Vikan


Vikan - 05.01.1984, Page 34

Vikan - 05.01.1984, Page 34
Tækni — vísindi Þróun á tæknisviöinu verður ör og nokkrum mikilvægum áföng- um náð á árinu. Eftirtektarverð- ur árangur mun fást úr Sojus- Saljút tilraun Sovétmanna og lagður grundvöllur að mannaðri vísindastöð sem endanlega verður komið fyrir úti í geimnum. Sovét- menn og Bandaríkjamenn eiga þar saman hlut að máli. Gerðar veröa tilraunir með raf- magnsframleiðslu á nýstárlegan hátt með því að beisla hreyfingu jökla á noröurslóðum. íslendingar munu fylgjast af athygli með þessum tilraunum. I sumum löndum mun blanda af alkóhóli og bensíni leysa olíu af hólmi í vaxandi mæli aö því er tekur til farartækja. I Bandaríkjunum verður farið að selja tölvur sem tengja má þjónustukerfi flugfélaga, bílaleiga og annarra aöila sem tengjast ferðamálum og samgöngum. Þessar tölvur geta menn haft heima hjá sér og fengiö um þær hvers konar upplýsingar um feröalög, hótel og því um líkt, gert sér grein fyrir veröi og pantaö, fengið staðfestingu á pöntuninni og þess háttar. Kjarnasamruni færist sífellt nær því marki að verða vel nýt- anlegur til meiriháttar orkufram- leiðslu. Lögö verður áhersla á að fullkomna vélmenni og „getu” þeirra til að „þekkja” hluti og svara mannsröddinni. Uppgötvanir verða gerðar í kortlagningu heilans og erfða- fræðirannsóknir munu auðvelda lækningu sjúkdóma sem orsaka lömun. Einnig næst mikilsveröur áfangi á sviði krabbameinslækn- inga og krabbameinsvarna. Vísindamenn veröa í árslok ekki nema hársbreidd frá aö uppgötva orsakir krabbameins og veldur það byltingu í baráttunni við þennan vágest. Einnig næst mik- ilsverður áfangi í framleiðslu lyfs við sykursýki. Að lokum má geta þess að á árinu 1984 sækist fólk eftir því í ríkari mæli í vissum löndum að verða djúpfryst þegar á dánarbeði heldur en láta grafa sig eða brenna eftir dauðann. Fólk í fréttum — úti í heimi... Æðstu menn risaveldanna, sem nú eru þar í forsvari, munu báðir láta af störfum á árinu. Miklar mannabreytingar eiga sér staö samtímis í æðstu stööum hjá báðum þessum þjóðum. Henry Kissinger fær aftur stórt hlutverk í stjórnmálunum en Grómíkó veröur ekki eins í sviðs- ljósinu og áður. Frakklandsforseti á í vök að verjast gegn fyrrum borgarstjóra Parísar. — Övæntur atburður verður til þess aö Arafat veröur endanlega ýtt til hliðar sem helsta málsvara PLO. Lech Walesa hyggur á ferð til Vesturlanda til að kynna málefni Póllands og leita fjárhagsaðstoðar en fær ekki fararleyfi. Isabella Perón, fyrrum forseti Argentínu, reisir við Perónista- flokkinn í Argentínu. Hún verður kölluð heim frá Spáni og veröur aftur í sviðsljósinu í Argentínu. Carrington, næsti framkvæmda- stjóri NATO, kemur til íslands á árinu í sambandi við mikilvæga málaleitan viö íslendinga. Nixon, fyrrum forseti Bandaríkjanna, kemur heiminum á óvart með yfirlýsingu sem tekin veröur alvarlega í Kreml. Leitað verður til Jamani, olíu- málaráöherra Saudi-Arabíu, varðandi sáttaumleitanir milli stríðandi afla í Miðausturlöndum. Rainier fursti í Mónakó giftist aftur á árinu. Konuefnið er kona sem blaðamenn Evrópu hafa lengi leitað eftir viðtali viö. Mikið uppi- stand verður innan konungsfjöl- skyldu á Norðurlöndum. Stjarna Billy Joel mun rísa hærra á þessu ári en nokkru sinni fyrr og nálgast vinsældir hans vin- sældir Elvis Presley á sínum tíma. Auk Billy munu