Vikan


Vikan - 16.09.1982, Blaðsíða 24

Vikan - 16.09.1982, Blaðsíða 24
gamla konan heföi gripið eitthvað af hugleiöingum Tammyar, tárin láku úr rauöum augunum og elli- lúnir fingur reyndu aö strjúka þau burt. Tammy leið andstyggilega en reyndi aö láta sem hún sæi þetta ekki. Hun fann bréfið á botninum. „Opnaöu þaö, væna mín.” Tammy dró upp blað. Hún leit upp, sá aö tárin voru aö þorna. „Viltu að ég lesi þaö?” Grátt höfuðið hneig til samþykk- is. Það var fátt í bréfinu. Þaö var bréf ógiftrar móður sem spurði hikandi aö því hvernig barninu hennar farnaðist. Dagsetningin var í desember 1946. Ári eftir fæðinguna. Afmælishugsun. Eymdarlegur tónninn kom upp um sálarkvalir móðurinnar ungu. James, barnið hennar. Árin runnu saman eins og kreistur svampur. Tammy fann það sjálf; iðrunina, ástina, efasemdirnar og djúpan dapurleikann. „Geymdirðu það allan þennan tíma? Svaraðirðu?” „Nei. Okkur var. . . Það var betra að sleppa því.” Móðirin hafði þá orðiö að geta sér til og syrgja. „Þú ætlaðir að seg ja eitthvað annað. ’ ’ „Nei. Ekkert annað.” „Ætlaðirðu aö segja „okkur var sagt að gera það ekki” eða eitt- hvaðíþá átt?” „Sagt aö gera það ekki? Hver heföi átt að gera það?” „Faðirinn. Hann hefði getað krafist þess ef hann borgaði brús- ann.” „Það var ekkert þvílíkt. Ég sagði þér að við hefðum aldrei vit- að hver faðirinn var. Aldrei.” Tammy tók eftir því að fyrri þreyta gömlu konunnar var horf- in. Það lá í augum uppi aö ein- hverju var enn haldið leyndu. „Ég sé að það er undirritað Dóra Birch. Hún var enn einhleyp.” Gömlu augun urðu hugsi þegar þau litu til baka yfir fjölmörg ár. „Eg held að hún hafi verið ákaf- lega ástfangin af föðurnum.” „En hún lét samt barnið frá sér.” „Hún gafst upp, veslingurinn. Ég held aö hún hafi veriö dauð- hrædd við fjölskyldu sína. Jafnvel á þeim árum þótti þetta til skammar. Ég held að hún hafi verið af góðum ættum.” „Þú manst þetta allt?” Grátt höfuðið leit til hliöar. „Líttu á blaðið. Rithöndin. Heimilisfangið.” „Heimilisfangið er í Essex og bréfið er þrjátíu og tveggja ára gamalt. Ég get ekki ímyndaö mér að hún sé þarna ennþá.” „Ég hef ekki annað.” Tammy hélt á bréfinu og horföi ringluð á skriftina. „Hún er ef- laust búin að skipta um nafn líka. Gifta sig. Kannski oftar en einu sinni, hver veit. Ég hef ekki trú á að þetta komi okkur aö haldi, frú Duncan.” „Það er ekkert annaö til. Þú mátt halda því.” „Nei. Þaö myndi ekki gera Jim neitt gott að sjá þaö. Ég hripa hjá mér nafniö og heimilisfangið.” u Tammy setti bréfið gætilega þar sem hún hafði fundið þaö. Hún lag- færði innihaldið og var fegin þegar hún var búin að loka kassanum. Loka honum á örstutt innlit í dapurlegt líf annarrar mann- eskju. Hún setti kassann aftur í skápinn. „Þakka þér fyrir, frú Duncan. Þetta er sjálfsagt byrjun. Það er nokkuð sem hann hafði ekkiáður.” „Ungfrú. . .” „Tammy.” „Ekki láta Jimmy koma aftur. Aldrei framar.” „Þú ert það eina sem hann á.” „Hann hefur þig núna. Þú gerir honum meira gott en ég hef nokkru sinni gert. Það var pápi sem vildi fá hann.” „Hann skilur það ekki. Ykkur semur kannski ekki en hann virðir þið fyrir uppeldið sem hann hlaut hjá ykkur Duncan pabba. Móðir hans gaf hann og nú viltu vísa hon- umá bug.” „Hann er ekki lengur barn. Eg gerði honum aldrei neitt gott. Leyfðu mér að fá frið fyrir þessu öllu. Það er ekki til of mikils mælst á mínum aldri.” Tammy settist í gamla Miniinn hjá Jimmy. Hann var með glugg- ann opinn en þaö var enn heitt í bílnum. Hann staröi órólegur á hana. „Ég er með þrjátíu og tveggja ára gamalt heimilisfang móður þinnar.” „Flott. Við erum búin að vinna sigur.” „Ekki vera beiskur. Hún var af góðumættum.” „Þá hlýt ég að líkjast karli fööur mínum. Hún var ekki gift, eða skjátlast mér?” „Yfirleitt er það ástæðan fyrir því að gefa barn. En þú fæddist vegna ástar, ekki losta.” Hann