Vikan


Vikan - 16.09.1982, Blaðsíða 25

Vikan - 16.09.1982, Blaðsíða 25
Kjallara Kjörgarös, sími 16400 Inngangur Hverfisgötumegin á þeim tíma sem þér hentar Viö bjóöum upp á fuUkomna æf- ingaaðstööu. tjósaiampar, nudd- pottar, gufuböö og sturtur. Hæfir leiðbeinendur ávalft til staðar, ferö viö hæfi og getu hvers og eins, ásamt leiöbeiningum aö bættu mataræöi. ATH.: Likamsræktin, Kjörgaröi, opnar kl. 07.00—22.00 virka daga, helgar 10.00—15.00, í mánaöar- gjaldi okkar er innifalin öll þjónusta staöarins. Karla- og kvennasalir Burt með streitu og slappan kropp Líkamsrækt að lífsvenju Framhaldssaga Duncan horfði óöruggur á Tammy. „Slóðin er dauf, Tam.” Hann var að reyna að leyna til- finningum sínum, reyna að hugsa ekki til þess að hérna var hann að minnsta kosti ekki annað en orð- rómur endur fyrir löngu. Hún laut fram og kyssti hann á kinnina, þrýsti hönd hans. Bæöi voru þögul á bakaleiðinni en stundum gat hún stýrt með annarri hendi og gripiö fast um hönd hans. Þau fóru aftur í íbúö hennar í einu af rólegri hornum North Kensington. Hún hringdi í vinkonu sína í Amersham tæpar þrjár mílur frá Chesham. Þar- fékk hún nöfn og heimilisföng allra sem hétu Cleary og höfðu Chesham- eða Amersham-síma. Það voru ekki nema þrír. Hún setti blaðið fyrir framan hann. „Við reynum á morgun.” „Ég veit það ekki. Ég er haldinn undarlegri tilfinningu. Þú hefur aldrei verið í stóru húsi um hánótt. Þú veist að það er tómt, ekkert mál. En eitthvað varar þig viö að eitthvað sé ekki í lagi og þú veist að þú ert í hættu. Það er engin ástæða, ekkert hljóð, en ef þú tek- ur þessa aðvörun ekki til greina ertu komin í klandur. Það er svo- leiðis tilfinning.” „Hiö óþekkta?” „Meira en það. Ég get horfst í augu við hið óþekkta.” Hún hafði aldrei séð hann svona. Hún vildi ekki þvinga hann. Svo sagði hann: „Gott og vel. Viö förum.” 5. Heinz Brocker hataði þennan stað. Honum stóð á sama þótt hann bætti á næstum óþolandi óloftið með því aö reykja risavind- il, því það jók honum kjark. Það var nokkuð sem hann gat haldið sér í. Þegar hann tróðst til Scherer framhjá þéttsetnum borðunum var hann hræddur við að einhver kæmi við hann. Það voru engar 1 konur í kjallaranum en ágeng karlmennska hans olli mörgum undrandi hornaugum. Þegar hann settist loks var hann í svitabaði. „Drottinn minn,” maldaði hann í móinn og þerraði andlitið með vasaklút, „því verðum við aö hitt- ast í þessum illa þefjandi kjallara. Loftið er þungt og —” Hann þagn- aði, leit órólegur á Scherer. „Félagsskapurinn er hýr,” botnaöi Scherer brosandi fyrir hann. „Ekki hafa áhyggjur, þú veður ekki fyrir aðkasti meðan ég er með þér.” „En hvers vegna?” Brocker hellti úr opinni vínflöskunni í glas- ið sem beið eftir honum. „Þeir þekkja mig hérna, sætta sig við mig. Og þetta er öruggur staður.” „Ég veit ekki hvernig þú ferð aö þessu.” Vasaklúturinn var enn á ferö. „Þeir hljóta að sjá í gegnum þig” Augu Scherers urðu hörkuleg og Brocker drakk hratt. Þegar Scherer setti upp þennan svip varö hann skelkaður. Hávaxni ljóshærði Þjóöverjinn var þægilega álitlegur en þegar hann setti upp hörkusvip varð hann allt annar maður. Önotalegt. Brocker flýtti sér að líta undan. „Við skulum hafa það á hreinu,” sagði Scherer kuldalega. „Hér inni er ekkert við mig til að sjá í gegnum. Skilurðu það? ” „Auðvitað. Afsakaðu.” „Ég þarfnast ekki afsökunar- beiðna þinna. Drottinn minn, hvað hafa þeir sent mér?” „Ég er alveg fullfær. Trúðu mér. Ég þarf svolítinn tíma til að koma mér fyrir, þaö er allt og sumt.” Þeir drukku þegjandi. Brocker hélt enn á vindlinum sínum. Scherer tottaði langan smávindil. Brocker hélt á rökum vasaklútn- um en kæfandi hitinn, þungt og reykmettað loftið, virtist ekki hafa nein áhrif á Scherer. Hann skimaði hirðuleysislega í kringum sig í kjallaranum, ávallt leitandi, sogaði í sig það sem hann sá en fór sér aldrei hratt. Kringlótt tréborð- in og stólarnir sáust naumast í hornunum þar sem svækjan var mest. Stór vifta á miðju reykflekk- uðu loftinu suöaði letilega líkt og andrúmsloftið væri of erfitt viö- fangsefni, eins og skipsskrúfa í þangi. ... ....... ..II ■■■■■•■■. I ■ '. 11111 37* tbl. Vikan 25 J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.