Vikan - 16.09.1982, Síða 51
Draumar
Hundar og yfir-
náttúrleg atvik
Kæri draumráðandil
Mig langar að biðja þig að
ráða eftirfarandi draum er mig
dreymdi.
Eg var stödd héma heima hjá
mér í herbergi inn af forstof-
unni. Þar voru saman komin
systur mínar, foreldrar og
mððursystkini og makar, nema
ég tek eftir að tvær systur móður
minnar voru einar með börn sín.
Eg vissi ekki í hvaða tilgangi þau
voru öll komin en mér fannst
þau væru að biðja um gistingu.
Allt í einu finnst mér ég lyftast
uþp og ég ligg í loftinu í brjóst-
hæð og líð áfram, fram í for-
stofu, og þegar ég kem að dyrun-
um kalla ég uþp og bið einhvern
að hjálþa mér því þetta sé ein-
hver yfimáttúrlegur kraftur sem
valdi þessu. Þegar ég er komin
inn í þvottahús sé ég að faðir
minn birtist í dyrunum með
vatnsfötu og skvettir að mér (ég
blotnaði ekki) og ég losna undan
þessu og ætla að labba fram. Þá
kemur ein systir mín hlaupandi
með kveikjara og kveikir þar sem
faðir minn hafði skvett vatninu.
Það sem gerðist var að það birt-
ust tveir fallegustu hundar sem
ég hef augum litið. Eg krýp á
kné og klappa þeim. Þeir voru
svo glansandi og sléttir, annar
var jarpur/hvítur og hinn svart-
ur/hvítur. En allir virtust ánægð-
ir með þetta því þetta skeði ekkt
nema í örfáum tilfellum þegar
svona yfirnáttúrlegt fyrirbæri
skeði.
Svo stöndum við öll í þessu
herbergi. Þá stendur annar
hundurinn upp á afturlappirnar,
þessi svart/hvíti, og breytist í
mann með gleraugu og vindil í
munni, en hinn hundurinn
finnst mér standa við hlið mína
og halda með annarri framlöþþ-
inni um mitti mér. Hann kleip
mig svo fast í mjöðmina að ég
sárfann til. Eg leit aftur fyrir mig
en sá þá að þetta var móðir mín
sem kleip mig heiftarlega. Þá
sagði hún að hundurinn hefði
verið orðinn reiður yfir að hún
ætlaði ekki að hætta að klípa
mig. En svo fór maðurinn að tala
(sem breyttist) og sagði að þeir
væru sendimenn frá New York,
en ég vissi ekki í hvaða tilgangi.
Eg rumskaði og vaknaði en
sofnaði aftur og dreymdi stuttan
draum.
Eg lá í rúminu mínu, sem er
hjónarúm, og hundurinn, þessi
jarp/hvíti, lá við hlið mína á
koddanum. Mér fannst einhver
fitla við sængina, hún lá aðeins
út fyrir rúmið. Svo hoppar lítill
hvolpur upp í rúm með skjal í
munninum. I því oþnast dyrnar
og inn kemur maður, en það var
allt svo dökkt um hann að ég
þekkti hann ekki. Hann var með
svarta tösku og ég vissi að þetta
var læknir. Eg spyr hvort eitthvað
sé að, hvort ég sé veik. Eg fékk
ekkert svar en ég vissi að ég átti
að fá að vita það.
Læknirinn tók upp sprautu og
sprautaði mig í vinstri fót, rétt
fyrir neðan hné, og ég fann sárs-
aukann þégar hann stakk. Eg
vaknaði upp úrþessu.
Eg veit að þetta er langur
draumur en ef þú vildir gefa mér
ráðningu á þessum draumum
þætti mér mjög vænt um það.
Með fyrirfram þökk,
Sigríður
Fyrri draumurinn er ótvírætt
góður draumur fyrir þig og veit á
einhverjar afgerandi breytingar
framundan sem verða til mjög
góðs fyrir framtíð þína. Einhver
óvissa er í þér og fréttir langt að
geta komið þér eitthvað úr jafn-
vægi en góðu teiknin eru svo
ríkjandi í draumnum að þér er
óhætt að líta björtum augum til
framtíðarinnar.
Þú munt njóta aukinnar
virðingar I samfélaginu og það er
þér til mikillar gleði og segja má
að þú farir að blómstra svo um
munar og verðir hamingjumann-
eskja.
í seinni draumnum koma
fram mjög sterk tákn sem eru
kyntákn karlmanns og einnig
getur draumurinn bent til ein-
hverra veikinda þinna, nema þú
hafir verið veik, þá er hann fyrir
bata. Góð vinátta virðist vera
tengd þessum draumi en ekki er
nánar hægt að túlka hann.
Höfuðhneigingar
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að
ráða þennan draum því hann sit-
ursvo fast í mér. Hann ersvona:
Eg og vinkonur mínar, S. og
L., sátum t brekku hjá stað sem
heitir L. Þá gekk strákurinn sem
ég er hrifin af framhjá og þegar
hann sá okkur leit hann á mig og
hristi höfuðið, síðan á L. og
hristi höfuðið en síðan á S. og
hristi höfuðið. Þá sleikti S.
varirnar og þá kinkaði hann
kolli. Elsku draumráðandi, viltu
ráða þennan draum fyrir mig.
Svo þakka ég Vikunni fyrir mjög
gott og fróðlegt en jafnframt
skemmtilegt blað.
Þórlaug
Draumur þessi er heldur
jákvæður fyrir þig og táknar frið-
sælt og tíðindalítið líf framund-
an. Vinátta ykkar vinkvennanna
verður góð og beri einhvern
skugga á mun hann lagast fljótt.
Hvað afstöðuna til stráksins
snertir er greinilegt að ekkert
fæst úr því skorið á næstunni.
Vera má að einhver tengsl verði
milli ykkar (allra) en hann og þið
hafið greinilega ekki gert upp
hug ykkar endanlega. S. fær að
vísu ágætt tákn í draumnum en
líklegt er að það sé fyrir góðri
vináttu hennar og þinnar.
37. tbl. Vikan 51