Vikan


Vikan - 05.01.1984, Side 43

Vikan - 05.01.1984, Side 43
FRAMHALDSSAGA Einhver í vélinni . . . Gussie Bingham . . . Nei, það var í það minnsta óhugsandi. Nigel sagði fýlulega: „En kæra frú Bingham, ég get ekki fengið mig til að trúa að forlögin hafi áhuga á fyrirbærum eins og að láta kol detta á teppiö í setu- stofunni þinni eða þoku sem seinkaði lestinni þinni eða þá því aö myndir í vegabréfum sýna mann ævinlega svo óþægilega ankannalegan að þú fannst þig knúða til að hlæja að því meö vin- konu þinni. Sjálfur hef ég meiri áhuga á sálfræði og það er sann- færing mín að þú skildir vegabréf- iö eftir á píanóinu... ” Dany stóð snöggt á fætur. Hún kæröi sig ekki um að heyra meira um vegabréf eða Airlane eða nokkuð annað sem neyddi hana til að hugsa um skelfilega og hræðilega hluti og hún rétti Lash samanbrotna kápuna sína og sagöi stutt í spuna: „Ég kem aftur eftir andartak. ’ ’ „Er allt í lagi?” spuröi Lash, stóð hálfvegis á fætur til að hleypa henni framhjá. „Þú ert svolítið grænleit.” „Nei. Þaö er allt í lagi meö mig, þakka þérfyrir.” Hún gekk hratt eftir ganginum og forðaði sér inn á kvenna- salernið, þar sem hún stóð og borfði út um gluggann á breiðan bláan himin og lítil letileg ský. En hugsanir hennar höfðu fylgt henni og hún gat ekki haft hemil á þeim. Gussie Bingham. . . Millicent Bates. . . Jembe. . . hr. Honeywood. Morð í Market- Lydon... Dany gafst upp og settist aftur í sæti sitt. Örsmár drekafluguskuggi flug- vélarinnar flögraði yfir leirugt, grænt vatn, gróörarfen og pálma- skóga. . . Mombasa. „Vinsamleg- ast takið eftir. Skiltið sýnir hvenær á að festa sætisólarnar. Eftir fáeinar mínútur munum við lenda... ” Farþegarnir þrömmuöu skyldu- ræknir út í miskunnarlausa birt- una og salta sjávarangan og á meðal þeirra tók Dany eftir granna arabanum í hvítu jakka- fötunum sem hún hafði séö Salim Abeid tala svo æstan við í Nairobi þá um morguninn. Þaö leit út fyrir að fleiri í flug- vélinni könnuðust við hann því þegar Nigel Ponting kom auga á hann yfirgaf hann frú Bingham og hraðaði sér á eftir honum. Þeir tókust í hendur og stóðu og töluðu saman í nokkrar mínútur á heitri, rykbundinni mölinni. Þegar Dany gekk framhjá þeim heyrði hún að einkaritari Tysons sagði: „Ég vona innilega að þú hafir skemmt þér dásamlega. Satt að segja er Nairobi ekki að mínum smekk. En það er auðvitað öðruvísi fyrir þig — þú átt vini þar. Ég fór aftur á móti upp í norðurhéruöin með Bunny og. . . ” Orðin „unaðslega blátt áfram” ofsóttu hana þegar hún komst í skuggann af inngangi flughafnarinnar. Salim Abeid — „Jembe” — tróðst framhjá henni, virtist langt frá því að líöa vel og stefndi yfir í hinn hluta salarins, þar sem hann settist niður við lítið borð, pantaði sér bolla af svörtu kaffi og tók að lesa arabískt blaö sem hann hélt um með höndum sem titruðu greinilega. Það var heitt og margt fólk í biðsal flugstöðvarinnar og þar sem Lash hafði skilið Dany eftir eina síns liðs keypti hún tímarit af handhófi við blaðasöluna og settist tiltölulega afskekkt meö það skammt frá súlu. En hún las það ekki. Hún sat og horfði blindum augum á prentaða síðuna og hlust- aði annars hugar á kliðinn um- hverfis sig þar til athygli hennar beindist að stórri innrammaöri auglýsingu fyrir innlent flugfélag. Auglýsingin hékk á súlunni svolítið til vinstri við hana. Hún sá að auglýsingin var mál- uð á spegil og í honum sá hún bláa lokka Gussie Bingham speglast, búöingsskálarhatt Millicent Bates og blómum líkt andlit Amalfi Gordon. Amalfi, hugsaöi Dany, var ekki upp á sitt besta þennan morgun. Henni virtist vera heitt og hún leit út fyrir að vera töluvert gröm. Samræðurnar viö Eduardo di Chiago, en myndarlegur valslíkur vangasvipur hans var rétt grein- anlegur yst í speglinum, virtust vera leiöinlegar að hennar mati. Hún svaraði honum með einsat- kvæðisorðum og augnaráöið var reikult. Aftur á móti leit frú Bingham út fyrir að skemmta sér. Hún var að hlæja aö einhverju sem einhver hafði sagt og skyndilega var tryllingsleg hugmyndin um aö hún hefði kannski staðið í ein- hverju sambandi við morðið á