Vikan


Vikan - 16.09.1982, Qupperneq 14

Vikan - 16.09.1982, Qupperneq 14
OFBELDI ÍSAMBÚÐ Á allra síðustu árum hefur ofbeldi í ís- lenskum fjölskyldum verið til athugunar og umræðu. í öðrum löndum hefur umræða um þessi mál vakið mikla athygli og fjöldi neyðarathvarfa fyrir konur verið settur á stofn. Ofbeldi er haldið leyndu Það setur gjaman óhug að fólki þegar rætt er um þessi mál og erfitt getur verið að trúa því að gerlegt sé að vera í sambúð meö þeim sem notar líkamlegt ofbeldi til að ná fram vilja sínum. Sú er þó raunin og ein ástæða þess að aðrir en fjölskyldan vita ekki af vanda- málinu er sú að hún reynir oftast eftir fremsta megni að halda því leyndu. Sumum finnst oft einnig að þeir eigi ekki að skipta sér af því sem gerist hjá annarri fjöl- skyldu — hvort sem um er að ræða ofbeldi á bömum eða konum. I ofbeldisfjölskyldum eru bar- smíðar sjaldnast skipulagöar til að ná settu marki. Mun algengara er að viðkomandi eigi geysilega erfitt með að tjá eða útskýra van- líðan með orðum. Sama gildir um reiði, vonbrigöi og örvæntingu. Þegar slíkar tilfinningar brjótast fram — þá kann viðkomandi eng- ar aðferðir til að koma þeim til skila aörar en að berja frá sér, fá útrás á öðrum — og sleppa kannski við að finna dýpstu van- líðan sjálfur. Hvernig er hægt að skilja svona viðbrögð? Til að skilja betur viðbrögð ann- arra þarf að taka margt til greina. Eitt er það hvemig þjóðfélagið er sem fólk býr í, hvaða reglur gilda og hvaða skoðanir eru um hvemig fólk á að haga sér og hvað er bann- að. I flestum þjóðfélögum eru til tvenns konar reglur: skráðar og opinberar og óskráðar en leyfðar. Og sumt er látið afskiptalaust — ef leynt fer. Ein af „reglunum” í okkar þjóö- félagi er, eins og áður var minnst á, að halda því leyndu sem gerist innan veggja heimilisins. Ein ástæða fyrir því að ofbeldi við- gengst á heimilum er hefðbundið uppeldi stúlkna og staða kvenna innan fjölskyldunnar. Konur eru aldar upp til að taka ábyrgð á heimili og uppeldi bama. Þessi ábyrgö hvílir oft mjög þungt á þeim og gerir að verkum að þær láta fremur níðast á sér en leysa upp heimilið. Auk þessa er konan í mjög mörgum tilvikum fjárhags- lega háð eiginmanninum. Við skulum heldur ekki gleyma því að við búum við stanslausar sýningar á ofbeldi í öllu hugsan- legu formi, allt frá píningarað- feröum Tomma á Jenna fyrir yngstu bömin upp í stórslysa- og hryllingsmyndir fyrir þá sem eldri eru. Það hefur margoft verið sýnt fram á í rannsóknum að of- beldi sem er leyft og viðurkennt sem skemmtun eöa afþreying dregur úr hömlum þeirra sem á horfa til að nota slíkar aðferöir sjálfir. Það má því teljast eðlilegt að böm sem alast upp viö ofbeldi í eigin fjölskyldu og t.d. sjá föður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.