vinsælustu söngvararnir verða Kenny Rogers og Dolly Parton. Genesis grúppan eykur vinsældir sínar út allt árið — og strákarnir í Mezzoforte bók- staflega „velta” Irlandi. Þeim verður vel tekið í Japan og komast þar á vinsældalista. Þeir eiga líka r eftir að láta til sín heyra í Banda- ríkjunum. .. . og hér heima Mikið verður rætt um breyting- ar innan ríkisstjórnarinnar — hvort og hvenær hinn nýi for- maður Sjálfstæðisflokksins taki við ráðherraembætti. I sviðsljósinu veröa þeir Þorsteinn Pálsson, Albert Guð- mundsson og Matthías Á. Mathiesen, en þeir tveir síðast- nefndu munu skipta um stóla — þó ekki hvor við annan. Líklegt er að Þorsteinn fái ráöherraembætti á árinu. Að slepptum stjórnmálunum veröur útgerðin mikið í fréttum og einstakir menn innan hennar, svo og LIU með Kristján Ragnarsson í broddi fylkingar. Kristján mun gerast talsmaöur sjónarmiða ríkisstjórnarinnar og eiga fullt í fangi með að gegna sáttasemjara- starfi í komandi viðræöum. Aöalheiöur Bjarnfreðsdóttir kemst einnig í þá aöstöðu að þurfa að gegna eins konar sáttasemj- arastarfi í umræðum um lág- markslaun og við hvaö þau skuli miðuð. Ráðstöfun þingsæta á Alþingi verður í fréttum í byrjun ársins og verða margar yfirlýsingar gefnar um málið. Morgunblaðsritstjóri veröur kosinn formaður nefndar á vegum ríkisins. Þessi nefnd á eftir að vinna þarft verk og viöurkennt. Þarna er um að ræða einhvers konar hjálparstarf. Forstöðumenn hinna nýju greiðslukorta hérlendis munu fá sinn skerf af sviðsljósinu. Samkeppni þessara tveggja fyrir- tækja veröur geysihörö, strax á fyrstu mánuðum ársins. Vegna loðnuveiðanna verða fiskifræðingar stöðugt í fréttum strax eftir áramótin og munu þeir ekki allir mæla fyrir sömu rökum. Embættismaður hjá utanríkis- ráðuneytinu stendur í ströngu vegna samninga viö Bandaríkja- menn um fiskveiðar okkar í bandarískri landhelgi. Mjög skeleggur maöur tekur viö starfi þingfréttamanns hjá sjón- varpinu en mun eiga í stímabraki við stofnunina þegar til ákvörö- unar kemur um val á útsendingar- efni. Miklar deilur rísa um sölu hluta- bréfa ríkisins og kemur þar við sögu mjög harðsnúinn aðili með stóran hóp fólks að baki og fær því framgengt sem hann vill gegn vilja hins opinbera. Forstjórar fyrirtækja munu hvetja starfsfólk sitt til að stunda heilsurækt eða orkubót, eins og það er kallað, og munu staöir sem bjóða upp á þannig aðstöðu fyllast svo eftirspurn verður vart annað. Seint á árinu kemur út samtals- bók við frumherja í samgöngu- málum Islendinga og veröur þar margt að finna sem fólki kemur á óvart. Þetta verður metsölubók. Breyting veröur á forystu Alþýðuflokksins og ritstjóraskipti á Tímanum — og reyndar víðar í blaðaheiminum. Guðlaugur í Karnabæ kemur fram meö nýmæli í verslun meö tískufatnað og veröur fatnaður nefndur eftir honum! Vikan vill taka fram í lokin að spá þessi er unnin eftir samtali við völvuna sem sagt var frá í upphafi og eftir miðum sem hún hafði skrifað áöur en Vikan hafði sam- band við hana. En völvan vissi af því fyrirfram og hélt því ýmsu til haga sem hún hefði ella látið fara forgörðum, eftir því sem hún sagði. Rétt er einnig aö benda á að spáin er unnin um mánaöamótin nóvember/desember, svo vera má að eitthvað af ofansögðu hafi þegar ræst er spáin kemur fyrir almennings sjónir. 34 Víkan 1. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.