,5 ha. mótor sjálfstæðar hæðastillingar á hjólum Þessi fjölvirki „traktor" er hentugur fyrir hvers konar garðvinnu, t.d. plægingu kálgarða. Fyrir garðyrkjumanninn og heimilið. í tKrö fo Verð kr. 5.021,- Verð kr. 10.980,- Globusn Lágmúla 5 Sími 81555. 24. tbl. Vlkan 39
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.