Vikan


Vikan - 16.09.1982, Blaðsíða 6

Vikan - 16.09.1982, Blaðsíða 6
sem við vildum ekki farga. Við fluttum hanu aðeins til og nú er hann miðpunktur í lundinum í neðri garðinum. Fyrir neðan hann gróðursettum við „geitla”-hvönn, sem er frekar fáséð jurt. Hún er talin góð jurt í grasalyf. Við höfum reynt að hafa sem mest af íslensk- um jurtum og fengið þær meðal annars hjá vinum og vandamönn- um. Við byggðum garðinn með hólum og hæöum, útbjuggum hraunhóla sem hæfa íslensku jurt- unum. En auðvitað er undirstaðan númer eitt. Hér var ræktað land fyrir og allur gróður þrífst með eindæmum vel í garðinum. ” Sem dæmi um gróskuna hjá þeim Eddu og Helga eru í garðin- um álmur, yllir, reyniviður, aiaskaösp, ýmsir kvistir: birki- kvistur, perlukvistur, dögglings- kvistur, bogsirena, disarunni, villirósin galia splendid og meyjarrósin, en þær rósategundir þrifast mjög vel við íslenskar að- stæður. Ennfremur heiðarrósin Dorn og Queen Elizabeth. Eitt árið voru til dæmis 26 tegundir af rósum, en flestar þoldu ekki veðr- áttuna. Mikið er af sígrænum gróðri í neðri garðinum, gullsóp- ur, margar furutegundir, eins og fjallafura, stafafura og bergfura, sitkagreni, blágreni og þynur. Garðurinn er því ekki síðri í snjó og frosti, þegar snjófölið liggur glitrandi á grænum greinum. Of langt mál yrði að telja upp allar þær tegundir sem finnast í þessum einstæða garði, en Edda og Helgi hafa reynt að byggja garðinn þannig að hann sé ekki of bindandi yfir sumartimann. Því skipa fjölær blóm stóran sess í gróðurríkina hjá þeim. Hvítur saltur sjávarsandur þekur göngu- stigana og þvi fer ekki of mikill tími í arfatinslu hjá þeim hjónum. Þau leggja mikla áherslu á að garðurinn sé útivistarsvæði fyrir alia f jöiskylduna. Stór grasflöt er í neðri garöinum, þar sem krakk- arnir leika sér í fótbolta og í sand- kassanum. Þar er einnig mat- jurtagarðurinn. í miðjum garðin- um er svo heiti potturinn sem er líklegast vinsælasti hluti garðsins. „Fólk var nú efins um það í fyrstu að við myndum nota þetta fyrirbrigði að einhverju ráði. En raunin varð önnur. Potturinn er í stöðugri notkun allt árið um kring, í sól og í snjó, og víð gætum ekki án hans verið. Stéttin fyrir f raman hann er skreytt steinum héðan og þaðan af iandinu og við gerum það oft að gamni okkar að rifja upp ferðalögin sem viö höfum farið, er við horfum á steinana. Við sitjum einnig mikið í garð- hýsinu sem er í miðjum garðinum. Upphaflega var ekki gert ráð fyrir því, þarna var aöeins skjólveggur. En síöan fæddist hugmyndin og við höfum ekki séð eftir því. Garðhýsið er notað við ólíklegustu tækifæri jafnt að degi til sem að kvöldi á sumrin og á veturna. Þá kveikjum við á luktum og kertum oghöfum það notaiegt. Auðvitað fylgir því talsverð vinna að eiga garð sem þennan, sérstaklega fyrst á vorin. Þá er nauösynlegt að endurraða, hreinsa og grisja. En síöan þarf lítiö að gera nema slá og halda þessu við, enda er ómögulegt að þurfa að vinna í garðinum dag og nótt allan sumartimann. En þessi vortími er óborganlegur, þegar aUt er að vakna tU lífsíns. Og ekk- ert jafnast á viö aö hreinsa eitt blómabeð þegar maður þarf að taka sér frí frá daglegu amstri. 6 Vikstn 37. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.