Vikan


Vikan - 05.07.1984, Side 56

Vikan - 05.07.1984, Side 56
 Bakhúsafegurð m--------------------> Þœr eru margar, húsalengjurnar í henni Reykjavík, og flestir vegfarendur þjóta fram hjá þeim í dagsins önn án þess kannski að fá nokkurn tíma ad vita hvað þar leynist á bak við. Þegar gengið er í gegnum húsasund í lengju einni við Bergstaðastrœtið blasir við fögur sjón: Gamalt timburhús, bráðum 100 ára, hefur verið gert upp og húsið og garðurinn í kring, með litlu Ijóskerun- um, eru eins og lítið œvintýraland þegar komið er frá grárri og hversdags- legri götunni. ínœstu VIKU verður í máli og myndum sagt frá heimsókninni íþetta hús sem er eitt af fyrstu húsunum sem voru flutt úr stað í Reykjavík. Mér finnst allir hvítingjar eins - eftir að hafa verið í Afríku * — segir Birna Bjarnadóttir sem dvalið hefur ásamt manni sínum, ísleifi Jónssyni verkfrœðingi, í Afríku meira eða minna allan síðasta áratug. Þau eru enn á förum til Afríku en í nœstu VIKU segja þau ýmislegt um hvítingja og Afrikana í Afríku austanverðri. Myndir lesenda Myndir lesenda eru sívinsœlt efni, bœði fyrir þá sem þekkja þar sínar eigin myndir á prenti og ekki síður fyrir hina sem sjá þar skemmtilegar myndir og stundum af óvenjulegum atvikum og hlutum. — / nœstu VIKU er enn einn þátturinn afþessu tagi. Gert við í geimnum m---------------- > Óhœtt er að segja að síðasta ferð geimferjunnar Challenger hafi vakið mikla athygli, einkum fyrir þá sök að geimfararnir gerðu við gervihnött sem hafði bilað snemma á ferli sínum og beindu honum aftur á rétta braut, eigendum hnattarins til brúks. / nœstu VIKU fylgjum við þessum bíla- viðgerðarmönnum geimaldar og birtum myndir frá gervihnattaverkstœðinu. Þar sem grasið er grænt heitir nýja framhaldssagan sem hefst í nœsta blaði. Hún segir frá ungri og íðilfagurri konu sem á landnemaárunum vestanhafs hrökklaðist úr sínu eigin landi, Englandi, vestur um haf og átti ekki afturkvœmt heim af sér- stökum ástœðum. Hvers vegna það var fá þeir að vita sem fylgjast með nýju sögunni frá upphafi — og þeir fá líka að kynnast því hvernig líf stúlkunnar tekur nýja og framandi stefnu í nýju landi. Sumarpeysa »---------------------► Vonandi aumkar sólin sig yfir okkur í sumar. Efsvo verður er nauðsynlegt að eiga þœgilega sumarpeysu og við birtum uppskrift að einni slíkri í næstu VIKU.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.