Vikan - 16.09.1982, Side 15
Texti: Alfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingur
Fjölskyldumál
berja móður og þau sjálf læri að
beita hnefaréttinum. Foreldrar
eru fyrirmyndir bama sinna hvort
sem þeir haga sér vel eða illa.
Innbyrðis samband
hjónanna
Sálfræðingurinn Odd R. Gul-
brandsen, sem vinnur við fjöl-
skylduráðgjöf í Osló, telur að of-
beldi í fjölskyldum taki á sig tvær
ólíkar myndir. Aðra myndina kall-
ar hann sjúklegt ofbeldi. Þegar
árásarmaðurinn hefur einu sinni
getað beygt makann með höggum
sínum verður það aðeins upphafiö
að ofbeldi sem aðferð til að ná
fram vilja sínum, og aðferðimar
verða stöðugt útsmognari. Smám
saman fer sambandið í fastar
skorður, þar sem annar makinn er
gerandi (árásarmaðurinn) en
hinn er þolandi (fómarlambiö).
Ofbeldismaðurinn, sem oftast er
karlmaður, er oft mjög háður
konu sinni og hann reynir að
hegna henni fyrir að vera ekki
eins og hún á að vera. Þessir karl-
menn eru oft ósjálfstæðir og með
lítið sjálfstraust. Vanmetakennd-
in á aðallega við um tilfinningaleg
tengsl við aðra og þarf því ekki að
koma í ljós út á við, á vinnustað
eða meðal kunningja. Hann hefur
mikla þörf fyrir að „eigna sér”
konu sína og ráöa yfir henni. Eins
og svo oft er um þá sem hafa
minnimáttarkennd er hann á
verði gagnvart umhverfinu og
fljótur að taka til sín neikvæð við-
brögð annarra. Þegar honum
finnst sér ógnaö fá þó reiðin og
sárindin aðeins útrás innan
veggja heimilisins og gagnvart
þeim nánustu, sem hann reynir aö
móta eftir eigin þörfum.
Konan, sem ofbeldið beinist að,
hefur oft frá æskuárum vanist því
aö fá litla athygli frá öðrum. Hún
hefur í þess stað lært að aðlaga sig
öðrum og taka byrðar annarra á
sig. Hún er einnig lík maka sínum
að því leyti aö hún hefur lítið
sjálfstraust og minnimáttar-
kennd. Reiði hennar kemur aðal-
lega fram í biturleika og kvörtun-
um sem hún beinir gegn makan-
um. Hann fær á tilfinninguna að
hann sé lítils virði, en það er ein-
mitt sú tilfinning sem hann þolir
ekki. Og þannig heldur vítahring-
urinn áfram.
Það er þó mikill misskilningur
aö halda að hjónin hagnist á
nokkurn hátt á því að sambandið
milli þeirra fari í slíkan farveg.
Þvert á móti er sektarkennd og
angist beggja mikil.
Hin mynd ofbeldis í sambúð
k^rls og konu kallar Odd Gul-
brandsen vanþróaða tjáningu til-
finninga. Hér skiptast hjónin á
að ráðast hvort á annaö. Oftast
eru þau alin upp í fjölskyldum þar
sem hnefarétturinn var notaður
þegar alvarleg misklíð kom í ljós
og hann notaður til að koma reiöi
og vonbrigðum til skila. Þegar
annað snöggreiðist fær það útrás
og kemur tilfinningum til skila
með því að berja frá sér. Bæði
viðurkenna þessa aðferð og
hræðslan við ofbeldi og reiði er
ekki eins mikil og í fjölskyldunni
sem minnst var á áður. Þessar
aðferöir til að útkljá deilumál geta
gert samband hjóna mjög
hatrammt og eru síst til þess
fallnar að hjálpa þeim til aö þrosk-
ast sem fullorðið fólk. Þess má
einnig geta að þessi mynd ofbeldis
milli hjóna breytist oft í „sjúklegu
ofbeldismyndina” vegna þess aö
karlmaðurinn er yfirleitt sá sterk-
ari og því hatrammari sem deil-
urnar veröa og meiri kraftar
notaðir, því líklegra er að hann
nái yfirhöndinni og beygi konuna
undir viljasinn.
Bæði þurfa hjálp
Ofbeldi í fjölskyldum verður
auðveldlega að vítahring og held-
ur áfram nema eitthvað komi til
sem breytir því. Það lagast ekki af
sjálfu sér. Hér þarf margt að
koma til. I fyrsta lagi er oft nauð-
synlegt aö veita fórnarlömbum
barsmíða öryggi. Þess vegna eru
neyðarathvörf mikilvæg sem
tímabundin lausn í byrjun.
Eftir margra ára kúgun er eðli-
legt að þær konur sem leita hjálp-
ar vilji fyrst og fremst fá hana í
formi félagslegs stuönings og f jár-
hagsaðstoðar. Þær vilja oft reyna
að skilja við manninn og byrja
nýtt líf. En allt bendir til þess að
sálfræðileg aðstoð sé ekki síöur
nauðsynleg til þess aö breytingar
geti orðiö á djúpstæöari viðbrögö-
um þeirra beggja — þeim viö-
brögðum sem eru undirrótin að of-
beldinu. An þeirrar meðferðar,
sem bæði þurfa á að halda, er
hætta á að ofbeldið komi upp aftur
í einni eða annarri mynd og færist
áfram til næstu kynslóðar. im
STÁLSTOÐ
við Óðinstorg s. 23363
VÉRITUNARBORÐ
TÖLVUBORÐ
SKRIFBORÐ
SKÁPAR
íí
pí#/i
7&*
rúm:
e'\é'n
e{i\x
■yaV'
Húsgöng sem henta
vel á skrifstofuna
Gott verð og góðir
greiðsluskilmálar
íslensk framleiðsla
STÁLSTOÐ
við Óðinstorg s. 23363
37. tbl. Vikan 15