Vikan


Vikan - 05.01.1984, Page 39

Vikan - 05.01.1984, Page 39
töluðum við lítiö eftir þetta. Mér er nákvæmlega sama hvaö það veit eöa veit ekki, ekki leiðrétti ég þetta gabb og við ákváðum fljót- lega að flytja burt um leið og við gætum losnað úr vinnu. Það gekk mjög greiölega. Viö þurftum að koma ýmsum praktískum málum á hreint áöur en við fórum alfarin burt. Ég lét manninn minn um þetta, ég haföi ekki geö í mér til að sjá neinn þarna framar. Ég veit ekki hvort fólk gerir sér grein fyrir aö svona lagað geti skeð. Þetta er síst af öllu ofsagt sem ég segi hér. Það má frekar bæta 100% við allt sem ég segi, svo algjör urðu umskiptin. Við fluttum í skyndi í hjólhýsahverfi á öðrum stað í landinu, þó viö heföum vel ráð á aö búa betur. Við fengum okkur ekki vinnu aftur þarna, nema ég fór í íhlaupavinnu einu sinni, aðallega til aö drepast ekki úr leiðindum og þunglyndi. Við vorum heppin að vera ekki veik fyrir víni, ég er viss um að við heföum orðið alkóhólistar á þessum tíma ef við heföum haft nokkra tilhneigingu í þá átt. Viö höfðum að vísu alltaf haft vín um hönd en þá aðallega í partíum og okkar líf og yndi er dans. Viö fórum samt lítið að dansa á þessu tímabili eftir áfallið. Viö fórum stundum í bíó en aöallega vorum við að reyna að finna okkur einhvern samastað í tilverunni eins og sagt er. Við vissum hreinlega ekkert hvar við ættum heima eöa hvort við ættum yfir höfuð nokkurs staðar heima. Hann vildi helst að viö létum reyna á Ástralíudrauminn en ég vildi það alls ekki, mér fannst aö sama sagan hlyti að endurtaka sig þar. Ég hef heyrt aö það geti verið svolítið einmanalegt í Ástralíu og ég gat bara ekki hugsað mér að fara þangaö. Ég veit ekkert hvað er til í þessu. Við vildum ekki búa áfram í þessu landi, þó fólk sé þar sjálfsagt innbyrðis mjög ólíkt. Við vildum komast burt og eignast heimili en viö vissum ekki hvar. Ég held aö það geti enginn skilið þessa tilfinningu nema hafa reynt hana. Seinast ákváðum við að freista gæfunnar aftur hér heima. Við fluttum til Reykjavíkur, okkur gekk illa að fá húsnæöi en betur að fá vinnu og þetta bjargaðist allt einhvern veginn af því við vorum barnlaus. Þrátt fyrir þá lífs- reynslu sem við höfðum gengiö í gegnum úti, og litla trú á út- landinu, þá var visst sjokk að koma heim. Kuldinn og vindurinn, öll veðráttan virtist fjandsamleg. Umferðarmenningin fyrir neöan allar hellur og allt svo stressaö og vinnuþrælkað. Þaö lá viö að viö legöum aftur í búferlaflutninga en niðurstaðan varð samt sú að við ákváöum að þrauka veturinn. Viö höfðum selt allt okkar úti og urðum að koma okkur fyrir upp á nýtt. Við vildum ekkert sem minnti á það sem við gátum varla talað um. Eg hef engum sagt þessa sögu fyrr. Nú erum við búin aö vera hér heima í mörg ár, við erum búin að ná okkur eftir þetta og sætta okkur við að fólk geti veriö svona ómerkilegt. Við höfum hvort annað og við höfum í seinni tíð eignast kunningja, kannski vini. Við lifum rólegu lífi og sláum svo sannarlega ekki um okkur. Annars held ég aö það sem gerðist þarna úti geti varla gerst hér á landi. Ég held að þó margt ljótt megi segja um Islendinga og smá- borgaraskapinn sem á þeim er stundum sé þessi hugsunarháttur þeim framandi. Eg hef lært að meta margt hér heima, þó ég viröist sjálfsagt bitur út í allt og alla. Við förum stundum til þess staðar sem ég er frá og það eru ánægjulegar heimsóknir. Fólk hefur sætt sig við okkur eins og við erum þó við séum kannski óvenjulegt par miöað við þennan stað. Það er fallegt þar og mér finnst líka fallegt hér í Reykjavík. Við höfum reynt aö víkka okkur út andlega meö því aö stunda hug- rækt og fara á ýmis námskeið og ég held að við séum búin að finna okkur stað í tilverunni. Það gæti svo sem alveg verið aö við tækjum okkur einhvern tíma upp aftur og freistuðum gæfunnar á nýjum stað á nýjan leik. Við erum bæöi mjög leitandi. En ég held að við yrðum alltaf tor- tryggin í garð þeirra sem við umgengjumst í öðru landi eftir þessa lífsreynslu. Eflaust eru þetta fordómar að einhverju ieyti en ég held ég segi þessa sögu fyrst og fremst til að vara aðra við sem fara að leita að lífshamingjunni í öðru landi, hugsunarhátturinn er ekki alls staðar eins og fyrst þetta gat gerst, nákvæmlega svona, hjá okkur þá finnst mér rétt að fleiri fái að vita það, bara svo þeir skilji að ekki eru allir viðhlæjendur vinir og lífsbaráttan erlendis er stundum mjög harkaleg og smjaður á miklu hærra stigi en hér. Mér fannst áður nóg um fá- læti íslendinga en ég vil það miklu heldur en einhverja skælbrosandi framan í mig sem eru horfnir um leiö og þeir halda aö maður eigi enga peninga lengur. Lægra held ég sé ekki hægt að komast. Framvegis mun Vikan birta sögur af lífinu og tilverunni eins og fólkið segir þær sjálft. Margar þessar sögur verða mjög persónu- legar og snerta fleiri en sögumennina sjálfa. Þær verða því ekki birtar undir nafni. Tilgang- urinn er að gefa lesendum hlutdeild í lífsreynslu annarra og oft er það svo að með því að kynnast því sem gerist hjá öðrum finnur maðurinn að hans vandamál er ekki þvílíkt einsdæmi sem hann hélt. Við eigum nú þegar nokkuð margar sögur en tökum fúslega við fleiri. Veitt verður lOOO^króna þóknun fyrir birta sögu. Þær má senda til Vikunnar, pósthólf 533, 121 Reykjavík, eða hafa samband við blaðamenn Vikunnar sem þá hjálpa til við að koma sögunum ámMír 1. tbl. Vikan 39

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.