Vikan


Vikan - 05.01.1984, Qupperneq 27

Vikan - 05.01.1984, Qupperneq 27
„Ég sver. . . ég sver,” stundi föli maöurinn. Oskveitandinn spýtti glóandi eldslogum út úr sér. I reykmekk- inum birtist kona. Hún var alls- nakin og sjálfur óskveitandinn gapti af undrun er hann sá fegurð hennar: fínhreistrað hörundið og sveigmjúkar línur lima og hala. Það lá við að hann skelfdist sinn eigin mátt, aö hann skyldi geta framkallað slíka fegurö. En hvað gekk að föla manninum? Hvað skelfdist hann, sá heimskingi? „Þegiðu, þorpari!” mælti ósk- veitandinn skipandi röddu. „Eða er það manni sæmandi að fagna brúði sinni með ópum og óhljóö- um?” „Nei. . . nei. . . !” æptiogvein- aði maðurinn við ástríðuþrungin armlög hinnar ástheitu meyjar. „Þetta er ófreskja. . . skrímsli. . .” „Fábjáni! Þetta er fegursta kona sem ég hef augum litið! Farið þið nú, börnin mín,” mælti óskveitandinn og strauk við- kvæmnistár úr alblinda auganum. „Farið nú og megi blessun fylgja samförum ykkar! ” Röddin sem heyrðist neðst í stiganum kafnaði af mæði í miöj- um klíðum. Oskveitandinn tautaði nokkur valin blótsyrði þegar hann skreið fram á stigapallinn á efri hæðinni. , ,Hvaö gengur á ? ” hvæsti hann. , ,Hver er þarna niðri? ’ ’ „Ég sá plötuna,” sagöi röddin blásmóð. „Og mig langaði að komast aö því hvað þetta ætti að þýða.” „Komdu upp, komdu upp,” svaraði óskveitandinn alúölega en þó meö gremju undir. Og gremjan jókst þegar bið varð á að gesturinn birtist. Þegar hann loksins kom hafði óskveitandinn barið um sig halanum af óþolin- mæöi svo hart og títt aö för voru komin í loðnuna á gólfteppinu. En hann sá að gesturinn hafði nokkuð sér til afbötunar, þótt hann léti á sér standa, því hann var bæði af- gamall og akfeitur svo að kið- fæturnir beinlínis svignuðu undir þeim ósköpum af skvapi og kepp- um sem hann hafði utan á sér og það rétt glitti í sjálft andlitið þar sem það gægðist fram úr undir- hökum og aukakinnum eins og rúsína úr snúð. Virðulegi öldungur,” varð ósk- veitandanum aö orði. „Láttu þér ekki bregða við að sjá mig. Þeir hafa margir hrokkið við og það þótt yngri væru. Hafðu taumhald á hjartslætti þínum efþúgetur.” „Kjaftæði,” másaði Keppur. „Ég kippi mér ekki upp við smá- muni. Búinn að lifa fulllengi og sjá fullmargt til þess. En ég vil fá aö vita hvað þú tekur fyrir snúð þinn. Ágóðahlut? Undirritaðan samn- ing, hvaö?” „Fyrirgefðu, ég skil víst ekki. . . ” „Ég er bísnissmaöur. Volstrít, hafirðu heyrt það nefnt. Ég vil hafa allt hreint og klárt, engar brellur og brögð, kall minn. Allt skjalfest og þinglýst.” Oskveitandinn skellti saman hvoftunum og small viö. „Þrjót- ur!” kvað hann. „Skiptu þér ekki af mínum enda eða okkar við- skiptum er lokið áður en þau hefj- ast. En hafir þú ósk fram að bera þá gersvo.” Það rumdi í fitukeppnum: „Ég óska mér ódauðleika! ” „Já, akkúrat,” varö óskveit- andanum að orði. „Heyrðirðu hvað ég sagði? Ég vil fá að lifa um aldur og ævi. Get- uröu veitt mér það? Er það fram- kvæmanlegt?” „Allt er mögulegt. Osk þín er veitt. Farðu nú.” „Hvaðmeinarðu?” „Mér leiðist þessi bísnisskeim- ur af þér,” nöldraði óskveitand- inn. „Þú hefur fengið ósk þína uppfyllta og nú skaltu hypja þig.” Keppur þuklaði sig allan. „Ég finn enga breytingu á mér,” sagöi hann. „Ég er nákvæmlega eins og ég var. Þú ert/ svindlari!” „Farðu!” öskraöi óskveitand- inn. „Hvaöa sönnun hef ég fyrir því að þú standir við orð þín?” Oskveitandinn spýtti dálitlum loga í krumlur sér. Þegar eld- tungurnar svifu frá kom í ljós lítil flaska. „Taktu þetta og drekktu,” sagöi hann, dró úr henni tappann og rétti Kepp. Keppur brá stút aö vör og kneyfaði. Brúnleitur vökvinn lit- aði varir hans. „Svei attan. . . þvílíkt hland!” sagði hann. „En ef þaö gerir mann ódauðlegan dugir ekki að fást um það.” „Heimskingi! í þessari flösku var banvænt eitur, sem dugað hefði til aö drepa hundrað manns í einni andrá. En þú lifir enn. Skilurðu hvað það þýðir? Eða kennir þú þér nokkurs meins?” „Þú segir það, lagsi, aö þetta hafi verið eitur. En hvernig get ég vitað að þetta hafi ekki veriö sauö- meinlaust kindapiss?” „Asni!” hvæsti óskveitandinn og spýtti nú hlaðinni skammbyssu