Vikan


Vikan - 05.01.1984, Page 28

Vikan - 05.01.1984, Page 28
Skotmark í kjamorkustríðs- æfíngum Eyjaklasi í Kyrrahafinu hefur í mörg ár verið notaður sem skotskífa fyrir leynilegar æfingar Bandaríkjahers með kjamorkueldflaugar Bandaríkin gera tilraunir með kjarnorkueldflaugar, með því að skjóta þeim frá Vandenberg flugherstöðinni í Kaliforníu og síðan er fylgst með þeim þar til þær lenda i Kvajalein lóninu í Kyrrahafi. Kvajalein-eyjaklasinn í Kyrra- hafinu, um það bil 3600 kílómetra fyrir suðvestan Hawaii, er sann- kölluö paradís í Suðurhöfum. Fáir ferðamenn sækja til Kvaja- lein-eyja. Á 11 af jjessum 97 smá- eyjum úir nefnilega og grúir af háþróuðum ratsjár- og sjónglerja- búnaði. Algjör leynd hvOir yfir þessari eftirlitsstöð, sem þjónar mikilvægu tilraunahlutverki í viðleitni Reagan-stjórnarinnar til að bæta tæknina í kjarnorkuvíg- búnaði Bandaríkjanna. Eyjarskeggjar búa flestir í Ebeye á stærstu eyjunni, sem eyjaklasinn dregur nafn sitt af. Þegar maður ferðast með göml- um ryðkláf frá Ebeye til her- stöðvarinnar á Kvajalein-eyju fær maður einhverja hugmynd um lífið þarna. Lagt er upp frá nýtísku hafnarmannvirkjum, þar sem mikið er um að vera — bátar, kranar og staflar af vörugámum. Meðfram ströndinni raða létt- byggð einbýlishús sér niður að sandinum. Golfleikarar lötra um fyrsta flokks golfvöll og hjólreiða- menn sniglast eftir götum undir krónum pálmatrjánna. En — þrátt fyrir þetta friösam- lega yfirbragð er það staðreynd að Kvajalein-eyjaklasinn er skot- mark fyrir flugskeytaæfingar á Kyrrahafinu. I þaö minnsta einu sinni í mánuði tekst kjarnorkueld- flaug á loft frá Vandenberg-flug- herstöðinni á suðvesturströnd Bandaríkjanna, sem er í um það bil 6.500 kílómetra fjarlægð frá Kvajalein. Eldflaugin þýtur upp og út fyrir gufuhvolfið, þaðan sem hún sendir óvopnaöa sprengju- flaug aftur í átt til jarðar. Sprengjuflaugin fer með 25.000 kílómetra hraöa á klukkustund og steypist í Kvajalein-lónið með gífurlegum gusugangi. Raunar fara þessar sprengjuflaugar hratt og lónið er risastórt þannig aö fáir koma nokkum tíma auga á þær. Kvajalein gegnir mikilvægu hlutverki í svonefridri MX-áætlun Bandaríkjamanna. MX-eldflaug- arnar draga á milli heimsálfa og bera fjöldann allan af sprengju- flaugum. Á næstu þrem árum verða gerðar tilraunir með flug- hæfni og markhittni þessara eld- flauga. Upplýsingarnar frá Kvajalein verða jafnt notaðar af herforingj- um og stjómmálamönnum, til að dæma um nákvæmni MX-eld- flauganna. Allar umræður um kjamorkuvopn, hvort sem um er að ræða SALT-II viðræðumar um takmörkun langdrægra vopna eöa MX-flaugamar, miða við að eld- flaug hitti skotmark í 9000 kíló- metra fjarlægð og hæfi í helmingi tilfella innan við 250 metra frá skotmarki sem er 20 metrar í þvermál. Það hefur aldrei verið háð eiginlegt kjamorkustríð þannig að þessar upplýsingar fást við tilraunaflug sem lýst hefur verið. Eyjaklasinn þjónar líka því hlutverki að prófa vopnakerfi sem ætluð eru til vama í borgum og herstöðvum. Um leið og eldflaug stefnir í átt að eyjunum fer eld- flaugavarnakerfið þar í gang og tölvustýrð leitartæki fylgjast meö flugi „árásarflaugarinnar”. Árið 1962 tókst í tilraunaflugi að skjóta niður í fyrsta skipti aðvífandi eld- flaug með gagneldflaug (ABM, Antiballistic missile). 28 Vikan I. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.