Vikan - 05.07.1984, Síða 29
Porsche 908/3 frá 1968. Þessi kappakstursbíll
er búinn átta strokka vél sem er 2997 rúm-
sentímetrar og kemst hraðast 320 kílómetra á
klukkustund.
Bræðurnir fóru á hausinn en bflasafnið stendur enn
þaö hjálpaði lítiö því aö lokum fór
svo aö fyrirtækið fór á hausinn.
Þetta var áriö 1976 og tók þá ríkið
bílasafn þeirra bræöra upp í
skuldirnar. Þaö er vitað mál aö
hefði hver bíll verið seldur á upp-
boöi hefði bræðrunum sennilega
tekist aö borga skuldir sínar og vel
þaö (skuldirnar voru um 100 millj-
ónir nýrra franskra franka) en
ríkiö ákvað aö flokka ökutækin
sem safngripi og seldi safniö fyrir
rúmlega þriöjung af skuldarupp-
hæðinni eða 44 milljónir.
Kaupandinn var samtök sem síðar
mynduöu félag um safniö. Félag
þjóðminjasafns farartækja í Mul-
house var stofnaö þann 11. mars
árið 1981 en þó svo að það heiti
þjóöminjasafn er þaö í eigu einka-
aðila, nafnið kom til vegna flokk-
unar ríkisins á ökutækjum bræör-
anna.
Bræðurnir Schlumpf búa nú í
Basel í Sviss en vegna skulda, sem
enn eru ógreiddar í Frakklandi,
geta þeir ekki fariö yfir landa-
mærin. Þeir eiga á hættu að veröa
settir í fangelsi. Þeir hafa því lítil
not af öllum bílunum sem þeir
söfnuöu í gegnum árin og eru til
sýnis um 100 km frá Basel. Sagt er
að þeir hafi byrjað söfnunina til
minningar um móöur sína (fyrir
utan áhugann á sjálfum bílunum),
sem þeir voru mjög háöir, og
annar bróðirinn talar aldrei svo
viö vini að hann nefni ekki
„mömmu” í hverri setningu.
Göturnar, sem skipta niður
safninu, bera heiti þeirra bræðra
og þegar inn kemur má sjá stóra
mynd af móöur þeirra sitjandi
meö prjóna, svo þrátt fyrir allt
hefur hún kannski ekki verið til
einskis, bíladellan bræðranna.
Ferrari. 312 formúla 1 árgerð 1970. Vélin er
tólf strokka, sprengirými er þrír lítrar. öku-
menn þessarar bifreiðar voru kappaksturs-
hetjurnar Reggazoni og Andretti.
Mercedes-Benz 300 SL árgerð 1955. Sex strokkar,
sprengirými 2995 rúmsentímetrar. Hurðirnar eru
svokallaðir „fiðrildisvængir" með hjörunum á
toppnum. Hámarkshraði: 210 km/klst.