Vikan


Vikan - 16.09.1982, Side 2

Vikan - 16.09.1982, Side 2
ins gang. Hann tók hann á eintal og fór aö segja honum frá blómun- um og býflugunum. Loks gat hann andað léttara og sagði syni sínum að hann mætti segja yngri bróöur sínum hvernig þetta gengi allt fyrir sig. Það var samþykkt. Gústi hlustaði álengdar á þegar eldri bróðirinn fór að útskýra fyrir þeim yngri: — Heyrðu, Oli. — Já. — Þú veist hvernig börn verða til, er þaðekki? — Jú, jú. — Heyrðu, pabbi var aö reyna að telja okkur trú um aö það væri eins og hjá blómunum og býflugunum.... * * Litla prófessorsdóttirin var að fara í forskóla en af þvi hún var bara fimm ára varð hún fyrst að fara í „smáviðtal”. — Segðu nú nokkur orð, vinan, bara eitthvað sem þér dettur í hug, sagði skólasálfræðingurinn vingjarnlega. Stúlkan leit á mömmu sína og sagði. — Heldurðu að hún vilji fá rök- rétt uppbyggða setningu eða ein- stök, ótengd orð? Henni var hleypt inn. Wllly Breinholst LEIGJANDINN i KÚLUNNI Pabbi stríðir mömmu Ég er farinn að fara með mömmu á námskeið um meðferð ungbarna. Ég veit ekkert almennilega út á hvað það gengur því ég sef mest i staðinn fyrir að hlusta. Mamma vildi nú reyndar að pabbi kæmi lika en hann segir að það sé ekki hægt að kenna honum neitt sem hann veit ekki fyrir um meðferð ung- barna. ,,Þetta snýst allt um að halda króganum hæfilega votum i annan endann og hæfilega þurrum i hinn," sagði hann. Og þetta með að læra að skipta um bleyju, það er nokkuð sem pabbi gefur ekki mikið fyrir heldur. „í Ameriku eru þeir alveg hættir að láta bleyjurnar verða blautar,” segir hann. „Þar gefa mömmurnar krökkunum bara þurrmjólk og ryk- suga þá svo tvisvar i viku. " Pabbi segir mest svona þegar mamma hennar mömmu, hún amma, heyrir. Þá verður hún alveg spinn, og það þykir pabba svo gaman. Skondinn náungi, þessi pabbi. Ég gæti vel hugsað mér að hitta hann einhvern tíma. Bernskubrek — Veistu hverjum ég mætti áðan, mamma? — Nei, Palla mín. — Pabba okkar úr fyrsta hjóna- bandi. * * Gústi vissi að nú komst hann ekki lengur hjá því að leiða elsta son sinn í allan sannleika um lífs- Wallis WA116 gírókopti Girókoptinn var fyrirrennari helikoptersins, þyrlunnar, og átti mikinn þátt i þróun hennar. Fyrsti girókoptinn var hannaöur af Juan de la Cierva og honum var fyrst flogið 9. janúar 1923 í Madrid. Wallis WA116 tilheyrir yngri kynslóð gírókopta. Hann er knúinn áfram af 4ra sílindra vél og vegur tæp 115 kíló með venjulegum útbúnaði. Stóri hreyfillinn á gírókoptanum heldur honum á lofti, sá er þó munurinn á helikopter-hreyfli og gírókopta-hreyfli að sá síðarnefndi er knúinn áfram af vindinum en ekki vél. Blöðin eru lítið eitt hallandi til að vindurinn geti haldið þeim á stöðugum snúningi. Fyrir flugtak þarf að koma blöðunum á snúning og er það gert með því að tengja stóra hreyfilinn við aflvélina. Þegar eftir flug- tak er slitið í sundur. Þó vélin stöðvist í flugi getur gírókoptinn lent heilu og höldnu. Hreyfillinn heldur áfram að snúast og þegar koptinn nálgast jörð breytir flugmaöurinn hallanum á blöðunum til að stöðva koptann, lending verður síðan með eðlilegum hætti. Gírókoptinn hér á myndinni var notaður í James Bond mynd- inni Þú lifir aðeins tvisvar. Þar var koptinn búinn árásareldflaug- um og því hið vígalegasta verkfæri. Felumynd Þjóðviljans: Finnið Sigurð! 12S1ÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur. 31. ágúst. 1982 AL»>VÐUBANDALAGIÐ Frá Þórsmörk. Sigurftur Brynjólfsson á innfelldu myndinni. 2 Vikan 37- tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.