Vikan


Vikan - 05.01.1984, Page 23

Vikan - 05.01.1984, Page 23
Kvikmyndin FlasfldariCB hefur gert mikla lukku viða um lönd, ekki síst hér á landi. Í henni léku tveir nýliðar aðalhlutverkin og hlaut annar þeirra, Jennifer Beals, mikið lof fyrir frammistöðu sína. Það sem vakti ekki sist athygli voru dans- atriðin í myndinni og lengi vel létu framleiðendur kvikmyndarinnar í það skina að það væri aðalleikkon- an sjálf, Jennifer Beals, sem dansaði. En á blaðamannafundi eft-' ir frumsýninguna sagðist hin unga leikkona alls ekki geta tekið við Uuiwk » þessu hrósi fyrir dansinn þar sem það hefði alls ekki verið hún sem dansaði! Vildi hún að staðgengill sinn, Marine Jahan, hlyti allt lofið og bað um að það kæmi fram í blaðaskrifum. Ekki voru yfirmenn Jennifer Beals ánægðir með þessa hrein- skilni hennar og óttuðust að athygli áhorfenda yrði ekki hin sama, allir færu að reyna að finna út hvenær Jennifer dansaði og hvenær Marine dansaði. Ekki þurftu þeir þó að hafa áhyggjur af því að uppljóstrun- in kæmi niður á aðsókninni. Kvik- myndin hefur fengið metaðsókn alls staðar. En fyrir þá sem vilja vita meira um Marine Jahan skal upplýst að hún er 24 ára gömul, litil og frönsk. ► Manne Jahan er staðgengill Jennifer Beals í kvikmyndinni Flashdance. og mikill aðdáandi Fred Astaire og Ginger Rogers. Marine Jahan er nú á góðri leið með að slá í gegn út á dansinn í Flashdance og svo það valdi nú engum misskilningi þá dansar hún öll dansatriði kvikmyndar- innar. / fyrstu héldu menn að Jennifery Beals dansaði sjálf en síðar kom annað íljós. ALLIR BÍLAR í HÚSI TRYGGÐIR NJALSGATA ■*T Opiö«hádeginu (iRKTTISÍí ATA úmi 25252 iínui/ LALÍiAVKt.l R X. tbl. Vikan 23

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.