Vikan - 05.01.1984, Qupperneq 47
af framandi austrænu kryddi og
heitu ryki, ilmur af sandalviö,
frangi-pani og negul. Hljómur
hlátraogtónlistarogtrumba. . . .
í hinum enda bæjarins fóru þau í
gegnum sóöalegt fátækrahverfi,
ljóta þyrpingu hreysa úr ryöguöu
blikki, bárujárni, molnandi
moldarveggjum og rotnandi
hálmþökum. Þaö gaf ungfrú Bates
tilefni til aö halda fyrirlestur um
dugleysi Austurlandabúa og
óafsakanlega heimsku austur-
lenskra kynþátta sem gagnrýndu
milda blessun breskra yfirráða.
Vegurinn lá yfir brú á illa þefj-
andi læk og meðfram grunnri vík
meö leöjubökkum þar sem niður-
níddir skrokkar fomra dhowa lágu
strandaðir handan við þaö sem
flóðið náði. Og svo voru þau aftur
komin inn á milli trjáa; skógar af
kókospálmum, þétt rjóöur af
mangótrjám og skipulegar negul-
plantekrur.
„Hvaö heldurðu að sé langt eftir
þangað?” spurði Millicent Bates
eirðarlaus. „Ég hefði haldiö að
Tyson hefði vit á að búa nær flug-
vellinum.”
„Þaö var enginn flugvöllur fyrir
hundraðárum,” sagði Dany.
„Ha? 0 — ó, ég skil. Jæja, þetta
er samt skolli gremjulegt. Mér er
sama þó ég segi þér að ég gæti vel
þegið sterkan tebolla. Við Gussie
drekkum alltaf te klukkan ellefu
og það er eitt af því sem ég sakna.
En með þessu áframhaldi verður
komið skrambi nálægt hádegis-
verði um þær mundir sem við
komum í þetta skuggahús Tysons.
Skuggalega hús. ...”
Millicent hnykkti höfðinu aftur
og hló ákaflega að eigin fyndni.
„Þessi var ekki sem verstur! Ég
verð að muna eftir að segja Gussie
hann. Og ég þori að veðja að hann
er ekki heldur fjarri lagi! Af því
að dæma sem maður hefur heyrt
um Rory gamla Frost þykist ég
vita að ýmislegt skuggalegt hafi
gerst í þessu húsi. Og ég get trúað
Tyson til margs! Hann mundi
horfa á ömmu sína bútaða niður ef
svo vildi til að hann þyrfti
nákvæmar upplýsingar um krufn-
ingu fyrir kafla í einhverri bókinni
sinni. Allir af Frost-ættinni hafa
verið harðjaxlar — eða þá klikk-
aðir eins og Barclay gamli. Ég
botna ekkert í hvernig Gussie. ..
Jæja, þarna virðist það loks
vera. Framhald í næsta blaði.
HyaÖ gerur
miöii
liappdiætti
SÍRS?
Hann gefur þér gott tækifæri til að hreppa vinning allt upp í milljón
— eða einn þeirra mörgu sem eru lægri en munar þó um.
Og hver seldur miði á þátt í að gefa þúsundum betri tækifæri til að
endurheimta heilsu sína og þrek. Öllum ágóðanum er varið til að
byggJa UPP þá aðstöðu sem SÍBS hefur skapað til endurhæfingar
og starfa við hæfi fólks sem hefur skert starfsþrek. .
Happdrætti SÍBS
1 hagur þinn og heildarinnar
URVAL
BOK / BLAÐFORMI
Geríst áskrífendur í sima 27022
1. tbl. Vikan 47