Vikan


Vikan - 05.01.1984, Blaðsíða 58

Vikan - 05.01.1984, Blaðsíða 58
Barna—Vikan agan af enn: llu ollu Texti og mynd: Anna Einu sinni var kýr og hún hét Bullu- kolla. Sumir sögðu aö hún væri frænka hennar Búkollu, þið munið, úr ævintýr- inu, en enginn vissi það með fullri vissu. Þessi saga gerðist fyrir æva- löngu, fyrr heilum sjö árum, sem er alveg óskaplega langt eins og þið vitið. Stelpan á baaium hennar Bullukollu var eitt sinn send til að sækja kýmar alla leið upp að stíflu. Þegar hún kom með kýmar til baka tók hún eftir því að Bullukolla var horfin. Þetta var í ágúst, klukkan orðin hræðilega margt og tekið að skyggja. Samt sem áður ákvað stelpan að reyna að finna Bullu- kollu strax. Hún hélt af stað og gekk yfir skurði og þjóðveginn alla leið upp að stíflu. En hvergi var Bullukollu að sjá. Þá heyrði hún kýrgrát inni í stífl- unni. Þið haldið kannski að kýr geti ekki grátið en það getur hún BuÚukolla og það vissi stelpan alveg, þó hún þyrði ekki að segja neinum það. Henni fannst ekkert sniðugt að vera kölluð asni og maður er alltaf kallaður asni ef maður segir eitthvað sniðugt, nema maður sé stærri, sterkari, feitari og frekari en allir hinir. Og það var stelpan ekki. „Bullukolla mín,” hrópaði hún inn í stífluna. „Elsku, hjartans Bullukolla mín, ertuþarna?” „Já,” snökti Bullukolla. „Stíflu- skessan tók mig og segist ætla að nota mig í uppfyllingu. Hún segist vera orð- in hundleið á að tína grjót í stífluna sína. Grjót sé allt of þungt að bera og það kunni ekki að ganga eins og kým- ar.” „Elsku, góða Bullukolla,” sagði stelpan þá. „Vertu róleg, ég skal bjarga þér.” „Gott,” snökti Bullukolla. Aumingja stelpan sagði þetta bara til að hugga Bullukollu. Hún hafði ekki hugmynd um hvemig hún ætti að bjarga heilli kú úr stíflu. „Er skessan þama inni?” spurði stelpan. „Nei,” volaði Bullukolla. Stelpan kveikti á vasaljósinu sínu og beindi því inn að stíflunni. „Sérðuljós?” „Ha?” sagði Bullukolla. „Sérðu ljós?” sagði stelpan aftur. „Nei,” sagöi Bullukolla. Stelpan varð mjög glöð. Hún vissi að Bullu- kolla var svo mikil bullukolla að hún sagði hérumbil alltaf vitlaust til. „Reyndu að troða þér í áttina að ljósinu,” sagði stelpan við Bullukollu og andartaki síðar stóð kýrin ljóslif- andi í geislanum frá vasaljósinu. En þá heyrðust ægilegir dynkir fyrir ofan stífluna. „Skessan,” sagði stelpan. „Komdu, Bullukolla, við verðum að reyna að komast heim strax.” Að svo mæltu ruku þær af stað. Þær hlupu niður að þjóðvegi en skessan kom æðandi á eftir þeim. Skessan var miklu stórstígari en lítil stelpa og kýr svo hún var alveg á hæl- unum á þeim þegar þær sluppu yfir þjóðveginn rétt áður en löng lest vöm- bíla kom æðandi. Skessan varð að nema staðar meðan vörubílamir óku framhjá og á meðan gátu stelpan og Bullukolla forðað sér niður eftir tún- inu. En þær vissu að brátt næði skessan þeim svo þær hröðuðu sér yfir túnið. Þung skref skessunnar heyrðust á túninu og Bullukolla og stelpan flýttu sér yfir Stóraskurð, tóku svo brúna af og fleygðu henni í skurðinn. Þær von- uðu að skessan væri ekki svo stór að hún kæmist yfir skuröinn þegar brúin væri farin. Og það var rétt. En skessan 58 Vikan l. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.