leit tortrygginn á hana, greip svo um hönd hennar. „Bætt- ir þú þessu sjálf í söguna, Tam?” „Það er satt. Ef fjölskylda henn- ar hefði ekki verið hefði hún haldiö þér.” Henni fannst þetta ekki mik- il skreytni. „Ég hefði þá kannski verið ríkt lausaleiksbarn. Sko til.” Hún sagði ekkert við þessu, vissi eikur að sjálfsvorkunnin, sem hann virt- ist finna til, var ekki nema kæru- leysisleg tilraun til aö dylja til- finningar. Þetta skipti hann máli. Það myndi ævinlega skipta hann máli. „Það var eitt sem ekki kom heim og saman.” „Áfram.” „Pappírinn og rithöndin leit ekki út fyrir að vera þrjátíu og tveggja ára gamalt.” Hann leit athugull á hana. „Við hvað áttu? Var það skrifað síðar?” „Ég veit það ekki. En bréfið hefði veriö upplitað. Viö skulum samt fylgja þessu eftir. Það er ekki orðið of seint að aka til Essex. Þetta er skammt frá stað sem heitir Halstead.” Hún leit á mið- ann. „Brooking House, Little Heighton, nærri Halstead.” Þau óku í gegnum hitakófiö í London og það varð mollulegt í bílnum. Hann ók eins og leigubíl- stjóri, forðaðist aðalgöturnar og mesta umferðarþungann þangað til þau voru loks komin í hálfgild- ings sveit handan við ystu mörk iðandi stórborgarinnar. „Af hverju hóstaði hún?” spurði hann. „Talaðu ensku, ekki glæpa- slangið þitt. Ég veit það ekki. Hún sagðist helst ekki vilja hitta þig aftur.” Hann tók þessu þegjandi, píröi augun í ljósiö; hann kærði sig ekki um að hún sæi svipinn í þeim. Hann strauk andlitiö og horföi stíft fram fyrir sig. „Ég fylgist meö henni úr fjarska.” Hann leit á kíló- metramælinn. „Það tekur sinn tíma í þessari djöfuls umferð.” „Hættu að blóta.” Hann hló órólega. „Hættu að reyna að ala mig upp. Ef mig langar að blóta, andskotinn hafi það, þá blóta ég.” En skyndileg léttúðin var vegna þess að þau voru komin í grennd við húsiö, undirbúningur fyrir vonbrigði. Hann ók upp breiðan veg, stansaöi þegar hann sá tvær telpur á hjólum. Hann kallaði: „Er Brooking House hérna í grenndinni?” Þær bentu áfram og hann veifaði til þeirra. Þar risu tvær stórar súlur með steinakörnum. Súlurnar höföu ný- lega verið þvegnar, þungt og opið járnhliðiö málað svart. Innkeyrsl- an var með ljósri steypu, grasflat- irnar beggja vegna vandlega slegnar. Börn voru að leik í gras- inu skammt frá þeim. Húsiö sjálft sást ekki fyrir beygju á veginum og röö af beykitrjám minnti á tjaldhimin. Hann sat með hendur á stýri og hvíldi hökuna á höndunum. „Bjó móðir mín hér?” spurði hann hás. „Skyldi þetta allt vera ofboðsleg blekking?” „Við skulum gá aö því.” „Næsta krá?” Þau fundu hana í yndislegum smábæ hálfa mílu þaðan, The Sitt- ing Duck, með lágu stráþaki og margskiptum gluggum. Duncan sagði: „Væri þér sama þó ég færi einn inn?” Tammy skildi hann. Hann var óöruggur, vildi helst vera einn. „Ég bíð.” Hún opnaði gluggana og þegar hún sneri sér við aftur var hann horfinn inn í krána. Einu sinni lá við að hún elti hann inn en hélt aft- ur af sér. Það leiö næstum klukku- tími áður en hann kom til baka, eilítið kenndur. Hún færöi sig á bak við stýriö. Hann settist ringlaöur inn í bílinn. Hún þurfti ekki annaö en að líta á hann til aö sjá að honum leið illa. Sagan kom í rykkjum þegar hann reyndi aö þjappa henni saman, losa sig við hana. „Veitingamaðurinn var mjög hjálpfús. Þau hjónin tóku við kránni rétt eftir stríðið. Þau muna eftir Dóru Birch. Naumlega. Og fjölskyldunni. Forríkri. Þau muna eftir orðrómi um barn sem enginn sá nokkru sinni. Veslings tötrið.” Hann þagnaði snöggvast, áttaði sig á að hann var að tala um sjálf- an sig. „Stúlkan giftist um það bil 1950 manni sem hét Cleary. Veg- leg veisla í húsinu. Mjög glæsilegt. Hún flutti til Chesham í Bucks. Hefur ekki heyrst frá henni síöan. Fjölskyldan seldi Brooking House fyrir svona tuttugu árum.” 24 Vikan 37- tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.