Vikan


Vikan - 17.03.1983, Qupperneq 17

Vikan - 17.03.1983, Qupperneq 17
Magaveggur Maginn Meltingarkirtlar Maginn verst magasýrunum Magasýrur geta leyst upp zink-plötu en verndarlag á slím- húð magans ver sjálfa magaveggina fyrir þessum sýrum. Magasýrurnar eiga auövelt með aö ráða viö þykkar, steiktar kjöt- sneiðar, hrátt grænmeti og matar- miklar samlokur. Sýrurnar eru raunar svo sterkar að þær geta leyst upp zink-plötu. En því meltir þá maginn ekki sjálfan sig? Sannast sagna valda meltingar- vökvarnir skemmdum á maga- veggjunum. Nokkrar frumur drepast í hvert sinn sem maga- sýrurnar fara af stað. Að sjálf- sögðu valda sýrurnar ekki varan- legum skemmdum á maganum, hann endurnýjar sig í sífellu. Magaveggirnir losna við 500.000 frumur á hverri mínútu, með öðrum orðum endurnýjast veggirnir á þrem dögum. Upphafsspurningunni er þó ekki alveg svarað vegna þess að maga- sýrur eyða vefjum á nokkrum klukkustundum, ekki nokkrum dögum. Séu magasýrur of miklar myndast magasár. En það sem dregur mest úr skemmdum á magaveggjunum er bygging þeirra. Innan á maganum er nokkurs konar verndarlag, magaslímhúðin, sem er lögð þéttu lagi af þekjufrumum. Þær frumur komast í beina snertingu við magasýrurnar. Helstu efnin í magasýrum eru pepsín — efnakljúfur sem meltir eggja- hvítuefni i fæðunni — og salt- sýra. Það er einkum saltsýran sem getur valdið skemmdum á líf- færum. En í maganum verndar þykk og þétt slímhúðin magavegg- ina fyrir saltsýrunni og kemur í veg fyrir að sýran éti sig í gegnum þá. Slímhúðin er gott verndarlag en hún skýrir samt ekki til fulls hve vel maginn endist. „Froskhúð líkist á vissan hátt slímhúðinni, frumurnar í froskhúö eru mjög þétt saman,” segir Jerry Spenney sem er meltingarsérfræðingur hjá Alabama-háskólanum í Bandaríkjunum. „En tilraunir sem hófust fyrir einni öld hafa þráfaldlega sýnt að þessi þétta húð leysist fljótt upp sé hún látin liggja í magasýrum. ” Spenney og aörir vísindamenn hafa sett fram fleiri kenningar til að skýra hvers vegna maginn eyðir ekki sjalfum ser. Til dæmis hefur komið í ljós að þekjufrumur slímhúðarinnar eru sjálfar þaktar dularfullu lagi af kolvetnissam- böndum. Enn hefur ekki komið í ljós hvort eða hvaöa verndarhlut- verki þau sambönd gegna. Nýjustu rannsóknir benda til þess aö prostaglandin, fjölvirk efna- sambönd sem fyrirfinnast 1 mörg- um frumutegundum mannsiikam- ans, hafi hlutverki að gegna. Magn prostaglandins virðist standa 1 beinu sambandi víö þau sýrueyöandi kolvetnissambönd sem maginn framleiðir. Kannski liggur svariö grafið í frumum magaveggjanna. Yfir- borð þeirra, frumuhimnurnar, samanstendur aö mestu leyti af fituefnum. Hlaönar sameindir — svo sem vetni og klóríð í saltsýru — eiga ekki auðvelt með að komast í gegnum þessar frumu- himnur. A hinn bóginn eru margs konar sameindir mun minna hlaðnar (íóníseraðar) en þær sem eru í saltsýrunni og eiga þess vegna greiðari leið í frumurnar. Þessar minna hlöðnu sameindir eru í ediki, asperíni, appelsínu- safa og hreinsiefnum (til dæmis í tannkremi). „Þegar þú drekkur glas af appelsínusafa eöa tekur tvær asperín-töflur á fastandi maga veldurðu að öllum líkindum skemmdum,” segir Spenney meltingarfræðingur. „Það eru tímabundnar skemmdir, en engu aðsíður skemmdir.” Slímhúð rr.agans Þekjufrumur Slímhúðin ver magann fyrir magasýrunum, einkum saltsýru, sem meltingarkirtlarnir gefa frá sér. Ohlaðnar sameindir, svo sem asperin, komast inn i frumurnar svo að þekjufrumurnar þurfa stöðugt að endurnýj- ast. 11. tbl. Vikan 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.