hr. Honeywood orðin fullkomlega fáránleg. Ef til vill hafði þaö veriö arabinn, Jembe, þegar allt kom til alls. Eða þá að þaö var einhver ókunnugur maður í flugvélinni frá London sem hún hafði ekki veitt neina athygli. Eða jafnvel Sir Ambrose Yardley! Fullkominn fáránleiki þessarar síðustu hug- myndar kom Dany til að brosa dauflega: hún var að leyfa ímyndunaraflinu að hlaupa meö sig í gönur! Og hvað sem öllu leið hafði Sir Ambrose ekki verið í Nairobi kvöldið áður. Það hlaut að hafa verið einhver ókunnugur. . . Hópurinn í speglinum tvístrað- ist og gekk burt og hún sá ekki lengur spegilmynd neins sem hún þekkti. Farþegar annarra flug- véla komu og fóru aftur og hávað- inn jókst um leið og þrengdist í biðsalnum. Dany var komin með óþolandi höfuðverk og sérhvert hljóð í öllum gauraganginum jók enn á óþægindi hennar: óvært indverskt barn sem volaði með niðurdrepandi þráa, brothljóöið þegar bolli valt og gutlið í vökva sem helltist niður, skrækt, fliss- andi blaöur hóps af arabískum matrónum og hávær hlátur ungra plantekrumanna í kringum bar- inn. „Þú hefur aldrei sagt mér að þú gætir lesið arabísku,” sagði Lash fyrir aftan hana. Dany hrökk ofboðslega við, beit sig í tunguna og beindi í fyrsta sinn augunum að blaöinu sem hún hélt á, sá að þaö var í raun og veru prentað með gjörsamlega fram- andi letri. Lash teygði sig yfir öxlina á henni, tók tímaritið úr höndum hennar, sneri því við og rétti henni þaöaftur. Hannsagði: „Þúverður að afsaka aö ég nefni það, ungfrú Kitchell, en það er bókstaflega ekkert jafnáberandi og einhver sem þykist vera að lesa blaö sem hann heldur á hvolfi. Og þessi frakki vinur þinn, blaöasnápur- inn, hefur verið að horfa á spegil- mynd þína í spegilbrotinu þarna meö töluverðum áhuga. Þetta er leikur sem tveir geta leikið. Ef til vill kann hann bara vel við rauð- hært kvenfólk — en svo gæti hann á hinn bóginn haft aðrar hug- myndir.” Dany sagði andstutt: „Larry Dowling? Hvaða hugmyndir? Hann — hann getur ekki vitað neitt. Og hvað sem því líöur hefur hann ekki áhuga á öðru en fólki eins og Tyson. Og stjórnmálum.” „Það er sem sýnist,” sagöi Lash þurrlega. „Morð er alls staðar fréttnæmt. Svo þú skalt bara hætta aö hegða þér eins og þú hafir heilt tonn af sekt á sam- viskunni. Þaðsést.” „Mér þykir það leitt,” sagði Dany lágróma. „Þetta er allt í lagi. Það verður ekki mikið lengur. Viö erum næstumkomin.” „En ekki alveg,” sagði Dany skjálfróma. „Hvar er baráttuandinn?” „Ég hef engan. — Ekki í svip- inn.” Lash sagöi: „Veslingurinn litli.” En hann sagði það ekki háðslega. Og svo kvakkaði líkamslausa röddin aftur úr hátalaranum og skarst í gegnum þoku skvaldursins í þéttsetnum biðsalnum. „Farþegar með flugi núll þrír fjórir til Tanga, Pemba, Zanzibar og Dar-es-Salaam. . .” Þau gengu út í glampandi sólskinið og hafgolan söng í kasúrínutrjánum og þyrlaöi heit- um sandkornum á fótleggi þeirra. Þau fengu sér sæti í flugvélinni sem beið þeirra, festu sætis- ólarnar samviskusamlega og drápu í sígarettunum. Larry Dowling, sem sat rétt fyrir aftan Dany hinum megin við ganginn, kallaði: „Hæ — flugfreyja! Það vantar einn. Ekki loka. Sessu- nautur minn er ekki kominn enn- þá. Hr. Salim Abeid.” Flugfreyjan brosti meö umburðarlyndum svip kennslu- konu sem sinnir treggáfuðum nýj- um nemanda og sagöi blíðlega: „Þakka þér fyrir, ég er með list- ann. Þú þarft engar áhyggjur að hafa. Hann kemur eftir andar- tak.” En fimm mínútur liðu og svo tíu, og þó flugvélin titraði af vélargný bærðist hún ekki og farþegarnir geröust órólegir, sneru sér viö og gægðust aftur að opnun dyrum eða horföu áhyggju- fulliráúrinsín. „Hvað er það sem tefur okk- ur?” spurði feitlaginn maður í sæti fremst í vélinni. Hann reis á fætur og horfði eftir ganginum, rautt andlit hans var aö verða fjólublátt af hneykslun. „Viö kom- um of seint ef það heldur svona áfram og ég er að fara á ráðstefnu í Tanga klukkan 10.15. Heyrðu! Flugfreyja — ungfrú.” Flugfreyjan sneri sér við og brosti björtu atvinnubrosi. „Andartak, herra minn.” Hún 1. tbl. Vikan 43

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.