í krumlur sér. Svo skaut hann hverju skotinu af ööru á Kepp á dauöafæri uns byssan var tóm. „Þá hefurðu það, þinn tortryggni þrjótur,” sagði hann. „Ertu nú ánægður?” „Sjónhverfing,” varð Kepp að orði og enga undrun á honum aö sjá. „Heldurðu að þú blekkir mig, gamlan refinn, með svona al- gengu og hversdagslegu bragði? ” „Þú ert yfirgengilegur,” sagöi óskveitandinn þreytulega. Svo hrækti hann stóru bjúgsverði í krumlur sér. Það sló bliki á beitt, bláfágað blaðið og hvassbrýnda eggina. Oskveitandinn greip klón- um um meðalkaflann, reiddi sverðið til höggs og sneið höfuöið af Kepp í einu bragði. „Gerðu svo vel,” mælti hann og horfði glottandi á augun, sem gláptu á hann úr hausnum sem lá á gólfinu. „Ertu nú sannfærður, fíflið þitt?” „Allt í lagi, allt í lagi,” kraum- aði í hausnum. „Ekki taka þetta persónulega. Þú stendur sjálfsagt við þitt. Ég vildi bara vita vissu mína og þú getur varla láð mér þaö. Og ef þú vildir nú vera svo vænn að setja mig saman aftur — og svo eru víst fáein göt á mér. . . ” „Því miður, væni. Ein ósk. Það er hámarkið.” „En þú getur ekki skilið svona viðmig!” „Því ekki það?” Oskveitandinn terröi fram klærnar og benti á dyrnar. „Farðu!” hvæsti hann og spúði eldi og eimyrju fram á milli samanbitinna tannanna. „Við erum skildir aö skiptum! Ut með þig!” Akfeitur skrokkur öldungsins kjagaði í átt til dyranna. „Og taktu hausskrattann meö þér!” öskraði óskveitandinn á eftir honum. „Hæ, er nokkur heima?” kallaði glaöleg rödd niðri við dyrn- ar. „Ég las á plötuna. Er þetta rétt? Eru óskir til sölu hér? ’ ’ „Hér er ekkert til sölu. En þú getur fengiö eina ósk ef þú nennir aö hafa þig hingað upp. ” Andartaki síöar gægöist gestur- inn inn um dyragættina. Um leið hvarf brosiö af vörum hans og hláturinn þagnaði. „Hvert í heit- asta,” sagðihann. „Ég lagði mig,” tautaði ósk- veitandinn. „Þú mátt líka fara við svo búið.” „Fyrirgefðu,” sagði gesturinn. „Mér gekk ekkert illt til.” Hann var snöggklipptur og hárið tekið að grána. Það varð enn meira áber- andi vegna þess hve brúnn hann var á hörund. „Benson heiti ég,” sagði hann og rétti hinum klófingraða húsráöanda höndina. Oskveitandinn lét sem hann sæi þaö ekki. „Afsakaöu,” sagði hann. „Við erum ekkert að vesenast í smáatriðum hér. Berðu fram ósk þína og gerðu þér ljóst að hún má aðeins veraein.” „Sjálfsagt. Það eru auðvitaö peningar.” „Já, ég skil. Og hvað mundi það nú vera mikið sem þú óskar þér?” Benson hló. „Eins mikiö og hægt er,” sagði hann. „Ekki það að ég sé neinn maurapúki. En mig langar ekki að veröa að þræla þetta stanslaust, nótt og nýtan dag, og detta svo niður dauður af hjartabilun um fertugt. Ég er ekki nema þrjátíu og átta.” „Slúður,” hreytti óskveitand- inn út úr sér. „Ut meö óskina, umbúðaiaust.” „Ökei,” sagði Benson. „Ekkert óheyrilegt. Bara þægilegt. Ætli maður geti ekki lifað þokkalega fyrir svona tvö þúsund dollara á dag. Já, tvö þúsund dollara á dag þaö sem ég á eftir ólifað. Hvernig líst þéráþað?” Oskveitandinn glennti upp ginið og skyrpti móbrúnu umslagi á gólfið. „Gerðu svo vel,”sagði hann. „Því miður get ég ekki staðið í neinu smákjótli. Þú veröur að taka við upphæðinni í einu lagi. ” „Þaö var ekki verra,” sagði Benson glaölega og hirti upp umslagið. Hann þuklaði á því og brosið þvarr. „Heyrðu mig,” sagði hann, „þetta hljóta að vera mistök eða misskilningur. Þaö eru ekki nema fjögur þúsund dollarar í umslag- inu!” En óskveitandinn haföi lygnt aftur augunum. „Þér hafið ekki tekiö rétt eftir. Osk mín hljóðaði upp á tvö þúsund dollara á dag, sem ég ætti ólifaða. Þér megið ekki taka það sem heimtufrekju en. ...” Oskveitandinn var sofnaður. Hann hraut lágt og hvæsandi. Benson yppti öxlum, stakk umslaginu á sig og gekk á brott. Hann gekk hratt í áttina að aðaljárnbrautarstöðinni. Hann ætlaöi að ná í lestina klukkan 5.29. En hann hægöi á sér þegar gamli leiðindaverkurinn fyrir brjóstinu sagði til sín. Hann gekk hægar og hægar. Verkurinn var jafnvel enn sárari og óþægilegri en fyrr. Hann lagöi fram í vinstri handlegginn. Benson náði lestinni sem fór klukkan 5.59. I. tbl. Vikan 27
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.