Vikan - 05.07.1984, Side 13
Rigningarsuddi í París gerir
umhverfiö vægast sagt gráleitt
yfir að líta. Engin máluö þök og
húsveggir í öllum regnbogans
litum eins og heima á Islandi
heldur múrinn grár og þökin
sömuleiðis. Örlítið grænt hér og
þar lífgar upp veröldina og litla
Parceyjan úti í Signu í Neully
virðist sem vin í eyðimörk.
Leiðin liggur um stórar marm-
aratröppur í háhýsi og inn í
rúmgóða bjarta skrifstofu með
ljósum húsgögnum. Yfirbragðið
er nútímalegt. Viðmælandi okk-
ar að þessu sinni er Gaynor
Lambert og hressilegt bros
hennar ásamt Utríkum tísku-
myndum á veggjum gefur tUver-
unni aftur líf og Ut. Einstaklega
faUegur rauður Utur á sumum
fatanna á myndunum breytir
grámósku dagsins. Gaynor
hlær: „Þetta er einn af
uppáhaldsUtum Giannis — og
blár líka. Grátt og svart notar
hann mikið með — bjartari Uti
aðsumrien vetri.”
Hún er yfirmaður almanna-
tengsla á alþjóðamarkaðnum —
fyrir Gianni Versace — og fer til
MUanó aðra hverja viku. Starf-
inu fylgja mikil ferðalög allan
ársins hring. Er annars ensk að
uppruna en hefur unnið hjá
Charles of the Ritz í París í 11 ár
og verið hjá Versace síðan 1980.
„Það er ekkert óalgengt að
finna konur í slíkum stöðum í
ilmvatnsiðnaðinum, hins vegar
er þaö mjög sjaldgæft í öðrum
atvinnugreinum. Ég á sjálf ekki
fjölskyldu aö annast þannig að
það er auðveldara að sinna
starfinu en annars væri. Það
hlýtur að þurfa mjög sérstaka
konu til þess að sameina hvort
tveggja. En takist það getur það
haft góð áhrif á sambandið,
heldur kannski manninum á
mottunni!
Besti hluturinn í þessu starfi
er að sjá hugmyndir verða að
veruleika, hugmyndir sem eru
allt í einu orðnar að áþreif-
anlegri vöru. Gianni Versace er
mjög indæll maður, góður í sam-
vinnu og hlustar vel á hugmynd-
ir annarra, fylgir eftir hverju
smáatriði — lyktar til dæmis af
hundruðum prufa áður en hann
ákveður hvaða ilmvatn er notað.
Síðan er umbúðavalið ekki
minna virði. Þegar ilmvatnið
hans var á leið á markaðinn rétti
hann okkur steinklump og sagði:
„Þetta er nákvæmlega það sem
ég vil hafa í hendinni, fá þessa
tilfinningu.” Það er ekkert sem
frá honum kemur sem hann hef-
ur ekki hannað sjálfur frá upp-
hafi og hann er mjög hrifinn af
náttúruefnum og -formum.
Taktu til dæmis eftir gráa
litnum í umbúðunum fyrir
baölínuna, þar sameinar hann
litina frá sínu eigin baðherbergi.
Vinnufélagamir fá oft ýmsar
góðar hugmyndir en hann er
snillingurinn að baki öllu og
stendur því feti framar. Hann
hefur sístarfandi heila, er Suður-
ítali og dæmigerður sem slíkur,
mikill Itali og snillingur sem
hugsar svo hratt að stundum er
Á Norðurlöndum er haft á
orði að ítalskar fjölskyldur
hljóti að vera þær sam-
heldnustu í veröldinni, fjöl-
skylduböndin virðast
ótrúlega sterk. Það ætti
því ekki að koma neinum á
óvart að ítalinn Gianni
Versace hóf störf í verslun
móður sinnar og í eigin
fyrirtæki síðar voru nán-
ustu samstarfsmennirnir
bróðir hans og systir. Og á
því er engrar breytingar að
vænta.
27. tbl. Vikan 13