Vikan - 27.10.1983, Page 17
Eliza í My Fair Lady var blómasölustúlka á gamla markaðnum í
Covent Garden. Stúlkan fremst á myndinni var klædd líkt og hún
og auglýsti blómin með hárri syngjandi röddu sem var eins og
endurómur úr fortíóinni.
uppstilltur og gervilegur, söknuðu
skransins og óreiðunnar. Haft var
á orði að búið væri að breyta
gamla góða Covent Garden í eins
konar markaðs-Disneyland fyrir
túrista þar sem í staðinn fyrir
Mikka mús og Andrés önd væru til
sölu applikeraðar dúkkur og
handsaumað dót á uppsprengdu
verði.
Þessi gagnrýni er gestkomandi
mönnum í Covent Garden ill-
skiljanleg. Staðurinn er vinalegur
og fjörlegur og varningurinn sem
á boðstólum er allur hinn vand-
aðasti og fallegasti. Þarna er
mikið um fallegar og sérkennileg-
ar handprjónaðar peysur, púða,
dúka, teppi, barnaföt, leðurvörur,
keramik og skartgripi og veröið er
ekki hátt þegar haft er í huga að
um handunnar vörur er að ræða.
Það er gaman að ráfa um
markaðssvæðiö þó svo að buddan
leyfi ef til vill ekki mikla fjárfest-
ingu. Þarna eru einnig marg-
ir veitingastaðir, pöbbar og
kaffihús að hvíla sig á, ýmist á
markaðnum sjálfum eða í nær-
liggjandi götum.
Götuskemmtikraftar setja
sterkan svip á Covent Garden
markaðssvæðið. Þar eru söngvar-
ar og hljóðfæraleikarar áberandi
en einnig hvers kyns aðrir
skemmtikraftar, látbragðs-
leikarar, fjöllistarfólk og
brúðuleikhús. Það þarf leyfi til
þess að koma fram á götunni en
yfirleitt er það leyfi auðfengið.
Skemmtikraftarnir á svæðinu eru
yfirleitt með þeim betri á sínu
sviöi. Annað þýðir ekkert að bjóða
fólki þar um slóðir.
Það er ekki síður gaman að
ganga um Covent Garden á
fallegu kvöldi en um bjartan
daginn. Svæðið liggur rétt hjá
mesta leikhúshverfi borgarinnar í
West End. Að lokinni leikhúsferð
liggur leið margra um markaðinn
og þá eru allir pöbbar og veitinga-
staðir yfirfullir og fólkið stendur í
hópum fyrir utan. Götu-
skemmtikraftarnir slá þá ekki
slöku við. Á götunum ómar
söngur, hljóðfærasláttur eða
skellihlátur frá áhorfendaskara
eldfjörugs leikstjóra sem velur
sér leikara úr hópi áhorfenda og
lætur þá óspart sýna hæfileikana,
öllum viöstöddum til óborganlegr-
ar skemmtunar.
Innan um mannfjöldann á
stilltu kvöldi í Covent Garden
finnur maður ósvikna lífsgleði og
saklausa skemmtun í miðjum
stórborgarþysnum. Þar er
maður manns gaman.
43. tbl. Vikan 17